Alþýðublaðið - 03.10.1987, Síða 7
Laugardagur 3. október 1987
7
„Við áttuðum okkur ekki á því fyrr en
Ríkharður var búinn að skora þrjú mörk og
staðan orðin 3:0.“
„Ef ég ætti að nefna 2 menn, væru það
Ríkharður og Púskas."
Viðtal:
Þorlákur Helgason
Svona voru ummælin um
Rikka. Hann varð aldrei at-
vinnumaður úti í hinum stóra
heimi. Skaginn var honum
allatíð næg landspilda. „Við
vorum að byggja upp lið á
Akranesi og það var okkur
mikið metnaðarmál — einnig
fyrir sveitarfélagið. í dag
myndi ég hins vegar ekki
depla auga, ef mér byðist at-
vinnumennska og tilboð eins
og ég fékk.
En ég veit ekki, hvort það
skiptir máli, að ég varð ekki
atvinnumaður í knattspyrnu.
Ég hef haft það svo gott um
ævina.“
Þannig farast Rlkharði
Jónssyni, málarameistara,
orð ( dag. Og hvar á spjall
okkar að fara fram — nema
uppi á Skaga. Hann á auðvelt
með að rifja upp árin, þó að
fjórir áratugir séu liðnir — og
gott betur. 1946 klæddist
Rikki fyrst landsliðsbúningn-
um. Það var lika fyrsti lands-
leikur íslands. Mótherjinn var
erkifjandinn á vellinum æ og
sið — Danmörk. Rikki var að-
eins 16 ára. Og í eina skiptið
varamaöur.
„Um morguninn var ég i
aöalliðinu — en síðdegis var
ég kominn út úr þvi. Ég geri
mér engar grillur út af þvi. Ég
hafði auðvitað engan mæli-
kvarða á sjálfan mig, og hinir
voru allt frambærilegir spilar-
ar.“
En það átti ekki við Rikka
að dvelja á varamannabekk.
Næstu árin, reyndar áratug-
inn, volgraði hann ýmsum
markmanninum og skoraði
flest mörk allra. 1959 voru
(Dau orðin 13 með landslið-
inu.
Hvernig stendur á þessum
mikla áhuga á knattspyrnu á
Akranesi?
„Ég veit það ekki,“ segir
Rikki, „en Axel Andrésson,
íþróttaleiðbeinandi, kom upp
á Skaga ár eftir ár. Við strák-
arnir vorum mikið spenntir (
hvert sinn er von var á
Andrési uppeftir. Enginn
gerði iþróttum eins mikið
gagn á þessum árum og
Axel, held ég.“
Axel þjálfaði mörg herrans
ár frá 1933. Af gömlum mynd-
um má sjá að gróska hefur
verið I (þróttalifi á Skaganum
þessi ár. Það var þó ekki fyrr
en 1946 sem kapplið af Akra-
nesi tók þátt i meistara-
flokkskeppni i knattspyrnu.