Alþýðublaðið - 11.04.1987, Blaðsíða 7
7
„Ég vil
raunverulegan
átta stunda
vinnudag“
„Eg verð að segja eins og er að
mér hefur lengi fundist skrýtið að
við íslendingar skulum enn þurfa
að vinna jafn óheyrilega langan
vinnudag og raun ber vitni. Mér er
stundum nær að halda að við séum
álíka langt frá því að fá raunveru-
legan átta stunda vinnudag og þeg-
ar krafan um hann var fyrst sett
fram. Þótt vissulega séu nú margir
áratugir síðan vinnudagurinn var
opinberlega styttur i átta stundir,
þá fer því enn víðs fjarri að þú getir
lifað af dagvinnulaunum. Og jafn-
vel þótt þú treystir þér til þess, þá
myndu sjálfsagt ekki margir at-
vinnurekendur líta við þér í vinnu ef
þú ætlaðir að fara heim að lokinni
dagvinnu.
Mér er hins vegar ljóst að raun-
verulegur átta tíma vinnudagur
næst ekki nema með einhverjum
samræmdum aðgerðum og mér líst
satt að segja afar vel á tillögu Al-
þýðuflokksins í því efni og þær
höfðu úrslitaáhrif um það hvernig
ég ákvað að verja atkvæði mínu í
þessum kosningum“
Hefur þú kynnt þér
tillögur Alþýðuflokksins
um styttingu vinnutíma
á fullum launum
og aukin afköst?
í stefnuskrá flokksins fyrir kosn-
ingarnar i vor segir m.a. um þetta
atriði:
„Alþýðuflokkurinn vill að gert
verði átak, í samráði við aðila
vinnumarkaðarins, um að draga úr
yfirvinnu uns því marki verði náð
að heildarlengd vinnutíma launa-
fólks á íslandi verði svipuð og í ná-
grannalöndunum. Minnkun yfir-
vinnutekna verði bætt með hækkun
dagvinnulauna samhliða því að
markvissari stjórnun leiði til auk-
inna afkasta i atvinnulífinu. Með
þessu verða lífskjör stórlega bætt,
fjölskyldulíf eflt og dregið úr
launamismun í landinu.
Stytting vinnuvikunnar með
þessum haetti myndi færa vinnu og
lífskjör á íslandi í það horf sem er
í nágrannalöndunum. Sú kjarabylt-
ing sem þessi leið felur í sér er líkleg
til að stuðla að meiri stöðugleika í
þjóðfélaginu, efla fjölskyldulíf,
bæta vinnusiðgæði, auka hagræð-
ingu og draga úr átökum á vinnu-
markaði.
Alþýðuflokkurinn vill að vinnu-
markaðurinn verði lagaður að því
að taka frekari mið af þörfum fjöl
skyldunnar en nú er, með hóflegum
og sveigjanlegum vinnutíma.“
„Eg vil nýtt,
einfalt og
réttlátara
skattakerfi“
„Ég sá einhvers staðar að 90 þús-
und framteljendur hefðu ekki þurft
að borga neinn tekjuskatt á síðasta
ári. Það er ekki nema von að það
komi nokkuð mikið í hlut okkar
hinna. Og þegar jafnvel ráðherrar
verða að segja af sér vegna skatta-
mála, er kannski kominn tími til að
fara að huga að skattsvikum meira
en gert hefur verið hingað til. Ann-
ars er skattakerfið eins og það er nú
allt of flókið og býður beinlínis upp
á ýmiss konar ranglæti. Ég held
þess vegna að þótt staðgreiðslukerf-
ið sé auðvitað gott og gilt svo Iangt
sem það nær, þá þurfum við heildar
endurskipulagningu á skattakerf-
inu. Eitthvað í líkingu við það sem
Alþýðuflokkurinn hefur verið að
boða. Ég hef reyndar margar aðrar
ástæður til að kjósa Alþýðuflokk-
inn, en þessi vegur þungt.
Hefur þú kynnt þér
hvað Alþýðuflokkurinn
vill gera við skattakerfið?
í stefnuskrá flokksins fyrir þess-
ar kosningar stendur m.a.:
„Núverandi skattakerfi er rang-
látt og þjónar illa tilgangi sínum.
Enn hefur lítið verið gert til að
vinna bug á stærstu göllum skatta-
kerfisins. Staðgreiðsla skatta er já-
kvætt skref, en hún er þó aðeins eitt
af fjölmörgum skrefum sem taka
þarf.
Alþýðuflokkurinn gerir hcildar-
endurskoðun, einföldun skatta-
kerfisins og aðgerðir gegn skatt-
svikum að forgangsverkefnum
nýrrar ríkisstjórnar. Skattakerfið
þarf að afla riki og sveitarfélögum
nauðsynlegra tekna til sameigin-
legra verkefna landsmanna á þann
hátt, að allir — einstaklingar jafnt
sem fyrirtæki — leggi sitt af mörk-
um. Sníða verður skattareglur á
þann veg, að álagning verði réttlát
en jafnframt skilvirkari en nú er.
