Alþýðublaðið - 11.04.1987, Blaðsíða 4
4
55 Eg veit vel
að það er eina leiðin að láta sig
hníga niður hér heima og rísa svo
upp annars staðar. Það er að
minnsta kosti eina vitið að snúa við
á meðan maður hefur krafta til að
byrja annars staðar.<(
stoð við að hrinda henni í fram-
kvæmd af því að þetta er bara hug-
myndin og ekkert annað. Þá er far-
ið fram á það við þig að þú sannir
hugmyndina og til þess að geta
sannað hugmyndina verðurðu ein-
hvern veginn að sparka þér áfram
og á meðan þú ert að hamast við
það til að sanna hugmyndina þína,
þá lendirðu í alls konar hindrunum
sem þú kannt ekkert á, vegna þess
að enginn kann alla hluti og enginn
kann á allar hliðar kerfisins og það
er enginn sem kemur þér til aðstoð-
ar þar sem þína þekkingu þrýtur.
Þess vegna þarf að koma til sam-
vinna og skilningur miklu fleiri.
Líka vegna þess að einstaklingurinn
með hugmyndina, hann á að fá að
einbeita sér að því að þróa hana, en
hann á ekki að þurfa að standa í
allskonar snatti og eyða öllum sín-
um kröftum í að sanna að hug-
myndin eigi rétt á sér. Þannig fara
hæfileikar til spillar. Það er þarna
sem aðrir verða að koma inn í
myndina og halda verkinu áfram.
Þar á ég við fjármagnsútvegun,
markaðssetningu og sölumennsku
o.s.frv. Þetta fólk sem hefur orðið
að standa í þessu það er gersamlega
búið að vera þegar það loksins hef-
ur náð því takmarki sínu að sanna
að góð hugmynd sem það hefur
burðast með er góð og þess verð að
nýta hana. En þá er það bara orðið
nokkuð seint.
Ég hef óbilandi trú á þessu landi
okkar. Við eigum mjög mikið af
hugmyndaríku fólki sem getur gert
stórkostlega hluti ef það fær tæki-
færi. Það er alveg óskiljanlegt hvað
allir hlutir ganga hægt hérna hjá
okkur.
Enginn gaumur gefinn
Ég var í Handíða- og myndlista-
skólanum og þar sá ég fjölmargt
fólk með snilldarhugmyndir, en
þessu fólki var enginn gaumur gef-
inn. Við kunnum ekki einu sinni að
fjárfesta í myndlist hvað þá öðru.
Það er líka fróðlegt að skoða þá að-
stöðu sem fólki í myndlistaskólan-
um er boðið upp á. Það segir í raun-
inni alla söguna. Þarna eigum við
virkilegan fjársjóð, en það er ekkert
í hann lagt. Og hér á íslandi er fólk
mikið í tónlist, það er mikið í Ieik-
list og það er mikið í myndlist. Eins
eru margir sem stunda dans. Ég á
við að við eigum mikið af fólki með
fallegar listrænar tilfinningar, en
við gerum ekkert til að nýta þetta.
Og í sambandi við hönnun, til
dæmis fatahönnun, þá eigum við
að selja hana en ekki magn ein-
göngu. Það getum við nefnilega.
Við þurfum að gefa þessu fólki sem
vinnur við hönnun svolítið frjálsar
hendur og frelsi til að vinna úr sin-
um hugmyndum. Það er dálítið ein-
kennandi fyrir ástandið að ég hef
aldrei fengið þá sem skipta máli til
þess að ræða þessa hluti í alvöru.
Nýjar hugmyndir eru alls ekki tekn-
ar alvarlega. Nýjar hugmyndir eru
meira að segja oft tengdar við ein-
hvers konar kjánagang eða ung-
lingauppreisnir eða annað furðu-
legt. Þetta er allt einhvern veginn
svo klaufalegt hjá okkur.
