Alþýðublaðið - 14.03.1987, Blaðsíða 23

Alþýðublaðið - 14.03.1987, Blaðsíða 23
Laugardagur 14. mars 1987 23 hafi verið stórkarlalegur leikari sem notaði kraftmikinn og rúmfrekan leik sem dregur oft dám af sviðsleik enda stóðu rætur Danny Kaye í leik- húsinu. Fyrsta kvikmynd Danny Kaye sem sló ærlega í gegn var Kid from Brooklyn frá árinu 1946. þar leikur hann lítinn hvunndags meðaljón sem neitar að láta í minni pokann í stíl við persónur ameríska gaman- leikarans Harold Lloyd. The secret life of Walter Mitty var gerð ári síð- ar og þar sýnir Danny Kaye hinn mikla hæfileika sinn að bregða sér í ýmis gervi. í myndinni leikur hann mann sem sekkur sér í dagdrauma og ímyndar sér að hann sé ýmsar hetjur, og að sjálfsögðu leikur Kaye öll ofurmennin. Fleiri myndir fylgdu í kjölfarið eins og A song is Born, The Inspector General, On the Riviera og kannski hans fræg- asta mynd, kvikmyndin um Hans Christian Andersen, hinn heims- fræga ævintýrahöfund Dana. Sármóðgaði Dani Reyndar fór Danny Kaye sérstaka ferð til Danmerkur þegar myndin var frumsýnd þar 1952 og varð sú ferð hálfmislukkuð því honum varð það á að láta blaðaljósmyndarana taka mynd af sér liggjandi í rúmi skáldsins H.C. Andersen-safninu og hélt þar að auki á spenntri regn- hlíf. Þetta var húmor sem meira að segja Dönum fannst of grófur og var Danny kaye óspart víttur fyrir að vanhelga minningu skáldsins. En Danir fyrirgáfu Danny Kaye að lokum og segja sumir að eina orðið sem Danny lærði almennilega í dönsku hafi verið „undskyld”. Hvað um það, þegar leið á sjötta áratuginn fór stjarna Danny Kaye að daprast og margar af síðari myndum hans eru beinlínis slæmar. Hann gerði margar sjónvarps- myndir sem ennfremur voru mis- Danny Kaye hafði yndi af að stjórna stórum hljómsveitum og varð reyndar heimsfrœgur sem kómískur stjórnandi. Hér veifar hann sprotanum fyrir fram- an dönsku sinfóníuna „Det Kongelige Kapel“. jafnar að gæðum. Kona Danny Kaye, Sylvia Fine var besti handrita- höfundur gamanleikarans og hún aðstoðaði hann jafnframt við hreyfingar, leikræna tjáningu og hugmyndir. Danny Kaye var vanur að segja að konan hefði skapað hann. „I’m a wife-made man” sagði hann oft og urðu þau orð fleyg. Barnahjálp SÞ og dramatísk hlutverk Samtímis því sem vinsældir hans fóru dalandi á hvíta tjaldinu, tók Danny Kaye að vinna fyrir Barna- hjálp Sameinuðu þjóðanna og ferð- aðist víða um vanþróuð lönd til að hughreysta, skemmta og aðstoða sveltandí börn. Óefað var þessi að- stoð gamanleikarans grundvölluð á hugsjón en margir urðu til að gagn- rýna þessa aðferð Sameinuðu þjóð- anna og mæltist hún misjafnlega fyrir. Á síðustu árum leikferilsins lék Danny Kaye mörg alvarleg hlutverk og sýndi og sannaði að hann hafði góð tök á túlkun dramatískra hlut- verka. Sennilega reis hann hæst sem dramatískur leikari i hlutverki gyð- ingsins sem sífellt er ofsóttur og niðurlægður í myndinni Merry Andrew frá árinu 1958. Danny Kaye var 74 ára þegar hann lést. Að baki á hann brokk- gengan feril. Nýverið sýndi íslenska sjónvarpið þrjátíu ára gamla mynd með honum, The Court Jester eða Hirðfíflið. Það væri gaman ef sjón- varpið sýndi fleiri myndir frá há- tindi ferils gamanleikarans Danny Kaye. Hafnarfjörður — íbúðarlóðir Hafnarfjarðarbær hefur til úthlutunar lóðir fyrir Ibúðarhús í Setbergi og víðar. Um erað ræðalóðir fyrir einbýlishús, raðhús og fjölbýlishús. Nánari upplýsingar veitir skrifstofa Bæjarverk- fræðings Strandgötu 6, þar með talið um gjöld vegna lóðanna bygginarskilmála o.fl. Umsóknum skal skila á þar til gerðum eyðublöðum sem þar fást eigi síðar en þriðjudaginn 31. mars n.k. Bæjarverkfræðingur. SUMARAÆTLUN 1987 m «S=.--J----- . J APRÍL MAÍ JÚNÍ ÁGUST ÁGUST ÁGUST OKTÓBER OKTÓBER OKTÓBER SEPTEMBER SEPTEMBER SEPTEMBER Benidorm sumaráætlunin 1987 er komin. Pantaðu tímanlega því s.l. Pantaðu strax, dagsetningarnar á brottfarardögunum eru hér í auglýs- sumar komust færri með en vildu á Hvítu ströndina á Spáni. Benidorm ingunni. Við lánum þér myndband um Benidorm endurgjaldslaust. býður upp á góða gistingu, frábæra matsölu og skemmtistaði. Aðstaða til íþróttaiðkunar er einstök, skemmtigarðar og tívolí af bestu gerð. Auðvitað er líka hægt að njóta lífsins í ró og næði á ströndinni og fara í skoðunarferðir um nágrennið með fararstjórum Ferðamiðstöðvar- innar. Benidorm er einn sólríkasti staðurinn á suðurströnd Spánar, það mæiast 306 sólardagar á ári. AÐALSTRÆTI 9 - REYKJAVlK - S. 2 8 1 3 3 FERÐA Ce+dxcd MIÐSTÖÐIIM JccMd

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.