Alþýðublaðið - 24.10.1987, Blaðsíða 22
22
Laugardagur 24. október 1987
Þau fyrirtæki sem stunda rannsóknir á geimvarnarvopnum meb framleiðslu i huga. vlnna náið
með yfirstjórn Bandarikjahers og hafa eigin striðsdeildlr sem mata Washington og Pentagon með
upplýsingum um hertæknlleg atriði. Langstærsti hluti þeirra fjármuna sem þingið samþykkir á
ári hverju til gelmvarnaráætlunarinnar rennur til vopnalramlelðendanna.
GULLÆÐI I
á þessum striðsútreikningum
þegar geimvarnaráætlunin er
annars vegar.
Eins og að aka bíl
Stórfyrirtækið TRW hefur
lagt mikla áherslu á uppbygg-
ingu stríðsdeildar sem matar
aðalgeimvarnastjórnstöð
Bandarikjahers í Huntsville,
Alabama á niðurstöðum sin-
um. Ég spurði Robert L.
Walquist, forstjóra geimvarn-
ardeildar TRW, hvort þetta
væri ekki hagsmunaárekstur;
að framleiðendur önnuðust
upplýsingar fyrir herinn um
varnir og stríðsmöguleika og
gæfu þeim ráðleggingar um
kaup á vopnaframleiöslu
þeirra? „Þeir ráóa hvað þeir
gera við þessar upplýsingar.
Herinn getur hent þeim í
körfuna ef honum sýnist
svo,“ svaraði Walquist.
Stríðsdeild TRW hefur haft
mikla samvinnu við evrópsk
fyrirtæki og borið saman
varnarkerfi og striðsleiki
þeirra. Sú spurning vaknar
óneitanlega, hvort striösleikir
fyrirtækjaog þrýstingur
þeirra á stjórnvöld um meiri
vopnaframleiðslu geti ekki
hreinlega komið af stað
kjarnorkustríöi.
Bob Jones er yfirmaður
stríðsdeildar TRW. Hann
segir við Alþýðublaöið:
„Geimvarnaráætlunin ertil aö
koma í veg fyrir kjarnorku-
strið, ekki til að koma því af
stað. En auðvitað er aldrei
hægt að útiloka slys. En þeir
litlu möguleikar mega ekki
koma í veg fyrir þróunina.
Þetta er eins og að aka bíl.
Keyri ég bíl á hraðbrautunum
I Kaliforníu? Já, ég geri það.
Get ég dáið við stýrið? Já, ég
get það. En, ek ég ekki eftir
hraðbrautunum engu að
síður? Jú, ég geri það. Ég ýti
hinum óhugnanlegu hugs-
unum til hliðar; ég veit af
þeim en læt þær ekki hindra
mig í að komast leiðar
minnar. Ef ég hins vegar
vissi, að ég gæti ekki farið út
á hraöbrautina án þess að
lenda I árekstri og tapa lífinu,
færi ég aldrei út á hraðbraut-
ina.“
Hvernig er
samningum náð?
Það skiptir fyrirtækin
miklu að ná samningum í
geimvarnarkerfinu. Aðalatrið-
in er að bjóða fram ódýra og
góða „vöru“. En það eru einn-
ig farnar aðrar leiðir. Stríðs-
deildir er ein leið aö þrýsta á
stjórnvöld. Gömul viöskipta-
tengsl skiptaeinnig miklu.
Fyrirtæki sem framleitt hafa
heföbundin vopn fyrir Banda-
ríkjaher áratugum saman
hafa bæði tæknilegan, fjár-
hagslegan og viöskiptalegan
GEIMNUM
forgang. Því var einnig stung-
ið að mér að þarna væri
hreppapólítík á ferðinni; þing-
menn ýmissa kjördæma og
fylkja berðust fyrir því á
göngunum í Washington DC
að „sín“ fyrirtæki fengju
samninga í geimvarnaráætl-
uninni. Kenneth W.
McCulles, deildarstjóri við
Hughes-verksmiðjurnar segir
beint út við Alþýðublaðið:
„Við reyndum mikið að
„lobba“ (þrýsta á stjórnvöld)
til að fá að rannsaka og fram-
leiða þau vopn sem til þarf á
lokastigi kjarnorkuárásar, en
það gekk ekki.“
Vara er vara
Að lokum má spyrja:
Finnst yfirmönnum þessara
stórfyrirtækja sem flestöll
teygja sig um gjörvallan
hnöttinn, ekki ógeðfellt að
lifa á framleiðslu tóla sem út-
rýma mönnum og jafnvel
mannkyninu? Hvernig tilfinn-
ing er það að vera sölumaður
dauðans? Þessum spurning-
um veigruðu menn sér við að
svara. Þeir menn sem ég
ræddi við, litu ekki á fram-
leiðslu sína sem dauðavopn.
