Alþýðublaðið - 10.12.1988, Blaðsíða 25
Laugardagur 10: desember 1988
KRINGLAN _______
Rómantík
í tísku
rætt við Önnu Margréti Marís-
dóttur verslunarstjóra í Vouge
EFTIR — SVÓLU JÓNSDÓTTUR
Þaö hefur mjög færst í
vöxt undanfarið aö fólk
saumi sjálft fötin á sig og
það er liðin tíð að heima-
saumaður fatnaður þyki
ófínni en sá sem er keyptur
tilbúinn. Verslunin Vogue í
Kringlunni kemur til móts við
þá sem sauma sjálfir og hef-
ur á boðstólum allt til sauma;
efni, snið, tölur, tvinna og
annað tilheyrandi. Verslunar-
stjórar Vogue í Kringlunni
eru Anna Margrét Marísdóttir
og Anna Ragnarsdóttir.
Enn er tími til að sauma
jólafötin á fjölskylduna og í
Vogue er að sjálfsögðu úrval
fallegra efna í hátíðarklæðn-
aðinn. Anna Margrét sagði að
mest væri keyþt í jólaföt á
börnin um þessar mundir.
„Fyrst er saumað á börnin og
endað á foreldrunum," sagði
hún. „Þegar herðir að þá
verður rómantíkin meira áber-
andi og meiri tími lagður í
hlutina. Blúndukjólar á stúlk-
ur og falleg jakkaföt á drengi
eru það vinsælasta."
Að sögn Önnu er vinsæl-
asti liturinn á drengjafötin
tvímælalaust svartur og er
flauel mikið tekið í þau, en
Ijóst efni i skyrtur. Köflótt
efni eru mjög mikið tekin i
telpnakjólana, sem eru oftast
með rómantískum blúndu-
krögum.
Mömmurnarog ungu stúlk-
urnar geta slegið tvær flugur
í einu.höggi og saumað sér
jólakjól sem jafnframt er árs-
hátíðarkjóll. Vinsæl kjólaefni
eru flauel og ýmis glans- og
glimmerefni. Kjólarnir eru
undantekningarlaust stuttir, í
svokölluðum mini- og midi-
síddum, en síðkjólar eru al-
veg dottnir úr tisku í bili.
Fyrir jólin hefur Vogue ým-
is jólaefni á boðstólum; rauð,
hvít og blá efni með hefð-
bundnum myndum af jóla-
sveinum, mistilteini og jóla-
klukkum í rauðu, grænu og
gylltu. Þessi efni eru notuð i
jóladúka og ýmiss konar
föndur, eins og fléttaða jóla-
kransa og annað jólaskraut.
Einnig fást tilbúnir jóladúkar
í öllum stærðum og gerðum.
Til jólagjafa henta til dæmis
handklæði og sængurföt,
púðar og sessur. Skemmti-
legar tehettur, grillhanskar,
svuntur, pottaleppar og dúkar
úr nýtískulegu breiðröndóttu
efni í glaðlegum litum eru
einnig sniðugar jólagjafir eða
í eigið eldhús.
25
V-
„Viðskiptavinir okkar eru
langmest konur, en þó hefur
það verið að aukast að ungir
menn saumi á sig föt, enda
er þeim kennt að sauma í
mörgum skólum. Það hefur
verið mikil aukning hjá okkur
í ár miðað við í fyrra, sauma-
skapur hefur greinilega auk-
ist mjög mikið. Trimmgallar á
börn hafa verið mjög vinsæl-
ir, en eru nú aðeins farnir að
dala. Algengast er að fólk
kaupi í hversdagsföt og hafa
efni í buxur og tweed-jakka
verið afar vinsæl nú í haust.“
Anna sagði að ný efni
væru alltaf að koma I Vogue,
en auk fataefnaog smáhluta
fást einnig gluggatjaldaefni
og hálf-tilbúin gluggatjöld.
Tískan fylgir árstíðum og
jólaefnin voru t.d. komin í
september, en í febrúar byrja
vorefnin að koma í verslun-
ina. Innkaupafulltrúar fyrir-
tækisins fara á sýningar er-
lendis og fylgjast með tísku-
straumum, en einnig eru
ákveðin efni alltaf á boðstól-
um og nefndi Anna þar á
meðal flauel og terelyne.
„Fólk er farið að sækjast
meira eftir náttúrulegum efn-
um eins og bómull og ull,
það eru flestir orðnir leiðir á
að ganga i fötum sem krump-
ast mikið,“ sagði Anna Mar-
grét. Eftirspurn á vönduðum
og náttúrulegum efnum hefur
oft verið tengd kreppu, en
Anna sagðist ekki hafa orðið
vör við neina kreppu. „Það er
síst minni sala nú en i fyrra.
Það er sama fólkið sem spáir
í verð og hefur alltaf gert
það, en almennt virðist fólk
ekki hafa minna á milli hand-
anna en áður.“
— Hvernig líkar þér ad
vinna i Kringlunni?
„Hér er mjög gott starfs-
fólk og gott andrúmsloft. Það
er þægilegt fyrir fólk að geta
komið hingað og fengið
margt undir sama þaki og
hingað sækja til dæmis
margir utan af landi." Þeir
ættu ekki að verða fyrir von-
brigðum i Vogue, því þar
fæst, eins og kjörorð verslun-
arinnar segir: „Snið, efni og
allt til sauma".
STIiFANil.
Kringlunni - sími 68-9225