Alþýðublaðið - 10.12.1988, Blaðsíða 14
14
1 ♦ 4
i > t
Laugardagur 10. desember 1988
KRINGLAN
ákveða hver fær þar inni: „Viö
áttum von á að það yrði
meira um það að menn gæf-
ust upp á rekstrinum, en
hann hefur gengið vonum
framar.“
Kringlan hefur óneitanlega
fengið gagnrýni, verið k.ölluö
„marmarahöllin" og öðrum
slíkum nöfnum í niðrandi
merkingu. Jón svarar þessari
gagnrýni í stuttu máli: „Ég er
alveg sannfærður um að hús-
iö á eftir að standa af sér alla
sllka gagnrýni.1'
Á sínum tíma vildu margir
álíta sem svo að útilokað
væri fyrir rúmlega sjötíu
verslanir að starfa undir
sama þaki, en að sögn Jóns
er samstarfið gott í húsinu:
„Auðvitað er ákveðin sam-
keppniinnanhúss og menn
lita málin ekki alltaf sömu
augum. Nú sjá menn og
skilja það betur hversu nauð-
synlegt það var að setja sam-
skiptareglur í upphafi og þeir
sjá líka betur hvernig hags-
munir eins fara saman við
hagsmuni annars. Hér er það
ekki spurningin um að dauði
eins sé annars brauð, heldur
hefur hver gott af öðrum hér.
Heildin er það sem laðar að,
en hún er ekkert sterkari en
veikasti hlekkurinn í keðj-
unni. Það verður hver og einn
að standa sig."
NÝJAR BYGGINGAR
VALDIÐ VONBRIGÐUM
Kringlumenn lögðu á það
áherslu að strætisvagnaferóir
yrðu að Kringlunni en enn
hefur sú ósk ekki ræst: „Það
hefur gengið mjög erfiðlega
að fá Strætisvagna Reykjavík-
ur til að átta sig á hvað
Kringlan er orðin mikilvæg
verslunarmiðstöð. Það geng-
ur enginn strætisvagn niður
að húsinu og næstu stöðvar
eru við Miklubraut. Kringlan
tengist strætisvagnakerfi
Reykjavíkur ekki ennþá nægi-
lega vel.“
Jón segir það einnig hafa
orðið þeim mikil vonbrigði
hversu mikið hefur verið
byggt í kringum Kringluna:
„Það stóð ekki til að byggja
svona mikið á þessu svæði,"
segir hann. „Þegar við feng-
um lóðina var um það rætt,
eða að minnsta kosti var það
okkar skilningur, að Kringlan
yrði eina verslunarhúsnæðið
i nýja miðbænum. Af þeim
sökum héldum við því fram
við þá sem af okkur keyptu
að þeir yrðu einir með versl-
un á þessu svæði. Það var
lögð á það áhersla af hálfu
borgaryfirvalda að við yrðum
eins austarlega á lóðinni og
hægt væri til að skyggja ekki
á Borgarleikhúsið. Þá var á
skipulagi lítið lágreist hús,
um 2000 fermetrar, sem átti
að vera á milli okkar og Borg-
arleikhússins, en notkun
þess húss var nokkuð flökt-
andi. Ýmist var talað um að
þar yrði borgarbókasafn eða
annað, en okkur skildist alltaf
að þar yrði þjónustufyrirtæki
sem yrði ekki í neinni sam-
keppni við Kringluna, hvorki
um bílastæði né verslun. Svo
allt í einu áttuðum við okkur
á því vorið 1986 að þarna er
komin teikning upp á
7—8000 fermetra hús og þó
svo að úthlutunin hafi náð til
þess að þarna yrði skrifstofu-
húsnæði, prentsmiðja, köku-
gerðarhús og kvikmyndahús,
þá sáum við fljótt að þessir
byggingaaðilar ætluðu sér að
hafa þarna verslanir. Þeir út-
hluta sér bílastæði eins og
um iðnaðar- og skrifstofuhús-
næði sé að ræða. Við erum
með 1.600 bílastæöi fyrir
30.000 fermetra, eða eitt bíla-
stæði á hverja 19 fermetra
meðan þeir hafa eitt bíla-
stæði á hverja 50 fermetra."
Jón segir að í sjálfu sér telji
hann annað verslunarhús
þarna vera í lagi, ef pláss
væri fyrir umferöina: „Ég er
ekkert hræddurvið þessa
samkeppni milli aðilanna í
verslununum. Hættan er sú
að þetta verði eins og
„búmmerang" sem kemur í
hausinn á manni aftur, því
fólk kemst ekki nærri húsun-
um og það bitnar á öllum.
