Alþýðublaðið - 14.03.1987, Blaðsíða 14

Alþýðublaðið - 14.03.1987, Blaðsíða 14
14 Laugardagur 14. mars 1987 Launamisrétti kynjanna Auka þarf vægi dagvinnu Um 50 manns sóttu ráðstefnu ASÍ og BSRB, þar sem fjallað var um launamisrétti kynjanna. — Alþýðublaðið ræddi við Láru V. Júlíusdóttur. „Þessi stefna hefur aldrei verið mótuð af samtökunum hér heima svo okkur þótti tími til kominn að setjast niður og ræða þessi mál“, sagði Lára V. Júlíusdóttir, lögfræð- ingur ASÍ og frambjóðandi Al- þýðuflokksins í Reykjavík, í samtali við Alþýðublaðið í gær. Um 50 full- trúar komu á ráðstefnu ASÍ og BSRB um siðustu helgi þar sem fjallað var um launamisrétti kynj- anna. Ráðstefnan var haldin í Borg- arnesi. Tilefnið var að jafnréttis- nefnd heildarsamtaka verkalýðs- hreyfinga á Norðurlöndum hafði ákveðið að endurskoða fjölskyldu- stefnu samtakanna sem mörkuð var árið 1976. í lok ráðstefnunnar var mótað plagg sem þegar er búið að leggja fyrir miðstjórn ASÍ og verður væntanlega lagt fyrir stjórn BSRB. „Þetta veröur vonandi samþykkt hjá samtökunum, því það er nauð- synlegt að við höfum samræmda stefnu í þessum málum“, sagði Lára. Ný könnun Fiórir fyrirlesarar voru á ráð- stefnunni og fjölluðu þeir allir um launamisréttið sem var aðalum- ræðuefni fundarins. Bolli Þór Bollason skýrði frá niðurstöðum könnunar Þjóðhagstofnunar á launamun kynja. Stofnunin er að leggja síðustu hönd á úrvinnslu könnunarinnar. „Þær niðurstöður sem þarna koma fram eru svo sem engin ný sannindi fyrir það fólk sem unnið hefur að þessum málum. Þar kemur í ljós að launamunur kynjanna er einkum í yfirvinnu og aukagreiðslum, sem eru nær ein- göngu til karla. Þeir njóta ivilnana sem konur ekki fáí‘ Guðrún Hallgrímsdóttir talaði um ástæður launamunar og fullyrti að aðalorsök launamunar fælist i þjóðskipulaginu sjálfu, karlaveld- inu. Hér miðaðist allt við að karlinn færi út að vinna og konan sæti heima. Lítið þokast í máli Guðrúnar kom fram að lít- ið hefur þokast þau 20—30 ár sem sókn kvenna hefur staðið á vinnu- markaðinum. Benti hún á að það væri margt sem stæði í vegi fyrir minnkandi launamun. Því hefur t.a.m. stundum verið haldið fram að aukin menntun kvenna væri lyk- illinn að lausn en reyndin hefur orð- ið sú að því meir sem konan mennt- ar sig, því meira verður bilið á milli hennar og karlsins. „Þetta eru nátt- úrlega dapurlegar staðreyndir, sem konur eru alltaf að reka sig á“, sagði Lára. „Það eru margir þættir sem eru í raun afleiðing þessa ríkjandi þjóðskipulags. Við vitum það hins vegar að það er erfitt að ráðast á or- sökina nema gera eitthvað róttækt. Niðurstaða Guðrúnar var einmitt að konur ættu að vera kröfuharðari og krefjast hver og ein á sínum stað, þess sama og karlarnir" Ingibjörg Guðmundsdóttir fjall- aði um tímabundnar aðgerðir til hagsbóta fyrir konur og talaði um með “hvaða hætti mætti nýta ákvæði 3. greinar laga jafnréttis til þess að draga úr launamun kynja. Böðvar Guðmundsson talaði um starfsmat og þær leiðir sem má nota til að nálgast þetta jafnrétti. Draga þarf úr yfirvinnu Úr fjörugum hópumræðum varð sú meginniðurstaða að auka þyrfti vægi dagvinnu, draga úr yfirvinnu og leggja hana af þannig að fólk geti Iifað af dagvinnunni. Lára sagði að með því teldu menn fund- inn ákveðinn lykil að velferð fjöl- skyldunnar. „Með því móti gætu menn farið að sinna fjölskyldunni. Það væri hægt að skipta með sér vinnutima. Það væri lykillinn að launajafnrétti, því eins og kom fram hjá Bolla Þór er misréttið fólgið í þessari meiri vinnu sem karlarnir vinna umfram konurnar. Ef við drögum úr þeirri vinnu, drögum við líka úr launamisrétti" Lára sagði að bent hefði verið á tvær leiðir til að draga úr yfirvinn- unni: „Önnur leiðin var sú að draga svo úr yfirvinnunni að það dytti engum í hug að vinna hana. Ef þú Lára V Júlíusdóttir færð ekki hærra kaup á milli 5 og 10 á kvöldin, þá vinnur þú ekki nema til fimm. Hin leiðin var að gera yfir- vinnuna það dýra að atvinnurek- endur hefðu ekki efni á að kaupa hana. Menn greindi á um þessar leiðir og það er náttúrlega Ijóst að stefna verkalýðshreyfingarinnar hefur verið að gera yfirvinnuna ennþá dýrari en hún er í dag. Af- sláttarleiðin gengur því þvert á stefnu hreyfingarinnar, en þarna kom þó fram að ýmsir eru henni hlynntir" Lára sagði aðspurð að þáttur lög- gjafans hefði komið lítið til um- ræðu. Hún sagði að viðfangsefni ráðstefnunnar hefði náttúrlega fyrst og fremst miðast við það hvað verkalýðshreyfingin gæti gert í þessum málum. Norrænir starfsmenntunarstyrkir Menntamálaráðuneyti Danmerkur, Finnlands, Noregs og Svlþjóðar veita á námsárinu 1987—88 nokkra styrki handa Islendingum til náms við fræðslustofnanir i þessum löndum. Styrkirnireru einkum ætlaðirtil fram- haldsnáms eftir iðnskólapróf eða hliöstæöa menntun, tii undirbúnings kennslu I iönskólum eða framhalds- náms iðnskólakennara, svo og ýmiss konar starfs- menntunar sem ekki er unnt að afla á íslandi. Fjárhæð styrks I Danmörku er 15.000 d.kr., I Finnlandi 17.600 mörk, I Noregi 18.000 n.kr. og f Svfþjóð 10.000 s.kr. mið- aðviðstyrktil heils skólaárs. — Umsóknirskulu berast menntamálaráðuneytinu, Hverfisgötu 6,150 Reykjavlk, fyrir 21. aprfl n.k. — Nánari upplýsingarfást I ráðuneyt- inu. Menntamálaráðuneytið, 12. mars 1987. Kjarabót fyrir einstaklinga Launareikningur-nýrtékkareikningur með hærri vöxtum. Við bjóðum þeim fjölda einstaklinga sem leggja reglulega ínn fé, nýjan íékkareikning sem sameinaí kosti veltureiknings og sparireiknings. Launareikningur er með 4% lágmarksvöxtum, en fari innstæðan yfir 12.000 krónur reiknast 9% vextir af því sem umfram er. Aðalkjarabótin felst í því að af Launareikningi reiknast dagvextir. Handhafar tékkareiknings geta breytt honum í Launareikning án þess að skipta um reikningsnúmer. Umsóknareyðublöð liggja frammi í öllum afgreiðslum bankans. Innlánsviðskipti - leið til lánsviðskipta. bín^ðarbanki

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.