Vísitöluskautarnir
Ef þú kemur ekki rúllandi á vísi-
töluskautunum, þá er ekki tekið
neitt mark á þér. Én þegar þú svo á
hinn bóginn ert kominn inn í þenn-
an gamla hugmyndaheim, sem
gamlingjarnir eru tilbúnir að taka
gildan, þá ertu líka um leið orðinn
steingeldur og allt nýjabrumið og
allt þetta spennandi sem þú Iagðir
upp með í byrjun, horfið og gleymt.
Þess vegna erum við sífellt að
mjólka steingeldar kýr. Og það
kemur bara andskotinn hafi það
ekkert út úr því. En það vantar ekki
að þá er gelda beljan orðin að heil-
agri belju, bara af því að þú ert fall-
inn inn í gamla góða kramið, sem
ekkert kemur út úr en allir eru til-
búnir að leggja blessun sína yfir af
gömlum vana. Þetta er alveg hroða-
legt.
Bundnar hendur
Fatahönnun t.d. hún þróast ekki
eðlilega innan svona stórra fyrir-
tækja vegna þess að fólk hefur svo
bundnar hendur og það hefur svo
litla möguleika til þess að kynna
hugmyndir sínar þótt góðar séu.
Þess vegna þarf að gera starfsfólki
þessara stærri fyrirtækja kleift að
tjá sig og láta því í té aðstöðu til þess
að þróa sínar hugmyndir og tilraun-
ir þannig að það sé trygging fyrir
því að það sé sífelld nýsköpun í
gangi. Þegar stjórnendur þessara
fyrirtækja átta sig loksins á því að
hérna er um að ræða beinharða
peninga þá kannski gæti þetta farið
að ganga eitthvað og þá væri líka
hægt að flytja fjöll í þessum efnum.
Allt kom fyrir ekki
Við hefðum getað verið leiðandi
í tískumálum á Norðurlöndum fyr-
ir svona þremur árum síðan og þá
barðist ég um á hæl og hnakka til
þess að reyna að fá aðstoð og skiln-
ing hérna, en allt kom fyrir ekki.
Seinna voru svo allir boðnir og bún-
ir að útskýra fyrir mér að ég hefði
ekki leitað á rétt mið eða snúið mér
til réttra aðila, en enginn fékkst til
að segja mér hvaða mið þetta væru.
Það er alltaf verið að benda á „Þá
þessa hina“ sem finnast hvergi og
enginn veit hverjir eru að því er
virðist.
Ég fór með föt á sýningu til Sví-
þjóðar fyrir þremur árum síðan og
ég fékk alveg einstaklega góðar
undirtektir og einnig í Noregi, þar
fékk ég mjög góðar undirtektir, en
svo kom ég hérna heim og þá byrj-
aði nú alvara lífsins. Ég hélt svei
mér þá að ég myndi ekki lifa það af.
Enginn skilningur neins staðar.
Reisupassinn
Það sýnir sig að við ^etum vel selt
föt til annarra landa. Eg hef t.d. selt
jakkaföt til útlanda. Við erum núna
að vinna úr þýskum efnum sem við
erum að flytja aftur út til Þýska-
lands. Þetta er ekki í neinu magni
ennþá vegna þess að það er engin
fyrirgreiðsla hérna heima. Og það
sem mér finnst við vera að gera:
Mér finnst við vera í óða önn að út-
búa reisupassa fyrir fólk til annarra
landa, fólk sem nennir að vinna.
Við erum hreinlega að hrekja það
úr landi vegna þess að þetta fólk
það fær ekki súrefni til að Iifa og
starfa hérna á íslandi. Og það er al-
veg ægilegur hlutur.
Ég er búin að berjast í þessu
miklu lengur en ég hefði þorað að
vona að ég gæti gert eða hefði þol til
og ég veit að ég get þetta ekki mikið
lengur.
Hvar er rétti maðurinn?
