Alþýðublaðið - 10.12.1988, Page 17
Laugardagur 10. desember 1988
Séra Sigurður Haukur
Endur-
minningar
Sigurðar
Hauks Guð
jónssonar
Ut eru komnar endurminning-
ar séra Sigurðar Hauks Guð-
jónssonar, sem Jónína Leós-
dóttir ritstjóri hefur skráð, og
nefnist bókin „Guð almáttug-
ur hjálpi þér“.
Séra Sigurður Haukur
fæddist 1927 í Hafnarfirði en
ólst upp í Ölfusi. Að loknu
embættisprófi, starfaði hann
um hríð hjáSambandi ís-
lenskra samvinnufélaga, en
vígðist síðan 1955 prestur að
Hálsi í Fnjóskadal. Frá 1964
hefur hann verið sóknarprest-
ur í Langholtssókn í Reykja-
vík, en hyggst á næstunni
láta af embætti.
Fáir prestar eru umdeildari
hérlendis en séra Sigurður
Haukur, og má nefna snarpar
ádrepur hans um ýmis mál-
efni, „poppmessur fyrir ungl-
inga og stuðning hans við
sálarrannsóknir og lækna-
miðilinn Einar á Einarsstöð-
um. Hefur hann jafnan verið
talinn í röð hinna „frjálslynd-
ari“ kennimanna hérlendis og
þótt sýna áræðni í embættis-
verkum sínum og ýmissi ný-
breytni.
í frásögn sinni er prestur
fundvís á eftirminnileg atvik
og bregður upp Ijóslifandi
myndum af samferðamönn-
um sínum, auk þess að miðla
lesendum af margvíslegum
umhugsunarefnum. Má þar
nefna ýmsar frásagnir úr
prestsstarfinu og sálusorgun,
auk þess sem kynrii hans af
sálarrannsóknum og lækna-
miðlum munu vekja áhuga
margra.
Bókin er 294 blaðsíður,
með um 75 myndum. Prents-
miðja Árna Valdemarssonar
hf. annaðist prentun og bók-
band. Útgefandi er Nýja
bókaútgáfan hf.
sjóða í 3-5 mín. Kælið blönduna og hellið
henni síðan í sterkan plastpoka. Setjið
lambalærið í pokann og bindið vandlega
fyrir. Látið sem minnst loft vera í pokanum.
Takið utan um legginn á lærinu og sláið
pokanum með lærinu í nokkrum sinnum
þétt niður á borð. Snúið lærinu í hvert sinn.
Þetta er gert til þess að fá safann í pokanum
vel inn í holumar á kjötinu.
Geymið pokann með lærinu á köldum
stað í um einn sólarhring og snúið honum
öðru hvom og nuddið safanum vel inn í
lærið um leið.
Hitið ofninn í 220°C.
Takið lærið úr pokanum og skafið
kryddblönduna utan af með bakkanum á
borðhníf. Geymið blönduna. Kryddið lærið
með salti (og meiri pipar ef þurfa þykir).
Höggvið mjaðmabeinið í 4 eða 5 bita og
skerið hækilkjötið í bita. Leggið þetta í
hæfilega stóra steikarskál eða skúffu og
leggið lambalærið ofan á. Steikið kjötið í
ofninum þar til það er búið að fá á sig
fallegan lit. Minnkið þá hitann á ofninum
niður í 180°C. Eftir um einnar klst. steikingu
er kryddleginum sem eftir var ásamt
kjötsoðinu hellt yfir kjötið og það síðan
steikt í um 15-30 mín. í viðbót.
Færið lærið yfir á fatið sem þið ætlið að
bera það fram á og geymið í heitum og
hálfopnum ofninum á meðan sósan er löguð.
Sigtið soðið úr steikarskálinni yfir í pott
og bragðbætið með salti og pipar eftir
smekk. Látið suðuna koma upp ásoðinu og
þykkið það hæfilega með sósujafnara.
Berið kjötið fram með nýju, soðnu
grænmeti og einhverju ljúffengu til þess að
skola því niður.
Ajólunum veljum við gjaman það sem
okkur þykir best á jólaborðið og
auðvitað helst sem þjóðlegast. fslenska
lambakjötið er hráefni sem á fáa sína líka,
svo meyrt og safaríkt ef það er meðhöndlað
rétt. Spennandi lambastórsteik er tromp á
jólaborðið. Hér er uppskrift af einni
ómótstæðilegri.
Hilmar B. Jónsson valdi þessa gimilegu
jólasteik handa okkur með óskum um
gleðilega hátíð.
Látið lambalærið þiðna í kæliskáp í 3-5
daga, helst í loftþéttum umbúðum.
Skerið mjaðmabeinið frá og hreinsið
leggbeinið. Skerið einnig mest af fitunni frá
ef lærið er of feitt. Stingið um 2 sm djúp göt í
lærið með 3-4 sm millibili. Geymið beinin og
kjötið utan af leggbeininu.
Skerið sellerístilkana og blaðlaukinn í
bita. Hitið olíuna á pönnu, setjið grænmetið
á pönnuna og kraumið þar til það fer aðeins
að taka lit. Bætið þá pipamum,
rósmarínkryddinu, sojasósunni,
sítrónusafanum og líkjömum útí og látið
Lambalærí
með Kahlua-sósu
Fyrir6-7.
1 meðalstórt lambalæri
2 msk mataroba
3 sellerístilkar
blaðlaukur (púrrulaukur)
1 tsk græn eða hvít piparkom
1 tskrósmarín (sléttfull)
2 dl Kahlua-kaMlíkjör
2 msk Kikkoman sojasósa
safiúrlsítrónu
salt
2dIljóstkjötsoð
dökkursósujafnari
MARKAÐSNEFND
Jónína Leósdóttir skráöi endur-
minningar séra Siguröar.