Alþýðublaðið - 21.05.1988, Page 16
QQrih Vprr
rC vi,prh''CPi'p l
BALTIMORE
WASHINGTON
3xíviku
FLUGLEIÐIR
-fyrír þíg-
HELSINKI
1 x í viku
FLUGLEIÐIR
-fyrírþíg-
KAUPMANNAHÖFN
14xíviku
FLUGLEIÐIR
-fyrírþíg-
Forval vegna f
hugbúnaðarútboðs
Á næstunni verður leitað tilboða í lokuðu útboði í
bókhaldskerfi, fjárhags- og viðskiptabókhald fyrir
sjúkrahús og fleiri stofnanir. Notaður verður bók-
haldslyki11 svipaður lykli ríkisbókhalds. Deildaskipt-
ing og hvers konar sundurliðun á mismunandi svið
lykilsins þarf að vera auðveld. Viðskiptabókhald er
ekki stór þáttur, en þarf að vera þjált í meðförum.
Kröfur verða gerðar um öryggi gagna, að kerfið upp-
fylli kröfur um endurskoðun, um skjölun og lipurt
notendaumhverfi. Reiknað er með að notaðar verði
einmenningstölvur, en notkun á neti eða í annars
konarfjölnotendaumhverfi kemurtil greina. Þarsem
tími til kerfisgerðar er stuttur verður sérstaklega lit-
ið á þann möguleika að aðlaga kerfi, sem þegar hef-
ur fengist reynsla á í notkun.
Fyrirtæki, sem óska að taka þátt í forvali þessu
sendi vinsamlegast upplýsingar um fyrirtækið og
kerfi, sem þau hafa að bjóða til Fjárlaga- og hag-
sýslustofnunar, Arnarhvoli, í síðasta lagi 26. maí.
Upplýsingar gefa Jóhann Gunnarsson í síma 25000
eöa Erna Bryndís Halldórsdóttir í síma 27888.
m REYKJNUÍKURBORG Ifí
SKÓLASKRIFSTOFA
REYKJAVÍKUR
Staða umsjónarmanns við Fjölbrautarskólann í Breiðholti er laus til umsóknar.
Upplýsingar í síma 75600.
KRATAKOMPAN
Jón Baldvin á
fyrirspurnarfundi
Reykvikingar nærsveitamenn! Viljið þið spyrja fjár-
málaráðherra um efnahagsmál. Mætið þá á opinn
fund í Múlakaffi næstkomandi laugardag klukkan 10
fyrir hádegi.
Fulltrúaráöið.
Laugardagur 21. maí 1988
„Engin rikisstjórn getur með rétti gert kröfu til valda nema hún byggi á vilja alþýðunnar."
„Suður-Afríkusamtökin — gegn Apartheid“ stofnuð annan laugardag:
„TILHEYRIR 0LLUM“!
Laugardaginn 28. maí
verða stofnuð samtök hér á
landi til stuðnings baráttu
meirihluta íbúa Suður-Afríku
fyrir mannréttindum. Samtök-
unum sem munu bera heitið
„Suður-Afríkusamtökin —
gegn APARTHEID" er eins og
nafnið bendir til ætlað að
upplýsa um siðleysi aðskiln-
aðarstefunnar og vinna að
því að viðskiptabannið við
Suður-Afríku verði haldið.
Þá segir í frétt undirbún-
ingsnefndar að geti eitthvað
öðru fremur haft áhrif á
stjórn minnihlutans I Suður-
Afríku sé það alþjóðlegur
þrýstingur.
„Það skiptir hins vegar öllu
máli að sá þrýstingur komi til
áður en suður-afrískir blökku-
menn rísa upp til lokaupp-
gjörs gegn vel búnum her og
lögreglu Suður-Afríkustjórnar.
í því blóðbaði, þar sem
milljónir gætu fallið jafnt full-
oríjnirsem börn og gamal-
menni, yrðu engum hlíft. Það
er ekki spurning lengur hvort
APARTHEID kerfið verði lagt
af heldur hvenær og þá
hvernig. Um þetta eru allir
leiðtogar suður-afrískra
blökkumanna sammála."
