Alþýðublaðið - 16.12.1987, Blaðsíða 21
Miðvikudagur 16. desember 1978
21
BÓKMENNTIR
Sigríður Tómasdóttir
skrifar
BÓK UM MÓÐURÁST
Álfrún Gunnlaugsdóttir:
Hringsól
Mál og menning 1987.
Þriðja skáldsaga Álfrúnar Gunn-
laugsdóttur er komin út. Áður útkomn-
ar bækur hennar „Af manna völdum"
og „Þel“ vöktu báðar verðskuldaða at-
hygli fyrir vönduð vinnubrögð.
Sá sem væntir jafn vandaðra vinnu-
bragða frá hendi Alfrúnar verður ekki
svikinn af nýjustu bók hennar „Hring-
sól“. Hún fjallar í sjálfu sér ekki um
svo stórkostlega atburði, heldur er
efnismeðferðin svo einstök að hún
skipar bókinni í flokk með bestu bók-
menntum sem undirrituð hefur lesið.
„Hringsól segir frá ævi konu. Hún
fæðist i ótilteknu þorpi við sjó. Vegna
erfiðleika föður hennar er hún send í
fóstur til efnafólks sem reynist ekki
ekki illa í veraldlegum efnum. Það
fæðir hana og klæðir og veitir henni
húsaskjól. Þó ræður efnafólkið ekki
við að gefa henni það sem hún má
síst án vera — ástina. Ástleysið
stendur stúlkunni fyrir þrifum og mót-
ar allt lífsferli hennar. Aðalpersónan er
ekki sú eina sem þjáist af ástleysi
heldur á það jafnt við um aðrar per-
sónur sögunnar. Aðal ógæfuvaldurinn
í lífi fólks er því ástleysið og það er sú
þungamiðja sem allt snýst um.
í skáldsögunni er ekki um eiginlega
kaflaskiptingu að ræða. Sögunni er
skipt í fjóra hluta sem segja má að
hver um sig spanni í sundurtættum
brotum alla ævi konunnar. Ævi hennar
á hinum ýmsu timaskeiðum er þó
gerð skil I mismundandi heillegri frá-
sögn hlutanna fjögurra. Þannig segir
t. d. fyrsti hlutinn mest frá upphafinu
— komu konunnar til Reykjavíkur,
áhrifunum af nýja heimilinu og and-
stæðunni við það, fyrra lífi í föðurhús-
um í þorpinu við sjóinn. Þó má ekki
skilja ofangreint sem svo að æviatrið-
um í lífi konunnar sé raðað í tímaröð,
heldur er lesandanum miðlað af
ákveðnum minningum eða minninga-
brotum. Við þessi minningabrot er
bætt og aukið þangað til vitneskja
fæst um alla ævi konunnar að lokum.
Sögumaðurer konan sjálf sem lítur
yfir farinn veg, skynjar sjálfa sig að
utan en er jafnframt nálæg sjálf. Þessi
frásagnartækni hæfirefninu einkar
vel og gerir það að verkum að endur-
minningarnar virka fyrst og fremst á
skynjun, þær eru hugblær og tilfinn-
ingar frekar en raunverulegir atburðir.
Sem dæmi um þessa áherslu á tilfinn-
ingarnar má nefna að ósamræmis
gætir í minningu konunnar um dauða
móður hennar og þess sem faðir
hennar segir henni um þann atburð.
Konan í „Hringsóli" er mestmegnis
þolandi. Hún er send í fóstur þegar
hún er barn að aldri. Þar verður hún
að falla inn I fyrirfram ákveðið hlut-
verk sem fósturforeldrar hennar ætla
henni sem fósturbarni. Hún á sér ekki
tilverurétt sem einstaklingur í húsi
fósturforeldranna — er ekki elskuð
sjálfrar sín vegna heldur er ætlað það
hlutverk að vera skrautfjöður í hatti
fósturmóður sinnar.
í föðurhúsum nýtur hún ástar og
hlýju og þar er minningin og táknið
um móðurina — nesið sem minnti á
konu á líkbörum. í uppfóstrinu er hún
lokuð inni i húsi og hurðin á húsinu er
með læsingu sem minnir á miðalda-
kastala. Hún er fangi þessa húss
bæði í eiginlegri merkingu og óeigin-
legri. Húm má ekki yfirgefa það nema
til þess að fara í annað fangelsi —
skólann. Þar er kennarinn með „rán-
fuglsklærnar" I líki fangavarðar líkt og
fósturmóðirin heima fyrir.
