Alþýðublaðið - 03.10.1987, Qupperneq 17
Laugardagur 3. október 1987
17
Er ekki upplagt að hafa dálk í
blaðinu, þar sem komið er til
móts við óskir lesenda. Öll-
um liggur eitthvað á hjarta.
Og margir liggja á einhverju
hjartans máli, sem ekki hefur
fengist svar við. Er þá nokk-
uð eðlilegra en leita svara á
þessari síðu laugardagsblaðs
Alþýðublaðsins: SPURT
OG SVARAÐ.
Skrifaðu okkur eða hringdu i
sima 681866 (91). Heimilis-
fangið er:
Alþýðublaðið
— laugardagur —
Ármúla 38,
108 Reykjavík.
Við ýtum úr vör með sþurn-
ingu um hjúskap — eða öllu
heldur hjúskaparslit — og
leitum svara við henni.
Kona sem stendur í skiln-
aði spyr, hvernig mál gangi
fyrir sig í kerfinu, frá því að
annar hvor aðili hefur farið
fram á skilnað að borði og
sæng.
Sifjadeild dómsmálaráðu-
neytisins fer með umboð
ráðuneytis og gefur út skiln-
aðarvottorð. Til þess að hægt
sé að gefa út vottorð verður
að liggja fyrir samkomulag
um:
— forræði yfir börnum og
umgengnisrétt þess aðila
sem ekki hefur forræði,
— lífeyri maka, ef aðilar
semja um slíkt fyrir þann
tima, sem skilið er að
borði og sæng.
SMÁFRÉTTIR
Besti sjávarrétturinn 1987
reyndist vera „Innbakaðar
fiskkökur sækonungsins".
Það var a.m.k. niðurstaða
dómnefndar i verðlauna-
keppni sem Marska á Skaga-
strönd efndi til, en úrslit voru
kunngerð nýlega. Höfundur
verðlaunaréttarins er Margrét
Þórðardóttir Reykjavík.
Staðarskáli í Hrútafirði
kynnir hangið lambakjöt af
nýslátruðu um þessar mundir
i samvinnu við Markaðsnefnd
landbúnaðarins og ferðaskrif-
stofuna Ferðabæ. Matargest-
um gefst ennfremur kostur á
að spreyta sig á verðlauna-
getraun og rneðal vinninga
eru utanlandsferð og 30 kg af
lambakjöti frá Jóni bónda á
Skarfhóli. Mun hér vera um
að ræða kjöt umfram kvóta
sem honum var nýlega dæmt
í undirrétti og talsvert var
fjallað um í fréttum í sumar.
Vetrarstarf aldraðra
er nú hafið á átta stöðum (
Reykjavík. Starfið er nánar
kynnt í fréttabréfi sem öllum
ellilífeyrisþegum í borginni
hefur verið sent. Meðal ann-
ars er fjölbreytt námskeiða-
hald á dagskrá félagsmið-
stöðvanna í vetur og ellilífeyr-
isþegar geta þar menntað sig
f smiðum, teikningu og
ensku svo nokkuð sé nefnt.
Til viðbótar við þær átta fé-
lagsmiðstöðvar aldraðra sem
nú eru í notkun, er sú níunda
væntanleg i gagnið seint í
þessurn mánuði. Þessi nýja
félagsmiðstöð verður til húsa
í Bólstaðarhlíð 43.
^^purt og svarað
Þá verður og að vera geng-
ið frá:
— eignaskiptum, og
— meðlagi.
Ráðuneyti gefur ekki út
skilnaðarvottorð fyrr en sam-
komulag liggur fyrir um fram-
angreind atriði.
Flestir leita til lögfræðings
til að ganga frá sínum mál-
um. Langur tími getur liðið
frá samvistarslitum og þar til
skilnaðarvottorð liggur fyrir.
Einkum getur dregist á lang-
inn, ef deilur eru um forræði
yfir börnum. Þá verða barna-
verndarnefndir viðkomandi
sveitarfélags að fjalla um og
komast að niðurstöðu. Með-
albiðtími hjá nefndum er ekki
ósennilegur V? ár, og er það
mörgum óskiljanlega langur
tími.
Að sögn starfsmanna félags-
málastofnunar á höfuðborg-
arsvæðinu er fyrst og fremst
um að kenna manneklu á
stofnunum.
Meðan umsögn barnavernd-
arnefndar liggur ekki fyrir,
getur annar aðili að því er
virðist, neitað að ganga að
óskum eða kröfum hins
aðila. Getur sá hinn sami lát-
ið lita út sem um sambúð sé
enn um að ræða (þó að aðilar
hafi sannanlega slitið sam-
vistir).
Konur sem í langflestum til-
vikum hafa lægri tekjur en
karlarnir, hafa að því er best
verður séð, orðið undir í
þessum málum. Um það höf-
um við vitnisburði til stað-
festu. Kona sem hafði sam-
band við okkur fannst að það
ætti að vera einhver hlutlaus
aðili í kerfinu, sem hægt
væri að leita til, þegar skiln-
aður er eini útgangur. Rakti
hún dæmi um það að konur
hafi gefist upp á lögfræðing-
um ... Önnur kona furðaði
sig á því, að ekki væri stofn-
aður þrýstihópur þeirra sem
verða útundan í málum af
þessu tagi. Úti i kuldanum
eru blessuð börnin, sagði
hún.
5uður\/eri og Hraunbergi
mm
Ertu í góðu formi?
Þarftu að fara í megrun?
/iltir fírrrrm/l ogm^Z^z
ilturótógaii tímWpWp
31 er flá iHU 'inn Wkþlqk
LÍKAM5IVEKT OG MEGKUH
Fyrir honur á öllum aldri. Flokkar sem hæfa öllum.
2.KERFI
FRAMHALD5FLOKKAR
Lokaðir flokkar. Þyngri tímar, aðeins fyrir vanar.
3.KERFI
RÓLEGIR TIMAR
Fyrir eldri konur, eða þær sem þurfa að fara varlega
4.RERFI
MEGRUHARFLOKKAR
aukaknom
5.RERFI
FYRIR UHGAR OG HRE55AR
Teygju - þrek - jazz.
Eldfjörugir tímar með
léttri jazz-sveiflu.
ttýjar perur í öllum fömþum
ávallt ífararbroddi
Morgun-, dag-og kvQldtímar -
Suðurveri, sími 83730 Hraunbergi, sími 79988