Alþýðublaðið - 21.05.1988, Page 3
Laugardagur 21. maí 1988
3
FRÉTTIR
Upplýsingar um gjaldeyrisúttekt „Svarta miðvikudaginn“:
SEÐLABANKINN
RAUF ÞÖGNINA
3 aðilar tóku út
Seðlabankinn er bæöi formföst og staðföst stofnun, a.m.k. gjaldeyris-
eftirlit bankans sem tekur ekki mark á óskum ráðherra nema þær séu
skriflegar.
meira en 1 milljón.
Seðlabankinn útskýrir
þann drátt sem orðið
hefur á afhendingu
skýrslunnar.
Gjaldeyriseftirlit Seðla-
bankans sendi Jóni Baldvin
Hannibalssyni í gær yfirlit
yfir þá aðila sem tóku meira
en 1 milljón króna þrjá síð-
ustu daga fyrir gengisbreyt-
ingu. Samkvæmt tölvuskrám
eru aðilarnir 243. Farið er
með nöfn þeirra sem trúnað-
armál, en samkvæmt heim-
ildum blaðsins verður ekki
séð á listanum að um óeðli-
lega úttekt hafi verið að
ræða hjá einstaka aðilum. í
fréttatilkynningu útskýrir
Seðiabankinn þann drátt sem
orðið hefur á opinberun
þessara upplýsinga, en á
tímabili virtist sem bankan-
um væri óljúft að afhenda
þær ráðherra.
Það var á mánudagsmorg-
un sem Jón Baldvin Hanni-
balsson óskaði eftir því beint
hjá viðskiptabönkunum að
þeir gæfu upplýsingar um
gjaldeyrigviðskiptin næst á
undan gengislækkuninni.
Jón Baldvin hefur þessa vik-
una gegnt starfi viðskiptaráð-
herra i fjarveru Jóns Sigurðs-
sonar sem sat aðaifund
OECD. Samkvæmt fréttatil-
kynningu frá Seðlabankanum
hafði viðskiptaráðuneytið
ekki samband við gjaldeyris-
eftirlit Seðlabankans fyrr en
síðla á þriðjudag og var þá
spurst fyrir um það hvaða
upplýsingar gjaldeyriseftirlit-
ið hefði um þessi viðskipti.
í fréttatilkynningunni segir
að forstöðumaður gjaldeyris-
eftirlitsins hafi svarað því, að
slíkar upplýsingar væru til-
tækar og væri gjaldeyrisefti r-
litið að vinna úr gögnum
málsins, en í samtalinu hafi
engin beiðni verið lögð fram
um afhendingu ákveðinna
gagnatil ráðuneytisins.
Það var siðan í kjölfar
frétta í fjölmiðlum sem
Seðlabankinn hafði samband
við viðskiptaráðuneytið og
óskaði eftir að fá skriflega
beiðni um hvaða upplýsingar
ráðherra óskaði eftir að fá.
SAMNINGAR
Á FÆRIBANDI
Óttinn viö bráöabirgöalög
hleypti miklu kappi í samn-
ingaviðræður i fyrrinótt og
var gengið frá kjarasamning-
um við fjölda félaga.
Samið var m.a. við málm-
og skipasmiöi, byggingar-
menn, Trésmíðafélag Reykja-
vikur, starfsmenn virkjana og
Rafiðnaðarsambandið.
Samningarnir fela í sér
meiri hækkun en bráða-
birgðalögin gera ráð fyrir.
\cixtasneið
Afmæll sreikningsins
er heil kaka
út af fyrir sig
Afmælisreikningur er sterkur reikningur sem upphaflega var stofnaður
í tilefni 100 ára afmælis Landsbankans 1986 og var aðeins opinn út afmælisárið.
Reikningurinn öðlaðist skjótt miklar vinsældir og hefur
nú verið opnaður á ný. Afmælisreikningur er að fullu verðtryggður og gefur
að auki fasta 7,25% ársvexti allan binditímann sem er aðeins 15 mánuðir.
Hann hentar því mjög vel til almennra
tímabundinna nota og er
auk þess kjörin afmælisgjöf.
Landsbanki
íslands
Banki allra landsmanna