Alþýðublaðið - 11.04.1987, Side 20
20
Laugardagur 11. apríl 1987
Erill
og
ferill
Jón Sæmundur Sigurjónsson, í efsta sæti á A-listanum í Norðurlandskjördæmi vestra, skrifar
Þessi ríkisstjórn hefur markvisst
dregið fjármagn og ákvörðunar-
vald til Reykjavíkur:
Ef stjórnarflokkurinn
stóri hefði ekki tekið
upp á því að skipta
sér og fjölga líkt og
eyðnifruma, þá hefði
umræðan á síðasta
skeiði kosningabarátt-
unnar getað snúist
meira um þau alvöru-
vandamál sem blasa
við þjóðinni, heldur
en um það, hvort
ferðakostnaðar- og
skattsvikamál Alberts
Guðmundssonar hafi
verið nægjanlega
ómerkileg til að rétt-
Iæta hallærisleg við-
brögð og framkomu
Þorsteins Pálssonar í
því máli.
Jafnt vinir sem pólitískir and-
stæðingar Alberts Guðmundssonar
eru sammála um það, að Þorsteinn
Pálsson hafi gert of lítið og of seint
það sem hann ætlaði sér í þessu
máli. Það er langt síðan að meint
misferli Alberts lágu ljós fyrir án
þess að nokkuð væri aðhafst gegn
honum. Það var því greinilegt að
Sjálfstæðisflokkurinn svaf á mál-
inu og hafði alla tilburði til að vilja
sópa því undir teppið. Viðbrögðin
komu því mjög á óvart og eins og
þau voru viðhöfð gat fólk ekki
komist hjá þvi að finnast þau lúaleg
að auki. Það er ástæðan fyrir hinni
miklu tilfinningaöldu, þar sem fólk
var óspart tilbúið til að heiðra
skálkinn. Svo geta menn deilt enda-
laust um það, hver hefur brenglaða
réttlætiskennd.
Ferill stjórnarinnar
Þótt fólk hafi þannig látið Sjálf-
stæðismenn draga sig inn í eins
konar bófahasar, verður ekki fram
hjá því litið, að þeir hafa allir setið
saman i ríkisstjórn undanfarin
fjögur ár og hljóta því að verða
dæmdir af verkum sínum. Þeir eru
því allir undir sömu sökina seldir,
þótt Sjálfstæðisflokkurinn sé
deildaskiptur um þessar mundir.
Minnisvarðar á ferli ríkisstjórnar-
innar eru m.a. þessir:
1. Það hefur kostað fólkið í land-
inu gífurlegar fórnir að greiða verð-
bólguna niður. Samt hefur meðal-
verðbólga þessa stjórnartímabils
verið yfir 27%. Ríkisstjórnin, Al-
bert og Þorsteinn, héldu niðri kaupi
og kjörum mest allt tímabilið.
2. Fjármálaráðherrarnir tveir
stóðu ekki i stykkinu. Albert, sem
sagan segir að vilji gera allt fyrir
alla, lét verkafólk og opinbera
starfsmenn vera mánuð í verkfalli,
samdi svo og tók kauphækkunina
af fólkinu daginn eftir með gengis-
fellingu. Þorsteinn rekur svo ríkis-
búskapinn í 10 milljarða góðæri
með 6 milljarða halla. Hver væri
hallinn hjá honum í venjulegu ár-
ferði?
3. Þessi ríkisstjórn hefur mark-
visst dregið fjármagn og ákvörðun-
arvald til Reykjavíkur. Hvorugur
stjórnarflokkurinn hefur sýnt í
verki, að þeir hafi áhuga á að flytja
völd heim í héruð. Jöfnunarsjóður
sveitarfélaga hefur þvert á móti ver-
ið skertur stórlega, þannig að svig-
rúm sveitarfélaga til athafna
minnkar verulega til hagsbóta fyrir
ríkissjóð.