Þeir héldu yfirleitt fast í þá
kenningu að vopnafram-
leiðsla væri til að tryggja frið.
„Við byggjum ekki vopn til að
drepa, heldur til að koma i
veg fyrir dráp,“ sagði einn
forstjórinn við mig. Það er
einnig sláandi hvernig vopna-
framleiðendur líta á vopn
eins og hverja aöra fram-
leiðsluvöru; þeir tala margir
hverjir um kjarnorkuvopn
eins og hverja aðra ryksugu
eða frystikistu. Vara er vara.
Það er allt og sumt. Og kaup-
andi er kaupandi. Stríð og
fjöldamorð eru einhvers stað-
ar hinum megin á hnettinum
eða í tölvulíkönum. Þá er
einnig eftirtektarvert, að
vegna hinnar geysilegu
stærðar fyrirtækjanna sem
velta tugum milljarða dollara
árlega, ber enginn siðferði-
lega ábyrgð á vopnafram-
leiðslunni. Deildarskiptingin
gerir það að verkum að. hver
er að fást við sitt í sínu
horni.
George F. Aroyan, forstjóri
geimvarnardeildar Hughes-
verksmiðjanna endurspeglar
þessi viðhorf vopnaframleið-
enda þegar hann segir við Al-
þýðublaðið: „Ég fæst við
vopnaframleiðslu, ekki við
stjórnmál. Það eru stjórn-
málamennirnir sem taka
ákvarðanirnar um framleiðsl-
una. Ég er ekki stjórnmála-
maður. Það er ekki minn
bisness. Ég hef aldrei haft vit
á pólítík. En ef viðskiptavin-
urinn biður um vöru, þá fær
hann vöruna."
NÆST: VÍSINDAMENNIRNIR
HELGARSJÓNVARP
Dagskrá Rikissjónvarpsins
Laugardagur 24. október
15.30 Spænskukennsla.
16.30 íþróttir.
18.30 Kardimommubærinn.
18.55 Táknmólsfréttir.
19.00 Smellir.
19.30 Brotiö til mergjar.
20.00 Fréttir og veður.
20.35 Lottó.
20.40 Fyrirmyndarfaðir.
21.05 Maður vikunnar.
21.25 Alþjóðl. matreiðslubókin.
21.45 Flying Pickets í Háskólab.
22.45 Þefararnir (Izzy and Moe)
00.15 Hundalíf.
Hundalif. Bandarísk biómynd frá
1980 meö Robert Foxworth og
Paula Prentiss i aðalhlutv.
Myndin segir frá lögreglumanni
sem er orðinn heldur leiður í
starfi sinu og leitar á náðir
Bakkusar en brátt kemur kona
sem kveikir eld í gömlum glæð-
um.
02.00 Útv.fréttir I dagskrárlok.
Dagskrá Stöðvar 2
Laugardagur 24. október
09.00 Með afa.
10.35 Smávinir fagrir.
10.40 Perla. Teiknimynd.
11.05 Svarta stjarnan.
11.30 Mánudaginn á miðnætti.
12.00 Hlé
14.35 Ættarveldið Dynasty.
15.30 Fjalakötturinn/Tintromman
17.45 Golf.
18.45 Sældarlíf.
19.19 19.19
20.00 íslenski listinn.
20.45 Klassapíur.
21.10 lllur fengur Lime Street.
22.05 Og bræður munu berjast.
00.20 Konan sem hvarf.
Konan sem hvarf. Þetta er end-
urgerð samnefndrar Hitchcock
myndar. Með aöalhlutverk fara
Angela Lansbury, Cybill Sheperd
og Elliott Gould.
02.00 Einkatlmar.
03.25 Dagskrárlok.
Sunnudagur 25. október
09.00 Kum, Kum, teiknimynd.
09.20 Paw, Paw, teiknimynd.
09.45 Sagnabrunnur.
10.00 Klementlna, teiknimynd.
10.20 Albert Feiti, teiknimynd.
10.45 Hinir umbreyttu, teiknim.
11.10 Þrumukettir, teiknimynd.
11.30 Heimilið.
12.00 Sunnudagssteikin.
12.55 Rólurokk.
13.50 1000 Volt.
14.15 Zaruela. Spánskt efni.
15.25 54 af stöðinni
15.50 Geimálfurinn Alf.
16.15 Heldri menn kjósa Ijóskur.
17.45 Um víða veröld.
18.15 Amerlski fótboltinn.
19.19 19.19
20.00 Ævintýri Sherlock Holmes
20.55 Nærmyndir.
Guðbergur Bergsson. Gaman
verður að sjá og heyra hvað
þessi vinsæli höfundur hefur að
segja.
