Alþýðublaðið - 14.03.1987, Blaðsíða 6

Alþýðublaðið - 14.03.1987, Blaðsíða 6
6 Laugardagur 14. mars 1987 Menn geta ekki horft upp á mis- rétti og sagt aö sér komi það ekki við. Mér stendur ekki á sama um fólk. Þetta er kannski kjarni jafn- aðarstefnunnar, að láta sér ekki standa á sama um fólk... götuna í Reykjavík í ársbyrjun 1964 þegar ég kom heim frá námi. Þá voru synirnir tveir, Þorbjörn og Sigurður Þór fæddir. Seinna bætt- ust tvær dætur í hópinn, Anna Kristín 1965 og Rebekka, fædd 1977. Fannst Svíþjóð betri en Svíar — Jón lagði sem sagt fyrir sig hagfræði og tölfræði. Hann segist þó hafa velt öðrum greinum fyrir sér eins og arkitektúr; hann hafi alltaf haft gaman af að mála og teikna. En hagfræðin varð ofan á og Stokkhólmur varð fyrir valinu sem háskólaborg: „Ég kunni sér- staklega vel við mig í Svíþjóð. Ég var eins og aðrir bjartsýnir íslend- ingar sem byrja háskólanám í er- lendum borgum; settist beint á skólabekk i sænskum háskóla og byrjaði að læra fræðin á sænsku eins og venjulegur Svíi, þótt undir- stöðukunnáttan í málinu væri skóladanska frá íslandi. En þetta blessaðist allt saman. Ég byrjaði reyndar á lögfræði sem valgrein með hagfræðinni. íslenska nýlend- an var stór og nokkuð innhverf; ís- lendingarnir umgengust helst ís- lendinga. Þarna var gott fólk eins og Ólafur frændi minn Jónsson bókmenntagagnrýnandi, Kristján Bersi Ólafsson, skólastjóri í Flens- borg, Sveinn Einarsson, fyrrum Þjóðleikhússtjóri og kona hans Þóra Kristjánsdóttir, listfræðingur, Haraldur Ölafsson, alþingismaður, Guðmundur Magnússon, pró- fessor, Kjartan Jóhannsson, al- þingismaður og fleiri“ — Jón Baldvin hefur sagt það ú prenti að þú hafir lesið frú 6 ú morgnana til miðnœttis og eina leiðin til að draga þig frú bókunum hafi verið að plata þig ú bíó til að horfa ú John Wayne — myndir og aðra vestra? „Já, formaðurinn hefur látið hafa þetta eftir sér. Sannleikurinn er nú hins vegar sá að Jón Baldvin og Bryndís kona hans, komu til Stokkhólms þegar ég var í lokahrin- unni fyrir fil. kand-prófið. Þá las ég náttúrlega stíft. Það er hins vegar misskilningur hjá Jóni Baldvini, að ég hafi stundað námið svona kapp- samlega allan námstímann. Hins vegar er það hárrétt hjá Jóni Baldvin að ég fór mikið i kvik- myndahús og hafði dálæti á vestrum, sérstaklega ef þeir voru gerðir af John Ford. En ég hafði einnig áhuga á annarri kvikmynda- gerð; sá mikið af frönskum og ítölskum myndum, á þessum árum skall franska kvikmyndabylgjan, „nýja bylgjan" einmitt á. Ég var einnig hrifinn af sænskum mynd- um, einkum myndum Bergmans og þá sér í lagi kómedíum hans eins og „Sommarnattens leende“ (Bros sumarnæturinnar). Stokkhólmur bauð einnig upp á stórkostlegt menningar- og listalíf eins og leik- hús, söfn og tónleikaí* — Hvernig lögðust Svíarnir í þ‘g?, „Ég verð nú að segja eins og er, að í fyrstu fannst mér Svíþjóð betri en Svíar, öfugt með Bretland sem ég kynntist nokkrum árum síðar. En eftir því sem ég hef kynnst Svíum betur, hefur þetta viðhorf mitt breyst, þeir eru jafngóðir og land þeirra er gott!