Alþýðublaðið - 24.10.1987, Blaðsíða 15
Laugardagur 24. október 1987
15
IÞROTTIR
Umsjón:
Halldór Halldórsson
Eru kaflaskipti i íslenskri
knattspyrnu?
Slgfrled Held
Guðnl Kjartansson
Fleiri landsleiki
er mál málanna
Það vakti athygli s.l. þriðjudagskvöld á gervigrasveilinum
þegar iandsliðið var að æfa fyrir síðasta leik sinn í Evrópu-
keppni landsliða að þessu sinni, sem er gegn Rússum i
ytra, — að strákunum var úthlutaður annar vítateigurinn
sem æfingarsvæði á meðan eitthvert fyrirtæki hafði allan
völlinn til umráða. Slík framkoma gagnvart landsliði ís-
lands er í hæsta máta móðgandi. Eftir frábæra frammi-
stöðu undanfarið og mikilvægi þess að undirbúningur fyr-
ir leikinn gegn Rússum takist sem best þá eiga strákarnir
skilið betra en þetta.
Alþýðublaðið hitti Guðna Kjartansson landsliðsþjálf-
ara að máli eftir æfinguna þar sem hann fylgdist með æf-
ingu hjá mfl KR. Guðni var spurður að því hvort honum
fyndist s.l. keppnisár marka einhver tímamót og þá með
hliðsjón af hinni góðu frammistöðu landsliðanna. Hann
hafðj þetta að segja:
„Óneitanlega er árangurinn nokkuð góður undanfarið.
En ég get ekki sagt að einhver sérstök tímamót séu geng-
in í garð. Það þarf verulegar breytingar á allri tilskipan i
málefnum landsliðanna til að svo geti talist. Ég er t.d.
hjartanlega sammála Sigga Held þegar hann talar um að
nauðsynlegt sé að lengja keppnistímabilið á íslandi.
Sjáðu KR-ingana hérna. Þeir eru á æfingu núna. Þessir
strákar gætu alveg eins verið að spila leik.
Varðandi landsliðið er alveg klárt að leikmenn bæta sig
ekki að neinu gagni nema að spila miklu fleiri landsleiki.
V.-Þjóðverjar léku fyrir skömmu gestaleik gegn Dönum
sem var í raun bara æfingarleikur fyrir leikinn gegn Wales
í Evrópukeppni landsliða. Þetta gerðu þeir bara til þess að
halda mönnum í keppnisformi. Það er ekki nóg að æfa
saman eingöngu, þótt það sé nauðsynlegt með, menn
bæta sig ekkert verulega á því. Það er leikjafjöldinn og
helst gegn sterkum andstæðingum sem skiptir mestu
máli.
Við eigum mjög frambærilegt landslið undir 21 árs og
Olympíuliðið hefur einnig staðið sig mjög vel. í þessum
liðum eru margir mjög efnilegir strákar sem myndu bæta
sig verulega frá því sem nú er fengju þeir aukna kennslu
og þá ég við virkilega kennslu í knattspyrnu plús marga
landsleiki. Það er málið.
Ef við tölum um félagslið eins og Liverpool, þá kemur
í Ijós að uppistaðan í þeirra æfingarkerfi eru leikir og aftur
leikir og það eru engir dútlleikir — það er spilað af fullum
krafti!“ Þetta hafði Guðni að segja.
Vonandi ber næsta KSÍ-þing gæfu til að marka róttæk-
ari stefnu i málefnum landsliða íslands til framdráttar
knattspyrnunni í landinu. Stefnu, sem kæmist alla leið
ekki bara á pappírinn.
Olík vinnubrögð
Undirbúningur allur hjá
handknattleiksiandsliði okkar
fyrir ólympíuleikana í Seoul að
ári var m.a. til umfjöllunar i síð-
asta helgarblaði Alþýðublaðs-
ins. Þar kemur fram í viðtali við
Jón Hjaltalín Magnússon for-
mann HSÍ að liður í undirbún-
ingi sé hvorki meira né minna
en 40 landsleikir á næstu ell-
efu mánuðum. Þetta er yfir-
þyrmandi þegar hafður er í
huga sá undirbúningur sem
landsliðið i knattspyrnu fær.
Þar er ólíku saman að jafna.
Maður hefur svona einhvern
veginn á tilfinningunni að gera
megi betur.
Stendur íslensk knattspyrna á vegamótum? Úrslit
síðustu leikja A-landsliðsins, undir stjórn V-Þjóðverjans
Sigfried Held, hefur vakið mikla athygli viða um Evrópu.
Hún er af sú tíð þegar landsliðið okkar sigraði leik með
löngu miliibili og þá voru svo sannarlega jól hjá
knattspyrnuunnendum. Undanfarið hefur verið mikið
um hátíðir, því frammistaða landans í Evrópukeppni
landsliða hefur farið fram úr vonum þeirra bjartsýnustu.
