Tíminn - 27.03.1968, Síða 7
MIÐVIKUDAGUR 27. marz 1968.
ÞINGFRÉTTIR TÍ8VIINN SlSGIl msm
A
Hinir nákvæmu
og þriðja útgáfa fjárlaga '68
Frumvarpið um breytingar á
fjárlögum fyrir árið 1968 var tek-
ið til umræðu í efri deild í gær,
en frumvarpið hlaut fullnaðaraf-
greiðslu í neðri deild í fyrradag.
Magnús Jónsson fylgdi frumvarp-
inu úr hlaði í gær og skýrði ein-
stakar greinar frumvarpsins á
sama hátt og hann hafði áður gert
í neðri deild.
Einar Ágústsson talaði af hálfu
Framsóknarflokksins við umræð-
una í gær og gerði athugasemdir
við frumvarpið og stefnu ríkis-
stjórnarinnar í heild og einstakar
greinar frumvarpsins. Fara hér á
eftir kaflar úr fyrri hluta ræðu
Einars í gær.
Einar Ágústsson sagði, að skv.
athugasemdum fruimvanpsins fjall-
aði það um að flytja út af fjánlög
um 1968 annars vegar 138 millj.
kr. og hins vegar að fjármagna
með lánum innan ramrna fram-
kvæmdaáætlunarinnar fram-
kvæimdir við menntaskóla og rík-
isspít'ala, er nema 62,6 millj. kr.
á yfirstandandi ári. Samkvæmt
þessu á að létta á fjárlögunum
um 200 millj'. kr. að því er sagt
er til þess að við verði komið sér-
stakri aðstoð við bátaútveginn og
fiskvinuslustöðvarnar á þessu ári.
Fjármálaráðherra verður að
virða það til vorkunnar þótt menn
taki öllum þessum útreikningum
ríkisstjórnarinnar og séríræðinga
hennar með hæfilegum fyrirvara.
í allan vetur er búið að hringia
með þetta vesaliings fjárlagafrum-
varp. Okkur er sú saga vafalaust
öllum í ferSku minni. Þegar Al-
þingi kom saman í haust lá á
borðum þingmanna þykk og mynd
arleg bók. Frumvarp til fjárla.ga
fyrir árið 1968. Jafnframt var lagt
fram frumvarp um efnahagsráð-
stafanir e.n skv. því átti ýmist að
afla nýrra tekna eða fella niður
útgjöld sem námu 750 millj. kr.
Þegar þetta var, þóttist hæstv.
ríkisstjórn ætla að standa við hin
stóru orð sín frá því fyrir kosn-
ingarnar í júnií s. 1., að standa
vörð um gjaldmiðilinn. Þá var
oákvæmlega út reiknað að það
væri 750 millj. kr. bil, sem þyrfti
að brúa. Á þessurn málfiutningi
var þó auðvitað hinn augljósi
galli, að vanda atvinnuveganna
var ýtt til hliðar. Menn létust bara
ekki sjá hann, töfraibragðasnilliing
ur rikisstjórnarinnar hagaði sér
eins og þaulæfður kabarett-
skemmtikraftur — hann talaði
bara um eitthvað annað til að
leiða athyglina frá því, sem raun-
verulega var að gerast. Þetta var
i októiber. í' nóvember var síðam
framkvæmd stórfelld gengislækk-
un — verð erlends gjaldeyris
hækkað um 33,6% — og töframað
urinn kom á nýjan leik fram á
sviðiðj nú til þess að tilkynna
þjóðinni að aldrei í sögu landsims
hefðu aðrir eins útreikningar leg-
ið fyrÍT til að byggja á nákvæma
gengislækkun — 25,4% var upp
á brot það, sem hún þurfti að
vera til þess að hægt væri að
reka útflutningsatvinnuivegina
styrkja o.g hallalaust.
Svokölluðum gengishagnaði var
ráðstafað hingað og þangað, m. a.
til þess að byggja upp framtíðar-
sjóði, væntanlega af því að at-
vinnuvegirnir þyrftu ekki á þeim
að halda. Fjárlagafrumvarpið ar
afgreitt skv. þfessu í desember.
Jafnframt var sambaind milli kaup
gjalds og verðlags fellt úr lögum,
en til þess að draga úr reiði al-
mennings var enn eitt töfrabragðið
sett á sv-ið, og nú hét það tolla-
lækkun. Tollana átti að lækka um
250—270 millj. og draga þannig
úr dýrtíðaráihrifum gengislœkku.n-
ariinnar.
E.nn var setzt við að reikna.