21.30 Benny Hill.
21.55 Vísitölufjölskyldan.
23.30 Hjónabandserjur.
23.55 Þeir vammlausu.
00.50 Dagskrárlok.
A FJÖLUNUM
Sunnudagur 25. október
15.20 Voru guðirnir geimfarar?
17.00 Helgistund.
17.10 Sköpunarsagan.
18.00 Stundin okkar.
Stundin okkar. Umsjónarmenn
eru Helga Steffensen og Andrés
Guðmundsson. I þættinum eru
Hektor og Lúlli kynntir. Gestur
sem á heima í Bolungavik er
heimsóttur, einnig verður farið í
berjamó.
18.30 Leyndard. gullborganna.
19.00 Á framabraut.
19.50 Fréttaágrip á táknmáli.
20.00 Fréttir og veður.
20.35 Dagskrárkynning.
20.45 Heim I hreiðrið.
21.15 Maður er manns gaman.
21.45 Verið þér sælir, hr. Chips.
22.40 Hvalastrlðið
23.40 Meistaraverk.
23.50 Bókmenntahátlð ’87
00.10 Útv.fréttir í dagskrárlok.
ALÞÝÐULEIKHÚSIÐ
HÁDEGISLEIKHÚS
Eru tigrisdýr i Kongó?
Laugard. 24/10 kl. 13.00
Sunnud. 25/10 kl. 13.00
Laugard. 31/10 kl. 13.00
82 sýningar hafa verið á leik-
ritinu. En nú á að fara I alla fram-
haldsskóla landsins með verkið.
Alþýðuleikhúsiö er einnig að
æfa tvo einþáttunga eftir Harold
Pinter undir Leikstjórn Ingu
Bjarnason.
Einskonar Alaska I þýðingu
Jóns Viðars Jónssonar og
Kveðjuskál I þýðingu Sverris
Hólmarssonar. Áætlað er að
frumsýna I byrjun nóvember.
mm
ÞJÓDLEIKHÚSID
Frumsýnir Brúðarmyndina eft-
ir Guðmund Steinsson og var
frumsýning I gær föstudag. Leik-
stjóri erStefán Baldursson. Leik-
mynd Þórunn S. Þorgrimsdóttir.
Tónlist Gunnar Reynir Sveins-
son.
2. sýn. sunnud. 25/10 kl. 20.00
3. sýn. miðvikud. 28/10 kl. 20.00
4. sýn. föstud. 30/10 kl. 20.00
Rómúlus mikli laugard. kl.
20.00 síðasta sýning.
Yerma eftir Gerderico Garcia
Lorca. Laugard. kl. 20.00.
Tinna í hlutverki sínu i Yermu.
Litla sviðið Lindargötu 7 Bíla-
verkstæði Badda eftir Ólaf Hauk
Símonarson.
Sunnud. kl. 20.30 uppselt
leikfElag
REYKJAVlKUR
SÍM116620
Dagur vonar
Laugard. 24/10 kl. 20.00
Fimmtud. 29/10 kl. 20.00
Laugard. 31/10 kl. 20.00 takmark-
aður sýningafjöldi
Faðirinn: eftir August Strind-
berg
Sunnud. 25/10 kl. 20.30
Miðvikud. 28/10 kl. 20.30 fáar
sýningar eftir.
Þar sem Djöflaeyjan rís I leik-
gerð Kjartans Ragnarssonar eftir
skáldsögu Einars Kárasonar
sýnd I leikskemmu LR v/Meist-
aravelli.
Laugard. 24/10 kl. 20.00
Sunnud. 25/10 kl. 20.00
Æ Æ MIÐASALA
§JÍ 96-24073
Lgikfglag akurgyrar
Lokaæfing. Höfundur Svava
Jakobsdóttir
Leikstjóri: Pétur Einarsson
Leikmynd: Gylfi Gislason
Lýsing: Ingvar Björnsson
Frumsýning var I gær föstudag,
en þá var uppselt.
2. sýn. er I kvöld laugard. 24/10
kl. 20.30
3. sýn. 30/10 kl. 20.30
4. sýn. 31/10 kl. 20.30
Leikfélag Akureyrar frumsýnir
á annan I jólum Pilt og stúlku
eftir sögu Jóns Thoroddsens.
Þá er leikrit sem frumsýnt
verður I febrúar eftir Arthur Mill-
er, Horft af brúnni.
EIH leikhúsið sýnir Sögu úr
dýragarðinum I Djúpinu sunnud.
25/10 kl. 20.30.
Leikhúsið i kirkjunni sýnir Kaj
Munk sunnud. 25/10 kl. 16 og
mánud 26/10 kl. 20.30.