Ég veit vel að það er eina leiðin að
láta sig hníga niður hér heima og
rísa svo upp annarsstaðar. Það er
að minnsta kosti eina vitið að snúa
við á meðan maður hefur krafta til
að byrja annarsstaðar. Mér finnst
þetta alvarlegt mál. Ég er búin að
reyna að fá SIS til að vinna með mér
að undirbúningi að þessu og hinu
og ég hef aldrei hitt á rétta manninn
sem hefur með neina ákvörðun að
gera þrátt fyrir mikla Ieit. Það er
búið að benda mér á þróunarfélög
og alls konar félög, en það er eins og
enginn hafi með neitt að gera. Su
manneskja er bara ófinnanleg.
Ég er ekki að segja að þetta fólk
geri ekki allt mögulegt, en ég veit
bara ekki hvað. Eg hef ekki hug-
mynd um það. Allavega mitt fyrir-
tæki virðist hvergi passa inn í þá
mynd. Og þetta finnst mér mjög al-
varlegt mál þegar fólk sem er fullt
af áhuga fær hvergi neina svörun,
þrátt fyrir örvæntingafulla leit. Því
að við verðum að athuga það að hér
er um hag alls landsins að ræða,
ekki bara mitt skinn, því ég er ekki
sú eina sem er í þessum vandræð-
um. Það er eins og við pössum
hvergi inn í neitt.
Vanmat
Það er talað um að hér sé verið að
leggja fjármagn í vissa hættu eða
áhættu. En það er bara miklu meiri
áhætta að láta svona tækifæri sér
úr greipum ganga ár eftir ár, því að
við eigum snillinga á sviði eins og
fatahönnun. Við eigum líka sauma-
konur fjölmargar sem eru hreinir
snillingar, en þær eru flestar van-
metnar og það er lýsandi dæmi að
fyrir nokkrum árum þá voru settar
á stofn saumastofur i fjölmörgum
plássum út um allt land og þær áttu
að bjarga byggðarlaginu, atvinnu-
Iega séð. Keyptar voru saumavélar,
en það var eins og enginn hafi áttað
sig á því að það vantaði listakon-
urnar sem kunnu að hanna og
framleiða góða vöru. Þetta gerist
einfaldlega ekki þannig að keypt er
saumavél og fengin í hendur ein-
hverri konu og henni svo skipað að
skapa listaverk. Hlutirnir gerast
einfaldlega ekki svoleiðis. Málið er
að það er enginn tími innan fyrir-
tækjanna ætlaður í hönnun sem er
úthugsuð. Og það sem gerist í þeim
efnum það, hlýtur að gerast í lyft-
unni eða þá á nóttunni, því til hönn-
unar er ekki ætlaður neinn tími. Og
þetta er svo svakalegt vegna þess
hvað við eigum góða hönnuði.
Brotlending
Ég hef farið erlendis á sýningar
og þess háttar og skoðað mig um og
þegar ég kem heim þá er ég svo
lukkuleg og allt er svo gaman, en
svo brotlendir maður alltaf hérna
heima — enginn skilningur og ekki
neitt. Meira að segja þessir menn
sem þó taka jákvætt undir hlutina,
þeir hafa ekkert annað til málanna
að leggja en að vísa manni á ein-
hvern sem er í rauninni nafnlaus og
valdalaus. Og þá er ég rétt einu sinni
búin að rölta einn vonlausa hring-
inn enn.
Samvinna allra
Það sem ég vil er að komist á
samvinna um þessi mál. Ég vil fá
samvinnu þeirra sem vilja í alvöru
setjast niður og gera eitthvað í
þessu. Égvilgjarnafá samvinnu við
SÍS og Alafoss t.d. Ég lít á okkur
það lítið skip að það veiti ekkert af
allri áhöfninni til að eitthvað gangi.