Svo kom janúar. Þá komust sér-
fræðingarnir að því, að gengis-
lækkunin .dugði ekki. Sjávarútveg
inn vantaði meira fé.
í febrúar kom svo aðstoðin við
sjávarútveginin upp á 320 millj.
króna. Tollalækkunin varð ekki
270 milljónir heldur 169 milljón-
ir og áfengi og tóbak var hækkað
um 40 milljónir.
Nú er kominn marzmánuður og
þá er þetta frumvarp lagt fram.
En alltaf eru tölurnar jafn vís-
itndalega útreiknaðar. — Nákvæm-
lega þetta vantar — ekki hægt.að
hnika þar krónu.til, sbr. afgreiðslu
á breytingatillögum.
Hæstvirtir ráðherrar standa á
sviðinu eins og sjónhverfinga-
★ Þórarinn Þórarinsson liefur lagt fram frumvarp til laga um laun
listamanna, skálda og rithöfunda. Verður þess nánar getið síðar.
★ Umræður urðu utan dagskrár í neðri deild í gær í tilefni af
flugslysinu í Landsveit í fyrradag er bandarísk herþota fórst. Spurði
Jónas Árnason utanríkisráðherra, hvort þetta flug væri samkvæmt
þeim reglum er íslenzk stjórnvöld settu. Utanríkisráðherra sagði svo
vera og taldi æfingaflug orrustuflugsveitar varnarliðsins nauðsynlegan
og sjálfsagan þátt í vörnum landsins.
★ j^rumvarp um breyting á áfengislögum var til 1. umræðu í neðri
deild í gær. Frumvarpið er flutt af nefnd og er samhljóða frumvarpi
milliþinganefndar, er var til umræðu á þinginu í fyrra og þá flutt
af ríkisstjórninni. Ríkisstjórnin taldi sig ekki standa að flutningi máls
ins nú. Þetta frumvarp er samhljóða frumvarpinu í fyrra að öðru
leyti en því, að felld eru niður ákvæði um skyldu vínveitingahúsa til
að hafa opið án vínveitinga eitt laugardagskvöld í mánuði og cnnfrem
ur er Iækkað aldursmark varðandi réttindi til kaupa úr 21 ári í
20 ár.
★ Sigurvin Einarsson gagnrýndi að niður skyldi fellt ákvæðið um
vínlaust laugardagskvöld i mánuði hverjum í vínveitingahúsunum.
Gísli Guðmundsson gerði athugasemdir varðandi það, hvernig flutn-
ingur málsins bæri nú að.
V: v - . ' : i : • K
Einar Ágústsson
menn en halda áfram að reyna
að blekkja eftir að áhorfendur
hafa fyrir löngu séð gegnum alla
galdrana. Það er aumkunarverð
sjón.
Það hefur löngum viljað bren.na
við að hverjum þyki sinn fugl fag-
ur. Svo er jafnan um hæstv. fjár-
málanáðherra á öllum tímum, og
þá einnig nú. Þegar frumvarpið
var til meðferðar í haust — í
bæði skiptin — var litið hiustað
á það spannaðarhjal, sem maður
og maður var þó að bin’ðast með
hér á háttv. Alþin.gi. Slíkt var
talið markleysa — og sýndar-
mennska, sem ekkert væri á hlust
andi — enda ekkert hægt að
spara. Nú hefur hins vegar blað-
inu verið snúið alveg i’ið — og
því haldið fram, að þegar til kom
haiji bara heilmikið mátt spara.
Eg skal fyrstur manna klappa
fjármálaráðherra lof í lófa þegar
honum tekst að koma fram raun-
hæfum sparnaði. Hainn skal njóta
fyllsta sannmælis fyrir það, sem
honum tekst að draga úr útgjöld
um rikissjóðs á þessu ári, þau eru
sannarlega nægilega há fyrir því.
Ein hp.sltv. ráðherra verður að
heit’a því, að frumvarpið sé athug
að og menn geri sér grein fyrir
því, hvað er raunverulegur sparn-
aður og hvað sjónhver.fiingar.
Rakti Einar síðan hvernig
„sparnaðurinn“ væri til I kominn.
Verkefni upp á 62 milljónir væru
leyst með lántökum. 18 milljónir
vegna hægri umferðar væru tekn-
ar í ríkissjóð og lán tekið í stað-
inn. 8 milljón krón’a kostnaður
vegna orlofs væri fært á bókhald
pósts og síma í stað ríkissjóðs og
kallað sparnaður! Framlög til
ýmissa sjóða atvrnnuveganna
væru lækkuð um 51 millj. króna.
