Alþýðublaðið - 16.12.1987, Blaðsíða 7

Alþýðublaðið - 16.12.1987, Blaðsíða 7
Miövikudagur 16. desember 1978 7 BÓKAFRÉTTIR Einar Kárason magn og segulmagn, Ijós, liti, hljóöiö, tölvur og raf- eindatækni. f hluta Efnisins er fjallað um atóm og sam- eindir, breytileika ásýnd efn- isins, kjarnorkuna, efnabreyt- ingar, frumefnin og lotukerf- iö, málma, kolefnissambönd og efnafræðinga að störfum. Æviminningar Emils Björnssonar „Litrlkt fólk“ annaö bindi æviminninga Emils Björns- sonar er komin út hjá Erni og Litrik fólk. Örlygi. Fyrra bindið, „Á mis- jöfnu þrlfast börnin best“ kom út í fyrra. í formálsorðum segir séra Emil m.a. „Þessi bók geymir minningar frá fjóröa og fimmta tug tuttugustu aldar á íslandi. A þeim tima uröu mestu þáttaskil I sögu lands og þjóðar. Þá var kreppa, her- nám, heimsstyrjöld og iýð- veldisstofnun I brennidepli. Þá var llfskjara- og llfsháttar- bylting. Nýfrjálsri þjóð opn- aðist ný veröld I viðsjálum heimi og kalt strlð tók viö af heitu.“ Höfundur helgar eiginkonu sinni, Álfheiði L. Guðmundsdóttur bókina. Um káputeikningu sá Sigurþór Jakobsson. Bókin var prent- uð I Prentstofu G. Benedikts- sonar Önnubók Isafold hefur gefið út bók- ina „Önnubók" eftir Fynn I þýðingu Sverris Páls Erlends- sonar. í bókinni „Kæri herra guð, þetta er hún Anna“, segir Fynn frá kynnum sinum af Önnu, óvenju einlægu og hreinskilnu barnl. Þegar Anna lést, aðeins sjö ára gömul, lét hún lltið eftir sig liggja nema minninguna um tilvist slna. Þó hafói hún safnað saman I nokkra skó- kassa ýmsu dóti sem hún vildi varðveita. Þar á meðal voru niöurstööur athugana hennar, ýmsar hugleiðingar og svolltil sagnabrot. ( „Onnubók" leyfir Fynn les- endum að njóta með sér broti af þessum handritum. I frétt frá forlaginu segir að „Kæri herra guð, þetta er hún Anna“ og „Önnubók" séu ekki barnabækur ( venjuleg- um skilningi. Hins vegar séu þetta bækur um barn og það geturverið allt annað mál. „Söngur villiandarinnar og fleiri sögur“ nefnist smá- sagnasafn eftir Einar Kára- son sem Mál og menning hefur nú gefiö út. Þetta er I fyrsta sinn sem Einar sendir frá sér smásögur. „Söngur villiandarinnar" geymir sjö sögur sem allar , gerast I Islenskum nútlma. í frétt frá forlaginu segir m.a. að hér séu á ferö fjölbreyttar og oft kostulegar frásagnir af furðulegu hvunndagsfólki og neyðarleg atvik úr hinu dag- lega llfi eru gjarnan látin bregða Ijósi yfir ævi og per- sónur þeirra sem fyrir verða. Til að mynda þegar frændi frá Vesturheimi heimsækir gamla landið kemur mismun- andi innræti skyldmennanna I Ijós, minni spámaður lýsir sérkennilegu samfélagi mis- skilinna snillinga sem leitað hafa skjóls I þorpi úti á landi, drengur missir fóstru slna en finnurekki sorgina, ein sag- an er saga um sögu. Atburða- rásin snýst um handrit að bók sem geymir llfssögu utangarðsmanns. Utangarðs- menn eru einnig á ferö I ann- arri sögu og kynnast lesend- ur þá heimi málgefinna glæp- ona og geggjara. „Söngur villiandarinnar og fleiri sögur" er 172 bls. að stærð, prentuö I Prentstofu G. Benediktssonar en Teikn sá um hönnun kápu. Efni og orka. Efni og orka „Efni og orka“ I bóka- flokknum „Heimur þekking- ar" er komin út hjá Erni og Örlygi. BÓkin er eftir Robin Kerrod og Neil Ardley, þýð- endur eru Ólafur Halldórsson og Egill Þ. Einarsson. „Efni og orka“ rekur vls- indauppgötvanir allt frá þvl að menn tóku að hagnýta sér eldinn, til gulIgeröarlista mið- alda, könnunar geimsins, þess þegar atómið er klofiö og örtölvubyltingar nútlmans. Bókinni er skipt I tvo hluta. I hluta Orkunnar er fjallað um eðli orkunnar, hita, kulda, raf- Kjörbók Landsbankans-Góð bók ívrir bjarta framtlð L1“

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.