4. Skattakerfið er í rúst. Fyrir-
tækin græða meðan launþegar
blæða. Loforð um afnám tekju-
skatts af almennum Iaunatekjum
var svikið, en í stað þess var sýndar-
plagg um staðgreiðslukerfi skatta
launamanna lagt fram á síðustu
vikum þingsins. Samkvæmt því
áttu skattar hátekjumanna að
lækka, en skattbyrði hins almenna
6. Nú er 55% af tekjum lífeyris-
sjóða skellt á niðurgreiddu verði í
húsnæðislánakerfið. Húsnæðis-
verð hækkar og étur lánahækkun-
ina upp. Engar ráðstafanir voru
gerðar til að lækka útborgun eða
aðrar þær ráðstafanir er héldu hús-
næðisverði skaplegu. Öfugt við
Viðreisnarstjórnina, sem lánaði
ekki til hálaunafólks, þá lánar þessi
stjórn ekki til láglaunafólks. Það
fær neitun. Byggingasjóður verka-
manna er sveltur.
7. Litið er á kvótakerfi í sjávarút-
vegi sem framtíðarlausn. Allt er
njörvað niður skv. úreltum aflatöl-
um frá fyrri árum. Kvótakerfið er
afleiðing af offjárfestingum Fram-
sóknarmanna í fiskveiðiflotanum.
Hundgamlir kláfar eru seldir á upp-
sprengdu verði ef þeim fylgir kvóti,
meðan eðlileg endurnýjun getur
vart farið fram á flotanum nema úr-
elda skipin.
8. Kvótakerfi er líka komið á í
landbúnaði. Áratugalanga og
ranga landbúnaðarstefnu átti að
leiðrétta í einu vetfangi, með skelfi-
legum afleiðingum fyrir bænda-
fólk. Þessi ríkisstjórn er að gera
bændur að fátæklingum. Eyðibýla-
stefna er það heiti, sem bændur
sjálfir hafa valið þessari stefnu rík-
isstjórnarinnar. Nú senda þeir
henni margir sínar hinstu kveðjur.
9. Ríkisstjórnin ber ekki einu
sinni gæfu til að koma sér saman
um lausn í veigamiklum málum,
sem henni finnst sjálfri viðunandi.
Lausn Útvegsbankamálsins var á
þann veg, sem Seðlabankinn kall-
aði versta allra. Stjórnarflokkarnir
gátu ekki sameinast um annað en
verstu lausnina í þessu sem öðru.
Útvegsbankinn var vandamál vegna
þess, að áhættufé Hafskips-
spekúlanta endaði sem skellur á
þjóðinni. Eftir Kröfluævintýrið er
þetta i annað sinn sem Sjálfstæðis-
menn og Framsóknarmenn velta
Lausn Útvegsbankamálsins var á
þann veg sem Seðlabankinn kallaði
versta allra.
Þeir eru því allir undir sömu sök-
ina seldir, þótt Sjálfstœðisflokkur-
inn sé deildaskiptur um þessar
mundir.
Þessi ríkisstjórn hefur aðeins
klippt á kjörin og fengið góðœri í
happdrœttisvinning.
launamanns að hækka. Nú á milli-
þinganefnd að endurvinna plaggið
og málið verður athugað og endur-
skoðað fram á haust.
5. Enn situr við sama misréttið í
lífeyrismálum. Ekkert gerði Albert
og ekkert gerði Þorsteinn. Raun-
vextir kratanna, seni íhaldið af-
skræmdi upp í vaxtaokur, björguðu
fjárhag lífeyrissjóðanna og lögðu
grunninn að fjármögnun húsnæð-
iskerfisins. Alexander hefði átt að
berjast meira á móti raunvöxtum á
sínum tíma. En hann tók þátt í að
afnema vísitölubindingu launa án
þes^ að gera nokkuð fyrir ber-
skjaldaða húsbyggjendur um leið.
stórkostlegum skuldabagga yfir á
þjóðarbúið. Ábyrgð ber enginn.
10. Eftir þessa rikisstjórn liggja
engin stórvirki, sem hönd á festir.
Stórframkvæmdir á við Breiðholts-
áætlun, Búrfellsvirkjun, togara-
væðingu eða stóriðnað eru og hafa
hvergi verið á dagskrá. Ekkert.
Þessi ríkisstjórn hefur aðeins '
klippt á kjörin og fengið góðæri í
happdrættisvinning, sem borgað
hefur niður gengið og verðbólguna.
Ef ytri skilyrði versna, erum við
mjög illa undirbúin til að mæta
þeim erfiðleikum sem að okkur
kunna að steðja. Það er arfur þess-
arar ríkisstjórnar.