Alþýðublaðið - 16.12.1987, Síða 6

Alþýðublaðið - 16.12.1987, Síða 6
6 Mióvikudagur 16. desember 1978 sem snýr sjálfa sig niöur og hefur þó engan andstæðing nema eigin spegilmynd. Guðmundur Andri Thors- son sagði í sjónvarpi aö Kaldaljós væri „þjóðlegur fróðleikur". Hvað finnst þér um það? Hann sagði eitthvað á þessa leið. Mér fannst það ekki annað en gaman. Það að Islensk saga hafi I sér fólg- inn þjóölegan fróðleik er ekki nema gott mál og skemmti- legt. Og llka satt I Kaldaljósi. Hann sagði líka að þú sýndir kjark að þora að hafa ris i enda beggja helminga sögunnar. Fannst þér það út- heimta kjark? Ég man nú ekki hvað hann sagði nákvæmlega en skildi það þannig aö á einhverjum tlma hafi höfundar fælst að hafa ris I sögum. Ris i sögu kemur kjarki ekkert við, alls ekki, það tilheyrir byggingu hennar. í Kaldaljósi haldast tvö ris I hendur. Og ég tók á honum stóra mlnum þegar ég lauk við þessa byggingu. Á skáldsagnamarkaðnum vekur kannski tvennt athygli: margar konur og mörg Ijóð- skáld. Kanntu eínhverja skýr- ingu á þessu? Markaðurinn stjómast ekki af dulrænum öflum. Markaðs- öflin eru skýr og Ijós þótt á þeim sé stundum lltið geðs- leg skýring. En af hverju margar konur og mörg Ijóð- skáld? Þvl get ég ekki svarað nema kannskl I langri ritgerð og henni leiöinlegri. En mér finnst allt I lagi að menn átti sig nú á þvi, þegar þeir kasta mæðinni eftir hlaupin að konur sem senda frá sér bækur eru mun færri en karl- ar en þær hafa fengiö meiri athygli og hvort á þvi er dul- arfull skýring eða Ijós veit ég hreint ekki. Veistu, að ég held annars að þessi spurning sé efni í langan og fróölegan þátt I sjónvarpi. Þú ættir aö varpa henni aö ráðamönnum rlkis- útvarpsins og athuga hvort þeir kippist ekkl við. Þeir hafa á þessu skoðun. Það er ég viss um. Og þetta með Ijóðskáldin. Ég veit ekki hvort sú fullyrð- ing stenst frekar en hin, ef vel er taliö. Ég held að minnsta kosti aö sú kenning sé röng, að Ijóðaskáld vindi sér yfir I skáldsagnagerð til að þjóna duttlungum for- leggjara eins og ég heyrði einhvers staöar. Sú skýring hlýtur að vera nærtækari að sum Ijóðskáld hafi eitthvaö aó segja sem þau telja aö komist frekar til skila I skáldsögu en Ijóði. Menn ættu aö (huga þá skýr- ingu og um leið nauösyn þess að sýna vinnandi fólki virðingu þegar um það er fjallað opinberlega. Rithöf- undar eru nefnilega vinnandi fólk þótt vinnutlmi þeirra sé ekki lögbundinn og einn og samur. Þaö ætti ekki að gleymast. Ég er oröin leið á sleggjudómum og virðingar- leysi gagnvart listinni. Þeir eiga ekki víð. Þeir eiga hvergi við. Þetta meö konurnar. Eiga þær kannskl auðveldara meö að komast að núna? Eru konubækur í tisku? (Nú brosir Vigdls dálltið glannalega og hellir kaffi I bollann sinn en býður mér ekki. Ég læt mér ekki segjast og fæ mér sjálfur). Nú ertu kominn enn inn á sjónvarpsþáttinn. Eitt er vlst að það er að minnsta kosti auðveldara fyrir konur nú en áöur. Jafn- réttisbarátta, barátta skáld- kvenna og ýmissa bóka- manna fyrir tilverurétti kon- unnar I bókmenntum hafa auðvitaö haft mikil áhrif. Þetta hefur verið bókmennt- unum ómetanlegt. Bækur kvenna og karla verða auð- vitað að vegast á sömu vog- arskálum. Og trúum þvl að það sé gert. Vonum það. En kannski ættu þeir sem stjórna vogarskálunum aö svara svona spurningum. Já, ég held að þeir ættu bara aö gera það. Og varðandi konubækur! Æi, ég skil bara ekki orðiö. Og svo skil ég ekki tlskuna heldur. Og núna skil ég ekki orðið karlabók. Og það sem meira er, ég kæri