í hálfa öld hélt Afríska
þjóðarráðið upp friðsamlegri
baráttu fyrir mannréttindum
blökkumanna. Sharpville
1960, handtaka Nelsons
Mandela 1962 og blóðbaðið
1976, þegar yfir 7 hundruð
börn og unglingar voru
drepnir, eru tákn viöbjóðs-
legra aðgerða stjórnvalda í
Suður-Afrlku. 33 ár eru liðin
síðan Afríska þjóðarráðið
hvatti til þings alþýðunnar, en
þar var Frelsisskráin sam-
þykkt. í henni eru tilgreind
almenn mannréttindi eins og
þau að engin ríkisstjórn geti
gert tilkall til að ráða nema
það sé vilji fólksins sjálfs.
Suður-Afríka tilheyri öllu.
Stofnfundur samtakanna
verður í Gerðubergi lauga-
daginn annan kl.14, en aðild
að þeim geta allir átt sem
styðja tilgagninn heilshugar.
Listahátíð 1988:
Miðasala helst
á þriðjudag
Listahátíð hefst 4. júní, en
á þriðjudag verður byrjað að
selja miða á öll atriði hátíðar-
innarog „hátíðaraukann",
sem eru tónleikar Leonards
Cohens föstud. 24. júní.
Miðasalah verður opin frá
klukkan 13.30 til 19.00 alla
daga, en tekið verður við
miðapöntunum í síma 28588
til klukkan 22.00 öll kvöld.
Fólk er hvatt til að kynna
sér dagskrá Listahátíðar og
tryggja sér miða tímanlega
þar sem tónleikar vinsælla
tónlistarmanna, eins og
Cohens, franska jazzfiðlu-
snillingsins Stephane Grapp-
ellis og einleikstónleikar
Vladimir Ashkenazys, verða
aðeins einu sinni og búast
má við að færri komist að en
vilja.
Amalía Líndal
endurúrgefin
Bók Amalíu Líndal, Ripples
from lceland, kemur út hjá
Bókaforlagi Odds Björnsson-
ar þann 19. mai n.k. Þessi
nýja útgáfa er í kiljuformi og
er fyrst og fremst ætluð er-
lendum ferðamönnum.
Amalía Líndal er fædd og
uppalin i Bandaríkjunum.
Hún kynntist íslenskum
námsmanni sem var samtíma
henni við háskólanám I
Boston, giftist honum og þau
stofnuðu heimili i Kópavogi.
AUGLÝSING um starfslaun til listamanna Menningarmálanefnd Reykjavíkurborgar auglýsir eftir umsóknum um tvenn starfslaun til listamanna. Annars vegar eru starfslaun til 12 mánaða hið lengsta og fer úthlutun þeirra fram í júnímánuði, en hins vegar eru starfslaun til þriggja ára og fer úthluí- un þeirra fram hinn 18. ágúst. Þeir einir listamenn koma til greina við úthlutun starfslauna, sem búsettir eru í Reykjavík og að öðru jöfnu skulu þeir ganga fyrir úthlutun, sem ekki geta stundað listgrein sína sem fullt starf. Listamenn skulu skuldbinda sig til þess að gegna ekki fastlaunuðu starfi meðan þeir njóta starfs- launa. • v Umsóknarfréstur er til 10. júní 1988. Menningarmálanefnd Reykjavíkurborgar, Austurstræti 16.
IF FÉLAGSSTARF ALDRAÐRA í REYKJAVÍK Sýningar á unnum munum í félagsstarfinu á sl. vetri verða haldnar í Bólstaðarhlíð 43, Hvassaleiti 56-58 og Menningarmiðstöðinni í Gerðubergi dagana28., 29. og 30. maí frá kl. 13.30 til 17.00. Sala á handavinnu aldraðra Reykvíkinga verður á áðurnefndum stöðum og einnig í Lönguhlíð 3. Kaffisala á öllum stöðunum. Allir velkomnir. Félagsmálastofnun Reykjavíkurborgar.
fc
i