Til að undirstrika þolanda hlutverk
konunnar I „Hringsóli“ er hún nafn-
laus til að byrja með. Flestar aðrar
persónur eru nefndar með nöfnum
strax í fyrsta hluta. Það kemur ekki í
Ijós fyrr en seinna að hún gengur und-
ir nafninu Bogga. Því næst verður
lesanda Ijóst að pabbi hennar hefur
kallað hana Ellu. Það er ekki ívrr en
konan brýst út úr einangruninni í
húsinu við Tjörnina að klofinn per-
sónuleiki hennar sameinast og hún er
nefnd fullu nafni. Gælunöfnin mynda
þannig eina heild þegar konan finnur
þann sem hún heldur vera stóru ást-
ina í lífi slnu, Knút.
í húsinu við Tjörnina hrjá innilokun
og sambandsleysi fbúa þess. Sam-
skipti annars fólks og íbúana eru tak-
mörkuð. Einu samskiptin milli fólks
eru kynferðislegs eðlis þar sem hver
sem það getur reynir að svala öfug-
snúnum kenndum ófullnægðar ástar-
þrár. Allar persónur sögunnar eru að
leita að ástinni — hringsóla í kringum
hana er fæstar finna hana. Aðalpers-
ónan hélt um stund að hún hefði
höndlað hana, en glatar henni og er
færó aftur í húsið til þess eins aö vera
e. k. peð í valdatafli heimilisins sem
byggt er á kynferðislegum grunni.
Þessari eilífu leit mannsins að ást-
inni eru gerð góð skil í bók Álfrúnar
Gunnlaugsdóttur. Það má deila um
hvort við finnum hana eða hvar. Eða
hvort hún er fólgin í sorginni og treg-
anum því hann getur enginn tekið frá
okkur. „Hringsól" gefurengin ótvíræó
svör. Þó endar aðalpersóna verksins
sína ævireisu með að takast á hendur
för til átthaganna — upphafsins —
móðurskautsins í þorpinu við sjóinn.
Það má því lesa það út úr verkinu að
móðurástin sé sterkust ef annars
nokkra ást sé um að ræða í þessu
jarðvistarróli.
Sigriður Tómasdóttir
Höf. er háskólanemi.
BÓKAFRÉTTIR
Nýir eftirlætisréttir.
Eftirlæti
fimmtíu
íslendinga
Út er kominn hjá Vöku-
Helgafelli ný bók sem ber
titilinn „Nýir eftirlætisréttir".
Er hér um að ræða fimmtíu
mataruppskriftir sem fengnar
hafa verið frá fimmtíu þjóð-
kunnum íslendingum. Öll
hafa þau valið til bókarinnar
rétti sem þau hafa sérstakt
dálæti á.
Fyrir sex árum kom út bók
svipað uppbyggð, „Eftirlætis-
rétturinn" og naut mikillavin-
sælda. Því þótti ástæöa til,
segir í frétt frá forlaginu, að
leita aftur fanga meðal
þekktra samferðamanna okk-
ar. Ennfremur segir I fréttinni
að „Nýir eftirlætisréttir" sé
bók fyrir alla þá sem hafa
gaman af að búa til góðan
mat, ekki síður en fyrir þá
sem hafa áhuga á að kynnast
betur samtímamönnum sín-
um.
Klukkuþjófur-
inn klóki
Bókaútgáfan Vaka-Helga-
fell hefur gefið út nýja bók
eftirGuðmund Ólafsson rit-
höfund og leikara, sem hlaut
íslensku barnabókaverðlaun-
in í fyrra fyrir bók sína „Emil
og Skundi".
Nýja bókin heitir „Klukku-
þjófurinn klóki“ og segir frá
hópi af hressum strákum i
kaupstað á Norðurlandi. Þeir
lenda í ýmsum ævintýrum,
eiga í útistöðum við aðra
strákahópa og hrella full-
orðna fólkið með ýmsum
uppátækjum. Guðmundur
lýsir hversdagsleikanum svo
hann umbreytist í spennandi
ævintýraheim. Afmælisveisla
umbreytist í atómtertustyrj-
öld og heil þjóðmenning
sprettur upp í kofaborginni.
Bókin er 128 bls. prentuð
hjá Prentstofu G. Benedikts-
sonar í Kópavogi og bundin í
Bókfelli hf.
Guðmundur Ólafsson
Klukkuþjófurinn klóki
FAGMENNIRNIR
VERSLA
HJA OKKUR
Því aö reynslan sannar að
hjá okkur er yfirleitt til
mesta úrval af vörum til
hita* og vatnslagna.
BURSTAFELL
byggingavöruverslun
Bíldshöfða 14
sími38840