Ég er ekkert endilega að tala út frá
mínu fyrirtæki eingöngu, en það
sem mér finnst að verði að koma til
er meiri skilningur þeirra sem ráða
fjármagninu á því, að fyrirtæki
þarf ákveðinn tíma til að koma sér
á fæturna. Ný fyrirtæki fara ekkert
á hausinn vegna þess að verkmennt-
un vantar. Það vantar samtengingu
við bókhald, banka og verkmennt-
un. Og ég held að það sem við verð-
um að gera til þess að þróa upp okk-
ar fyrirtæki, er að t.d. endurskoð-
andi vinni meira með þessum litlu
fyrirtækjum, þannig að þú þurfir
ekki alltaf að vera að leita langt yfir
skammt, heldur sé þetta meira á
hendi endurskoðunarskrifstofunn-
ar. Eða þá að banki bjóði þér þessa
þjónustu sem væntanlegum við-
skiptamanni, eins og þetta er víðast
erlendis. Og ég get ómögulega skil-
ið að með alla þessa banka út um
allar tryssur, þá eru gerðar svo
miklar kröfur til fyrirtækjanna um
allskonar pappírsútveganir, að
bankarnir með allan þennan mann-
skap og allt þetta starfsfólk þeir geti
ekki sameinað það mikið hjá sér að
þeir geti verið ráðgefandi í upphafi,
þegar nýstofnuð fyrirtæki þurfi
mest á ráðgjöf að halda, til þess að
fólk lendi ekki alltaf í þessum víta-
hring. Bankinn á síðan að fylgjast
með og sjá hvort einhver glóra er í
því sem viðkomandi er að gera eða
ekki.
Skattakaffæring
Ríkið á líka að veita aðstoð fyrsta
árið eða árin á meðan fyrirtækin
eru að festa rætur, þannig að fyrir-
tækin séu ekki kaffærð í sköttum á
meðan þau eru að byggjast upp. Ég
er ekki að biðja um að fá eitthvað
gefins. Ég er aðeins að biðja um að
garðurinn sé verndaður á meðan
gróðurinn er að festa rætur. Ég ef-
ast ekki um að það sé vilji allsstað-
ar, en við verðum að fara að nýta
þann vilja. Það er kominn tími til
og þótt fyrr hefði verið.
Utflutningsráð virðist sem betur
fer vera að taka sig á. Það hefur ver-
ið allt annar og betri tónn í þeim
upp á síðkastið og betri heldur en
hann hefur nokkurn tímann verið
áður. Það er vilji, en það er eins og
vanti verkkunnáttu. Ég vil líka að
það sé mögulegt að aðskilja at-
vinnureksturinn annars vegar og
rekstur heimilanna hins vegar. Það
getur ekki gengið að fólk sem er að
reyna að koma sér upp og stofna
fyrirtæki þurfi að leggja það eina
litla sem það á, þ.e. heimilið sitt
undir í þeim slag. Það verður ein-
faldlega til þess að enginn þorir að
hreyfa sig, því ekki vill fólk setja
fjölskyldu sína á vonarvöl, ef illa
skyldi nú fara. Þarna verður að
koma til betri grundvöllur og heil-
brigðari samvinna strax í upphafi,
með aðstoð góðra manna.
Heilbrigðar reglur
Það er svo auðvelt að vinna inn í
reglur þegar þær eru fyrir hendi, en
það er hins vegar mjög erfitt að
þurfa að finna reglurnar út og jafn-
vel búa þær til samhliða því að vera
að rembast við að byggja upp fyrir-
tæki — lítið eða stórt. Við erum
mikið klessuþjóðfélag. Við gerum
ekkert í málunum fyrr en þau eru
komin í klessu. Þá er farið að
stokka upp og allir þykjast hafa ráð
undir rifi hverju, en þá er það oft á
tíðum of seint og allt er farið í vask-
inn.
Svo einfalt er það
Ég vil líka gera þær kröfur til iðn-
aðarráðuneytisins og bankanna að
þetta séu stofnanir allrar þjóðar-
innar, en ekki bara einhverra út-
valdra. Ég geri t.d. kröfur til Iðnað-
arbankans. Hvers vegna heitir fyrir-
tækið Iðnaðarbankinn? Veit það
einhver? Ég hef mikið álit á fólkinu
í Iðnaðarbankanum, en það er ekki
nóg. Ég hef ekki fengið þar þá fyrir-
greiðslu sem ég hef þurft. Við erum
lítil þjóð og við verðum að vinna
saman. Hlutirnir eru nú ekki flókn-
ari en þetta. Og hananú.