mig ekkert um að skilja svona orð. Mér finnast þau beinagrindur og mér leiðast beinagrindur. Vigdís, við erum vist af fyndnu kynslóðinni, eða svona aftarlega á henni. Erum við af henni? Ertu viss? Það hef ég heyrt. En þú ert samt ekkert fyndin... Er ég ekkert fyndin? Ég meina, þú ert frekar alvarlegur rithöfundur. Þér er mikið niðri fyrir. Sko, ég hef aldrei heyrt um heila kynslóð sem hefur eitt- hvert eitt sérkenni. Það er bara misskilningur. Og þess vegna hefur engin kynslóð rithöfunda rottað sig saman og ákveöið leynilega að vera fyndin. En svo er þaö óllkt mál að sumir rithöfundar nota fyndnina að vopni og tekst vel. Auðvitaö skrifar enginn til lengdar fyndninnar vegna. Það væri yfirborös- mennska og stöðnunin fylgir henni. Ég trúi ekki á yfir- borðsmennsku. En vittu eitt. Að ef fólki finnst texti höf- undar fyndinn, þá er það bara gott, kannski höfundi hafi þá tekist aö hlæja sig inn á les- endur. Það er ekki öllum lagið. Fyndnin er lúmsk. Menn ættu ekki að gera lltiö úr þeirri list. Alvarlegir rithöf- undar eru oft fyndnir. Þúsund dæmi sanna það. Og þeím er llka oft mikið niðri fyrir. Önn- ur þúsund dæmi sanna það. Ég er ekki fyndin nema tvisvar I viku. Og það er llka allt I lagi. En þó svo sé þá vonast ég til að fólk finni til húmors Grlms. Ég geri þaö. Það geri ég lika... En samt sagðirðu áðan aö ég væri ekkert fyndin. Ég meinti það ekki þannig. Þú ert mjög fyndin. (Nú verður dálltiö vand- ræðaleg þögn. Við fáum okk- ur bæði meira kaffi, ég helli I fyrir Vigdfsi, og viö kveikjum I enn einni slgarettu. Vigdls blæs reyknum þóttalega út I loftió og fer svo aö hlæja.) Vigdís, viltu lýsa dæmi- gerðum rithöfundardegi þínum? Ég hef aldrei lifað dæmi- gerðan dag. Þaö er ævinlega eitthvaó I hverjum degi sem kemur á óvart. Og dæmigerð- ur rithöfundadagur minn er ekki til. Stundum skrifa ég eins og skepna I marga daga samfleytt og án þess að sofa og stundum skrifa ég ekkert. Ekki staf. Ekki punkt. Svona verö ég að haga þessu af þvl aó ég er engin reglumanneskja og hef aldrei getaö veriö þaö hvernig sem ég hef reynt. Eiga rithöfundar að hafa sérstakt hlutverk, eins og tré- smiðir smíða og strætóbíl- stjórar aka okkur á milli staöa? Eða eru kannski rit- höfundar mest að skemmta sjálfum sér? Rithöfundar eiga ekki neitt I þessum skilningi. Þeir ákveða þetta meö sjálfum sér um leið og þeir skemmta sjálfum sér meö skrlfum sln- um þvl það hljóta þeir að gera, jafnvel þótt skriftirnar séu þeim kvöl stundum, svo skringilegt sem það kann að virðast. Sumir rithöfundar segjast eiga erindi við fólk, aörir ekki. Ég virði hvort tveggja. Ég vil eiga erindi við fólk og skipa mér á bekk þeirra sem smlða báta, brýr og hús og þeirra sem aka fólkl milli staöa, verða erind- ismaður. Ætli það geti ekki veriö? Ertu að spurja mig? Nei. Til hvers ertu þá að skrifa? Ég myndi sennilega fá bágt fyrir svarið við þessari spurningu ef þetta væri próf. Svarlð er nefnilega hvorki tor- rætt né merkingarþrungiö. Það er einfalt. Eg skrifa fyrir mig og aöra. Og mér er það nóg ástæða. Eg hef oft sagt að mér finnist ég vera heppin aö fá að vinna við það skemmtileg- asta sem ég geri, þvl um leið verður vinnan leikur og hvað er hægt að hugsa sér betra? Ég vildi óska að fleiri fengju sllk tækifæri. Viðtal: Elrlkur Brynjólfsson. Mynd: Róbert. Ég nenni ekki að vera með neinn væl en ég held að fáir rithöfund- ar á íslandi lifi á skrifum sinum. Marglr reyna en fáir geta það. Ég reyni.

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.