‘ Varði gengisfellingu Olofs Palme — Jón kom heim frú Svíþjóð 1964 og stakkst ú bólakaf í efna- hagsþvargið. Hann hóf störf hjú Efnahagsstofnun sem þú var undir stjórn Jónasar Haralz. í stjórn stofnunarinnar var einnig Jóhann- es Nordal. Jón segist vera ánægður „Ég hef alltaf haft mikinn úhuga d íslensku múli og bókmenntum og skúldskap. Mínir menn eru aðallega 18. og 19. aldar skúld“, segir Jón. Hjónin Laufey Þorbjarnardóttir og Jón Sigurðsson ú góðri stundu ú heimili sínum. með samstarfið við þessa tvo helstu hagfræðinga viðreisnarstjórnar- innar. Ári siðar lá leiðin til London: „Ég var við nám við London School of Economics í tvö ár. Mér líkaði vel í London. Yfirleitt hefur mér líkað vel þar sem ég hef verið. Nú var öll fjölskyldan með, enda börnin orðin þrjú og það yngsta nýfætt þegar við héldum til Bretlands. Við bjuggum fyrir utan London, á tveimur stöð- um — í Orpington í Kent og Forest Hill. Þetta voru heilmikil ferðalög í skólann, stundum gat lestarferðin tekið hálfan annan klukkutíma inn í borgina. Orpington var þá einna frægust fyrir það að þarna áttu frjálslyndir þingmann. Ég komst ekki hjá því að fylgjast með pólitík í Bretlandi, þetta var á stjórnaráum Harolds Wilson og ég fylgdist tölu- vert með málefnum Verkamanna- flokksins. Og til að gera langa sögu stutta: Að loknu númi í Bretlandi, kom Jón Sigurðsson heim til Islands og tók aftur til starfa hjú Efnahags- stofnun, sem hann hafði reyndar verið viðloðandi í sumarfríum. Ár- ið 1971 var stofnunin gerð að deild í Framkvœmdastofnun og kölluð hagrannsóknadeild. Hún starfaði undir því heiti þangað til Þjóðhag- stofnun var stofnuð 1974 og var Jón forstjóri hennar frú upphafi. Enferillinn hefur ekki einungis ver- ið bundinn við Þjóðhagstofnun. A úrunum 1980—83 varJón fastafull- trúi Norðurlandanna hjú Alþjóða- gjaldeyrissjóðnum í Washington. Hann hefur einnig verið fulltrúi Is- lands í stjórn Norræna fjúrfest- ingabankans frú 1976 og stjórnar- formaður bankans 1984—86: „Það kom m.a. í minn hlut ú Washington- úrunum að þurfa að verja 12% gengisfellingu Svía í október 1982, sem var fyrsta verk ríkisstjórnar Olofs Palme sem þú tók við völd- um. Þeirsættu mikilli gagnrýni nú- grannaþjóðanna og Evrópubanda- lagsþjóðanna sem töldu að Svíar hefðu með þessu skapað sér bœtta samkeppnisaðstöðu með ósann- gjörnum hætti. Ætli Svíar hafi ekki bara verið heppnir að hafa mig, vanan mann í gengisfellingum að verjasinn múlstað? En þetta fórallt velhjú Svíum ogþeim hefur vegnað vel ú eftir. Enda situr kratastjórnin enn að völdum við góðan orðstír", segir Jón og brosir breitt. Ég er tilfinningavera og stendur ekki á sama um fólk — En er ekki maður sem er van- ur slíkum úbyrgðar- og stjórnunar- störfum úkaflega stjórnsamur að eðlisfari? „Vonandi er ég stjórnsamur þar sem mér er ætlað að stjórna“, svar- ar Jón um hæl. Hvort stjórnsemi mín nær út fyrir það, verða aðrir að dæma um. Fyrri störf mín hafa að sjálfsögðu mótað mín vinnubrögð. En ef ég tek dæmi af Þjóðhagstofn- un, þá einkenndust vinnubrögðin þar af samvinnu manna en ekki af skipanaröð eða goggunarröð. Hinu er ekki að neita að ég vil stundum ráða — en ég hlusta alltaf á aðra. Og ég ber mikið undir aðra, og legg mikið upp úr því að menn skiptist á skoðunum. Það er góð vinnuaðferð og á vel við í stjórnmálum. Þannig er kjarninn í hverju máli fundinn. Og þannig vil ég vinna; að ákvörð- un í hverju máli sé vel undirbyggð og undirbúin.