Alþýðublaðið - 11.04.1987, Side 15
Laugardagur 11. aprll 1987
15
póstsendum
íkosta)
V_____________/
ÍBCÖY)
Bankastræti 10 sími 13122.
(á horni Ingóifsstrætis).
FALLEGAR FERMNGARGJAFIRIKOSTA BODA
Kertakúlur
Þessar skemmtilegu kertakúlur, sem fást í Kosta
Boda, eru ákaflega sniðug vinargjöf. Þær eru til í
þremur litum, svörtum, hvítum og rauðum, og henta
vel fyrir allan aldur. Ekki spillir verðið því kúlan kostar
aðeins 390 krónur. í Kosta Boda er hægt að finna
margar skemmtilegar og nytsamar gjafir til fermingar-
gjafa, hvort sem á að gefa ódýrt eða í dýrari kantinum.
Stjakasett
Hjá Kosta Boda fást þessir sniðugu kertastjakar sem
seldir eru sem þrenna - þrír kertastjakar í stíl, misjafn-
lega háir. Þeir eru til hvítir og svartir og kosta aðeins
530 krónur - alveg tilvalin fermingargjöf. Hvers kyns
kertastjakar eru mjög í tísku núna og flestir vilja gjarn-
an lýsa upp heimilið með kertaljósum, enda gerir það
umhverfið mjög hlýlegt.
Snjóboltar og rósir
Það má segja að Kosta Boda sé þekkt fyrir fjöl-
breytt úrval af margs konar kertastjökum. Snjóboltarn-
ir eru alltaf jafnvinsælir, enda til í þremur stærðum og
á verði frá 550 krónum. Einnig fást þar rósin, klaka-
stjakinn og hvað allt þetta heitir, fjölbreytta úrvalið
af vinsælum kertastjökum frá sænska fyrirtækinu
Kosta Boda.
Englar með Ijósi
Þessir englar á myndinni eru alltaf vinsælir, hvort
sem er um jól eða páska, til fermingargjafa eða ein-
hvers annars. Englarnir eru falleg gjöf en einnig hafa
margir þá til að skreyta veisluborðin sín. Englarnir eru
til í nokkrum stærðum á 695-1.295 kr. Þeir eru hvítir
og þegar kveikt hefur verið á kertunum lýsist engillinn
upp.
Gluggaóróar
Þeir eru skemmtilegir, gluggaóróarnir sem fást í
Kosta Boda og lífga upp gluggana. Að vísu er hægt
að hengja þá hvar sem er en þeir sóma sér mjög vel
í gluggum. Gluggaóróarnir eru í mörgum misjöfnum
útfærslum og kosta 1.295 krónur. Einnig fást margar
fleiri gerðir af alls kyns skemmtilegum hlutum sem
prýða herbergi fermingarbarnsins.
Gluggahengi
Hér er annars konar hengi sem einnig fæst í Kosta
Boda. Þetta hengi kostar aðeins 495 krónur og er
hægt að hengja það hvar sem er en þó kannski helst
í gluggann. Margir unglingar vilja hafa sem minnst
af gluggatjöldum fyrir glugganum sínum en vilja þess
í stað hengja þar upp hina ýmsu skrautmuni. Hér
kemur því ágæt hugmynd að gjöf fyrir unglingana.
Sveppalampar
Þeir hafa á undanförnum árum vakið mikla athygli,
sveppalamparnir frá Kosta Boda, enda eru þeir frá-
brugðnir öðrum lömpum. Sveppalampana er hægt
að fá í nokkrum litum og stærðum og kosta þeir
3.905-5.510 kr. Sveppalampar eru kjörin gjöf fyrir
unga fólkið og henta alveg jafnt fyrir stráka sem stelp-
ur, enda sóma þeir sér hvar sem er.
BÖRN HEIMSINS
Þessar fallegu styttur, sem kaWast Börn heimsins því þær sýna börn frá ýmsum
þjóðlöndum, hafa vakið mikla athygli. Þær eru handmálaðar og handunnar af Lisu
Larson, þekktri, sænskri listakonu sem vakti meðal annars mikla athygli fyrir þessar
styttur. Hvert barn kostar 1.495 krónur en þessum styttum er tilvalið að safna. Börn
heimsins eru kjörin gjöf fyrir þá sem vilja listmuni og kunna að meta góða gjöf.
Börnin fást öll hjá Kosta Boda í Bankastræti.
Glæsilegar
styttur
Þær eru sannarlega
glæsilegar, ballerínurnar
hjá Kosta Boda, enda er
hér um sanna listmuni að
ræða frá hinu fræga postu-
línsfyrirtæki Kaiser. Bal-
lerínurnar eru til í nokkrum
stærðum og gerðum og
kosta frá 3.440 krónum.
Þær henta mjög vel til
fermingargjafa og að sjálf-
sögðu einnig við önnur
tækifæri þegar á að gefa
eitthvað sérstaklega van-
dað og fínt.