Skattakerfið á enn f remur að stuðla
að jöfnun afkomu í þjóðfélaginu.
Þessum markmiðum verði náð
með því að fækka undanþágum og
sérreglum, afnema álagningu á al-
mennar launatekjur, og hækka
skattfrelsismörk með aukningu
persónuafsláttar og barnabóta.
Við endurskoðun skattakerfisins
verði lögð áhersla á að loka skatt-
svikaleiðum og bæta leiðbeiningar
af hálfu skattyfirvalda."
„Brjótum upp
kynskipt-
inguna“
„Ég vil að unnið verði að auknu
jafnrétti kynjanna frá því sem nú er.
Á undanförnum árum og áratugum
hefur vissulega ýmislegt áunnist í
jafnréttisbaráttu kvenna, en þó er
enn ótrúlega langt í land með að
fullkomnu jafnrétti verði náð. Mér
líst vel á þær hugmyndir, sem fram
koma í stefnuskrá Alþýðuflokksins
um að brjóta upp kynskiptinguna á
vinnumarkaðnum. M.a. þess vegna
ætla ég að kjósa Alþýðuflokkinn í
vor“
Hefur þú kynnt þér
stefnu Alþýðuflokksins
í jafnréttismálum?
í stefnuskrá flokksins fyrir kosn-
ingarnar í vor segir svo um jafnrétti
kynjanna:
„Laga þarf þjóðfélagið betur að
atvinnuþátttöku kvenna og afnema
launamisrétti. Þetta kallar á að-
gcrðir í jafnréttisátt á vinnumark-
aði, í skatta- og lífeyrismálum, og
við mótun launastefnu.
Alþýðuflokkurinn vill brjóta
upp hinn kynskipta vinnumarkað,
m.a. með því að leggja aukna
áherslu á jafnréttisuppeldi í skólum
og starfsfræðslu, efla endurmennt-
un og fullorðinsfræðslu til að auð-
velda konum leið inn í hefðbundnar
karlagreinar atvinnulífsins. Stefnt
verði að því að konur skuli einskis
missa í launa- né stöðuhækkunum
vegna barneigna.
Unnið verði að endurmati á
störfum kvenna, sem miði að því að
leggja ábyrgð á lifi og limum að
jöfnu við ábyrgð á fjármunum og
tækjum. Konur verði hvattar til að
gera sömu kröfur til launa og karlar
og taka á sig ábyrgð til jafns við
karla.“
„Ég vil einn
lífeyrissjóð"
„Það sér hver heilvita maður sem
kynnir sér lífeyrissjóðafrumskóg-
inn, eins og kalla mætti núverandi
kerfi, að það er í algerum ólestri.
Sumir stóru lífeyrissjóðirnir eru að
vísu tiltölulega sterkir, en það eru
líka til lífeyrissjóðir, sem fyrirsjáan-
lega geta ekki staðið undir lífeyris-
greiðslum til þeirra sem nú eru að
borga í þá. Þetta er mál sem mér
finnst Iöngu kominn tími til að taka
á og með tilliti til þess sem Alþýðu-
flnlíkurinn vill eera i málinu. bá er
ég staðráðinn í að kjósa hanní'
Hefur þú kynnt þér
stefnu Alþýðuflokksins
í þessu máli?
í stefnuskrá flokksins fyrir þess-
ar kosningar er meðal annars að
finna þetta hérna:
„Lífeyrismál landsmanna eru í
ólestri og lífcyrisréttindum mis-
skipt. Lífeyrissjóðir eru afar margir
og starfa eftir ólíkum regluin, auk
þess sem þeir eru misjafnlega í
stakk búnir til að tryggja sjóðfélög-
um lífeyrisréttindi. Alþýðuflokkur-
inn vill samræma og jafna rétt fólks
með því að koma á fót einum lífeyr-
issjóði fyrir alla landsmenn. Sjóð-
urinn verði deildaskiptur eftir
landshlutum. Hver deild starfi
sjálfstætt hvað varðar ávöxtun fjár-
ins og fjárfestingar, til dæmis i at-
vinnulifi, en deildirnar starfi saman
sem einn sjóður hvað varðar lifeyr-
isréttindi.
Taki Alþingi ekki þegar á þessu
máli, telur Alþýðuflokkurinn að
skjóta eigi málinu undir dóm fólks-
ins í landinu í þjóðaratkvæða-
greiðslu.“
FERMINGARTILBOD FRÁ «|| SAMSUIMG
Laugavegi 63 (Vitastígsmegin) — Simi 62 20 25
PD-70LS: Pottþétt feröatæki meö
inngang fyrir plötuspiiara, 5 banda
tónjafnara, 4 bylgjum, tvöföldu
kassettutæki, tvöföldum upptöku-
hraða, lausum hátölurum, 10 watta
mögnun o.fl.
PD-70LS
Fermingaverö kr.
15.960stgr