“ — Ertu haldinn fullkomnunar- úrúttu — óforbetranlegur „per- feksjónisti?" „Jaaa, — ég vil reyna að gera vel. Það er nauðsynlegt í lífinu. Það er hins vegar því miður fjarri að það sé fullkomið eða „perfekt“ sem ég geri. Enda er það alltaf afstætt hvað sé best. En ég vil vera kröfuharður við sjálfan mig“ — Menn sem hafa unnið með þér hafa haft orð ú því hve vel og skipulega þú vinnur — allt að því eins og vél. Menn hafa jafnvel spurt sig hvort þú hugsir aðeins rökréttar hugsanir og sinnir lítið þínu tilfinn- ingalífi? „Þetta er náttúrlega eins og hver önnur firra. Ég er tilfinningavera, ef þú ert að spyrja um það. En til- finningar ber ég kannski meira innra með mér en utan á mér. Ég vil ♦ berjast gegn óréttlæti og finn til með þeim sem minna mega sín eða eru beittir rangsleitni og kúgun. Menn geta ekki horft upp á misrétti og sagt að sér komi það ekki við. Menn verða að staldra við og hugsa og framkvæma síðan eitthvað, sem gerir heiminn eða a.m.k. þeirra nánasta umhverfi að dálítið betri stað að búa og lifa á. Ailt snertir okkur, okkur kemur allt óréttlæti við. En hvað eru svo tilfinningar? Tilfinningar eru ekki síst samkennd með öðru fólki, þá erum við komnir að rótum jafnaðarmennskunnar. Mér stendur ekki á sama um fólk, þetta er kannski kjarni jafnaðar- stefnunnar, að láta sér ekki standa á sama um hagi annarra. — Svo við höldum úfram að tala um þinn innri mann og ferðalög hugans — þú ert mikið fyrir bók- menntir og skúldskap? „Ég hef alltaf haft áhuga á ís- lensku máli og bókmenntum. Ég hef miklar mætur á 18. og 19. aldar kveðskap. Mínir menn eru Jón Þor- láksson, Jónas Hallgrímsson og Grímur Thomsen. Af nútíma- mönnum held ég mikið upp á Matthías Johannessen og Hannes Pétursson. Af skáldverkum úr jóla- bókaflóðinu síðasta hef ég lesið m.a. Tímaþjófinn eftir Steinunni Sigurðardóttir, Grámosinn glóir eftir Thor Vilhjálmsson, hvort tveggja skemmtilegar og athyglis- verðar bækur og Níu lykla eftir Ólaf Jóhann Ólafsson. Ólafur Jó- hann yngri er greinilega efnilegur höfundurí* Að vinna verkin vel án þess að vanrækja fólkið sitt — Hvernig finnst þér, húlf- fimmtugum embœttismanni að vera dreginn út úr tiltölulega hljóð- lútri tilveru inn ísviðsljós fjölmiðla og stjórnmúla? „Fyrir mann sem er frekar hlé- drægur að eðlisfari er þetta auðvit- að dálítið erfitt en það þýðir ekki annað en að sætta sig við það. Ætli maður venjist þessu ekki. Hins veg- ar verður að fara með gát í persónu- kynningu. Það er kannski alltof mikið fjölmiðlafár í stjórnmálum — eins og þetta viðtal.“ Og nú hlær Jón dátt. — Stundum fæ ég það ú tilfinn- inguna að þú sért hinn fullkomni maður — og hinn fuUkomlega hamingjusami maður. „Nú þykir mér týra. Lífið hefur fært mér margt gott en ekki held ég því fram, að ég sé hinn fullkomlega hamingjusami maður og svo sann- arlega mætti margt betur fara í fari mínu“, segir Jón og brosir. „Ég vildi til dæmis hafa meira þrek og svo mætti heimurinn vera betri við mann“ — Hvernig þú? En nú verður Jón alvarlegur aft- ur: „Vandinn í lífi manns er oftast sá, að ná því að vinna verkin sín vel en vanrækja ekki fólkið sitt og vini sína. Það er fáum gefið að hitta fullkomið jafnvægi i þessu. En maður verður alltaf að reyna að þroska sig og bæta“ Segir Jón Sigurðsson.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.