Það má alveg færa rök fyrir
því að þetta nýja verslunar-
hús geti gert Kringluna að
meira verslunarsvæði, en
kaupmenn í Kringlunni hafa
lagt i fleiri hundruð milljóna
króna kostnað við að reisa
bílastæði og þá er auðvitað
hart ef samkeppnisaðilar
nota stæðin þeirra."
FLEIRI
HAGKAUPSVERSLANIR?
Jón Ásbergsson segist
persónulega vera ánægður
með Kringluna, þótt auðvitað
hafi komið upp byrjunarörð-
ugleikar: „Kringlan er feiki-
lega stórt mannvirki og það
væri óeðlilegt ef ekki hefðu
komið upp einhver vanda-
mál,“ segir hann.“ Þaö voru
ákveðnir byrjunarörðugleikar
í sambandi við loftræstikerfi,
sem við vissum reyndar fyrir-
fram að myndi taka nokkra
mánuði að fá í lag. Það hefur
tekist að mestu leyti að laga
það, nema hvað það er ákveð-
inn galli að mínu mati að
búðirnar taka til sín loft úr
göngugötunni og það vill oft
verða einum einum of kalt
þar þess vegna. í verslunun-
um er mikill hiti frá Ijósum
og þess vegna verður loftið í
göngugötunni að vera kald-
ara en æskilegt má telja. Við-
skiptavinir hafa að vísu ekki
kvartað yfir þessu, en okkur
finnst hitastigið stundum
vera alveg á mörkunum.
Plönturnar í húsinu þoldu til
dæmis þennan kulda illa og
voru á mörkum þess að lifa.
Hins vegar má benda á að
það sé ekki heppilegt að hafa
20 stiga hita í göngugötunni,
því flestir sem koma í Kringl-
una eru vel klæddir í yfir-
höfnum og sjálfsagt liði þeim
illa ef hitinn væri meiri."
Hagkaup hyggst ekki bæta
við fleiri verslunum alveg á
næstunni, enda segir Jón þá
vera komna með nokkuð
góða skiptingu: „Framtfðin
liggur sjálfsagt í því að við
munum byggja upp lóðir okk-
ar í Kópavogi þar sem birgða-
skemmur, IKEA og einhver
Hagkaupsverslun verða. Við
ætlum ekki að leggja vérsl-
unina í Skeifunni niður, þótt
sú hugmynd hafi komið upp
á sínum tíma. Það hefur sýnt
sig að Skeifan á tryggan við-
skiptavinahóp sem vill ekki
versla annars staðar. í Kringl-
unni er öðruvísi hópur við-
skiptavina, yngra fólk, sem
að líkindum er tilbúið að
eyða meiri peningum. Það
sjáum við á sölu dýrara kjöts
í Kringlunni en annars staðar.
í fatasölu leggjum við mesta
áherslu á fjölskylduna og þar
er barnafatadeildin stærst.
Við höfum ekki lagt okkur
eftir táningum. Hinn tryggi
viðskiptavinur Hagkaups er
fjölskyldan og við höfum
leyft öðrum að sjá um að
selja dýrari fatnaðinn og
öfgakenndari tískuafbrigði.
Ég held það sé alveg úr sög-
unni að það þyki neikvætt
eða hallærislegt að versla í
Hagkaup. Slagorð Hagkaups
sem sett voru á einn af fyrstu
póstlistunum fyrir nærri þrjá-
tíu árum standa enn fyrir
sínu: „Drýgiö lág laun —
kaupið góða vöru ódýrt". Það
sýnir sig vel á þessum tímum
að kjarabaráttan fer ekkert
síður fram við búðarborðið,"
sagði Jón Ásbergsson fram-
kvæmdastjóri að lokum.
Jólasveinarnir
koma í dag!
m kl. 11.00 í dag er von á fyrstu jólasveinunum í KRINGLUNA.
Með söng og glensi munu þeir skemmta „þægum jólabörnum".
Seinna í dag koma fleiri góðir gestir: Léttsveit Tónmenntaskólans, Blás
arakvintett Reykjavíkur og síðast en ekki síst. Skólakór Garðabæjar.
VERSLUN OG SKEMMTUN I EINNI FERÐ
OPIÐ
/ dag verslanir, til kl. 18.00
Mánud.- föstud.: Verslanir opnar til 19.00
Laugard.: Verslanir opnar til-kl. 16.00
Veitingastaðir, alla daga til kl. 21.00/23.3C
VELDU AUÐVELDU LEIÐIIMA
- 1600 ÓKEYPIS BÍLASTÆÐI