Samt eru eftir þanna 61 millj.
kr., sem sparast eiga á yfirstand-
andi fjárlaga'ári. — 1% fjárlag-
anna.
Matsatriði er alltaf hvað eigi
að fella niður. Ég vil þó leyfa mér
að benda á, að af þessari 61 millj.
kr. eru það 16,7 millj. kr., sem
snerta menntamálin í landinu í
einni eða amnarri mynd. Hláskóli
575 þús., rekstur skóla 6,6 millj.,
skólabyggin.gar 5 millj., fræðslu-
málaskri'fstofan 2,040 þús„ Kenn-
araskólinn 1 millj. og Safnahús
IV2 millj. Ég nefni þessi mál sér-
staklega veg.na þess að ég óttast,
að við séum að dragast aftur úr
nágramhaþjóðum okkar á sviði
menntunar, þrátt fyrir allt okkar
'fræðslukerfi og vissulega mikla
'fjármagn, sem til þessara mála
er variö. í heiminum í dag er
það menntunin, sem hefur úrslita
áihrif á hag og afkomu þjóð'anna.
Okkur er það .blátt áfram lífsnauð
syn að fá börnum okkar góða og
raunhæfa menntun til þess að
geta hagnýtt auðlindir landsins og
staðizt s'amkeppnina við aðrar
þjóðir. Nú er það sérhæfingin,
sem gildir — Ekki — Löngum var
ég læknir mimn, eins og einu sinni
þótti svo afskaplega gott og var
raunar nauðsynlegt þá til að lifa.
Einhvers staðar las ég það í er-
lendu blaði, að Evrópumenn
þyrftu að gera sér grein fyrir því,
að þeir væru ekki fyrst og fremst
í efnahagsstríði við auðlindir
Bandaríkjanna heldur meinntun-
ina þar í landi. Þeir væru svo
langt á undan Evrópuþjóðunum í
sérhæfðri me.nntun. Þá kæmu
Rússar næstir, en Bretar væru
skáistir hér í Vestur-Evrópu. Að
vísu þykir okkur miörgum þessi
HÆSTARÉTTARLÖGMAOUK
AUSTURSTRÆTI 6 SlMI IÍ3S4
SKIPAUTGCRÐ RIKISINS
M.s. Blikur
fer austur um land til Akur-
eyrar 3. apríl. Vörumóttaka
miðvikudag, fi'mmtudag og
föstudag. til Breiðdalsvíkur,
Stöðvarf j arðar Fáskrúðsfj arð-
ar, Reyðarfjarðar, Eskifjarðar.
Norðfjarðar, Seyðisfjarðar, —
Borgarfjarðar, Vopnafjarðar,
Þórshafnar Raufarhafnar. Kópa
skers, Húsavíkur og Akureyrar.
Auglýsing um brottför m.s.
Blikur í dagblöðunium 23. þ.m.
er ógild.
Tapab -
Fundib
Ferðataska tapaðist laugar-
daginn 9. þ.m., á leiðinni
Reykjavík—Búrfell. —
Vinsamlegast látið vita í
síma 22819.
einhæfa menntun hvimleið — við
viljum helzt vita allt og vera
jafnvígir á humanistisk sem real-
istisk fræði — en í lífsbaráttunni
gildir sérhæfingin óhugnanlega
mikið — verðum að gera okkur
grein fyrir þvi. — Þetta styður
svo hvað ann'að, því vegna velmeg
unariinnar sem bandarísk mennt-
un hefur skapað þar í landi, sog-
ast færustu vísindamenn annarra
landa þangað og þannig breikkar
bilið enn.
Við megum alvarlega vara okk-
ur á andvaraleysi í þessum efn-
um. Við þurfum að endurskoða
skólakerfið o,g það er ekki nóg
að vera árum sam'an með þetta
í athugun. Þeir, sem eiga börn í
skóla eru ekki nógu ánægðir með
þetta. Það er sárt að sjá fjiárveit-
ingar til menntamálanna falla fyr
ir hnífnum. Hagræðiing er góð og
vonandi er hægt að spara án
þess að slaka á kröf.unum. En
hann borgar sig illa sá sparnaður,
sem verður til þess að draga úr
menntun í landiinu.
Nánar verður sagt fná þessari
ræðu í Þingsjá á sunnudag.
HGLGNA
HGKTOR
NYJUNG
HELENA — HEKTOR hár-
lakk er ódýrt og gott.
Helena-Hektor hárlakk
fæst í öllum kaupfélags-í
búSum.
\