Jafntefli gegn Rússum og Frökkum og tveir sigrar yfir
Norömönnum.
Slik frammistaða hlýtur að
kalla á vangaveltur um hvað
sé raunverulega að gerast. Er
íslensk knattspyrna á hrað-
ferð upp á við eða er þetta
stundarfyrirbrigði?
Þáttur Sigga Held
Þótt svo að frammistaða
landsliðsins sé ekki óaðfinn-
anleg þá hefur margt snúist
til betri vegar undir rólegri og
yfirvegaðri stjórn Sigga Held.
Það er skoðun margra að
þetta sé bara rétt að byrja og
landsliðið eigi eftir að taka
mildum framförum. Held er
kominn til að vera og fái
hann tíma til að hrinda sínum
hugmyndum í framkvæmd
geta gerst góðir hlutir. — En
það er fleira sem kemur til.
Unglingalandsliðin
15. júlí 1980 skrifaði ég
grein í Dagblaðinu undiryfir-
skriftinni: „Unglingalandslið-
in eru púls íslenska A-lands-
liðsins," þar sagði m.a.:
„Miklar kröfur eru gerðar
til A-landsliðsins í keppni
gegn sterkum landsliðum. En
til þess að þær kröfur geti
talist raunhæfar verður KSÍ
að stuðla að því að yngri
landsliðsmenn njóti betri að-
stöðu en þeir hafa nú hvað
þjálfun og alla kennslu varð-
ar. — Unglingalandsliðin eru
jú sá nægtarsjóður sem A-
landsliðið tekur úr og hafi
verið lagt vel í þann sjóð og á
góðum vöxtum, er af ein-
hverju að taka.“
Sfðan þá hafa orðið miklar
breytingar til batnaðar varð-
andi unglingalandsliðin.
Starfræktur hefur verið
Knattspyrnuskóli KSÍ að
Laugarvatni núnatvö síðustu
arin og njóta unglingarnir þar
kennslu i öllum grundvallar-
atriðum góðrar knattspyrnu
ásamt ýmsu öðru sem kemur
þeim til góða siðar, en of
langt yrði upp að telja.
Unglinganefnd KSÍ undir
stjórn Helga Þorvaldssonar á
heiður skilinn fyrir að hrinda
þessu miklaverki í fram-
kvæmd árið 1986 og vonandi
er skólinn orðinn fast fram-
tíðarverkefni unglinganefndar
KSÍ. — Viðbrögð drengjanna
sem dvalið hafa í skólanum
eru mjög jákvæð á alla lund.
Það er ekki hvað sist
happasæl starfræksla skól-
ans svo og allur annar undir-
búningur hinna ungu lands-
liðsmanna á komandi tímum
sem eykur bjartsýni manna.
Öll undirvinna skiptir jú auð-
vitað miklu máli.
Heimamenn í sókn
Þó svo að atvinnumennirn-
ir okkar leiki stórt hlutverk i
landsleikjum þá þarf að vera
til staðar sterk sveit heima-
manna til að fylla þann hóp
og í leikjunum undanfarið
hafa þeir sýnt mjög góða
leiki og hafa í engu verið eft-
irbátar þeirra sem eru i
atvinnumennskunni. Þetta er
skemmtileg þróun og sýnir
okkur fram á að breiddin er
að aukast, en þessari þróun
þarf að fylgja fast eftir.
Boltinn er hjá KSI
Sigfried Held landsliös-
þjálfari hefur oft haldið því
fram aö lengja þurfi knatt-
spyrnutimabilið á íslandi ef
aukinn árangur eigi að nást.
Því f leiri sem leikirnir eru þvi
meiri möguleikar séu á því að
leikmenn bæti sig. Sama gildi
um landsiiðið. Landsieikjum
þyrfti að fjölga að mun, þvi eigi
landsliðsmenn að halda form-
inu þurfi stöðuga keppni gegn
sterkum andstæðingum. Það
veiti mönnum besta aðhaldið.
Knattspyrnuforustan hlýtur
að leggja eyru við orð lands-
liðsþjálfarans hvað þetta varð-
ar. Fróðlegt verður að fylgjast
með. Held hefur gefið linuna.
Boltinn hlýtur þvi að vera hjá
KSÍ.
Myndln er frí landsliðsæfingunnl s.l. þriðjudag. Það er stutt stund milll stríða, en Friðrik Friðrlksson markvörður vill ölmur halda áfram. Það eru
tvelr nýllðar i hópnum, pelr Rúnar Kristlnsson KR sem valinn var efnllegastl leikmaður I. delldar fslandsmótsins og hlnn snjalli KA-maður Þorvaldur
ðrlygsson. AR óskar nýliðunum góðs gengls. - AR-myndlr: HH.