Tíminn - 30.03.1968, Blaðsíða 1
Gerizt áskrifendur að
Tímanum.
HringiS í síma 12323
tm
64. tbl. — Laugardagur 30. marz 1968. — 52. árg.
Auglýsing í Tímanum
kemur daglega fyrir augu
80—100 þúsund lesenda.
Reykjavík, föstudag.
Ráðuneytið hefur í dag
sett reglugerð, er felur
það í sér, að framvegis
verði innflutningur á
pappakössum og öskj-
um, 'háður innflutnings-
og gjaldeyrisleyfum. Er
ráðstöfun þessi gerð til
fjess að tmnf sé að hafa
effrrlit með innflutningi
á öskjum ufan um fisk
og mjólkurfernum.
Frétt frá viðskipta-
máteráðuneytinn.
Læknislaust:
Snjó-
sleði
gefinn
FB-Reykj avík, föstudag.
Ný tegund farartækja, snjó-
sleðar, sanna nú betur og bet-
ur kosti sína og ágæti úti í
sveitum þessa lan^s, þegar
snjór og ófærð er svo mikil, að
bflum er ekki fært milli bæja.
Þessu hefur Önfirðingafélagið,
sem staðsett er í Reykjavík,
gert sér grein fyrir. Hefur það
nú sent vélsleða vestur í Flat-
eyrarlæknishérað, til þess að
hægt verði að grípa til þessa
nýtízkulega farartækis, ef í
nauðirnar rekur, en í vetur hef
ur verið læknislaust í héraðinu.
Blaðinu barst í dag frétt frá
Önfirðingafélaginu, þar sem
segir m. a.:
„Sú bylting í búsetu, sem
gengið hefur yfir íslenzka þjóð
á síðari árum hefur ekki farið
fram hjá Vestfjörðum. Fólks-
flutningar til fjölbýlisins hafa
valdið byggðareyðingu nyrzt á
Vestfjörðum og þó fólki hafi
ekki fækkað, hefur byggðin
breytzt, þorp myndazt og
stækkað, en sveitir eyðzt. Þorp-
in eru miðdepill hvers fjarðar,
sem er einangruð veröld í vetr
arillviðrum og fannkyngi, ver-
öld fólks, sem verður að bjarg-
ast á eigin spýtur, hvað sem á
dymur. — Skorturinn á héraðs-
læknum hefur ekki farið fram
hjá Vestfirðingum, og er nú
- 4. d. læknislaust í vetur í Fiat-
eyrarhéraði. Og hvað gerist þó
í læknislausri lítilli veröld, ein
angraðri af illviðri og ófærð,
ef kona er í barnsnauð eða slys
ber að?
Önfirðingafélagið í Reykja-
vik, sem er félag allra burt-
fluttra Önfirðinga, hefur sent
vélsleða vestur i læknishéraðið,
Framhald á bls. 15.
Komið með
piltana þrjá
til hafnar
ELReykjavík, föstudag.
Eins og frá sagði í blaðinu í
dag, föstudag, björguðu skipverj-
ar á Andvara frá Vestmannacyjum
þremur piltum, sem héngu á kili
báts síns, en honum hafði hvolft
um 400 metra frá Klettsnesi í
Eyjum. Voru þeir nokkuð illa
haldnir, einkum tveir hinir eldri,
en mun þó eklu liafa orðið meint
af þessu, enda voru þeir aðeins
5—10 mínútur í sjónum.
Tveir piltamna voru 23 ára,
þeir Oddur Guðlaugsson og Val-
ur Andrésson, en sá yngsti, Ólaf-
ur Kr. Guðjónsson, var aðeins 16
ára gamall.
Skipverjar á Andvara tóku
einnig bátinin um borð og mynd-
in hér að ofan var tekin, þegar
Andvari kom með piltana og bát-
inn til Ey.ja. Sést báturinn á þil-
farimu. (Tímamynd-ÆíE).
Loksins yfirlýsing um L&L-málið:
KRAFA IIM LEYFIS-
SVIPTINGUNA KOM
FRA ferðamálarAði
EJ-Reykjavík, föstudag.
í kvöld barst blaðinu frétta
tilkynning frá Ferðamálaráði,
og kemur þar í Ijós, að Ferða-
málaráð stóð að baki þeirra
ákvörðun Samgöngumálaráðu
neytisins að Ferðaskrifstofan
Lönd og Leiðir var svipt leyfi
til reksturs ferðaskrifstofu.
Er þar með rofin margra daga
þögn opinberra aðila um þetta
mál. Segir í tilkynningu Ferða
málaráðs, að ástæðan sé van-
skil L&L við erlenda aðila, og
hafi það verið samdóma álit
Ferðamálaráðs að nota ætti
öll tiltæk ráð til „þess að
koma í veg fyrir frekari skaða
en þegar er orðinn" vegna
þessara vanskila L&L.
Tilkynning Ferðamálaráðs fer
hér á eftir:
„Fyrir nokkru tóku Ferðamála-
ráði að berast kvartanir um van-
skil ferðaskrifstofunnar Lönd og
Leiðir hér í borg við erlenda að-
ila. Ferðamálaráð ræddi þetta
nolkkrum siinnum við Ingólf
Blöndal, forstjóra umræddrar
ferðaskrifstofu, og var honum þess
vegna fyllilega kunnugt um þær
álhyggjur, er ráðið hafði af rekstri
ferðaskrifstofu hans. Þar sem
ráðið taldi að traust á íslenzkum
ferðaskrifstofum myndi skert og
íslenzk ferðamál verða fyrir
tjóni ef róðstafanir væru ekki
gerðar til að stöðva þá öfugþróuin
er orðið hafði, þá lét Ferðamála-
ráð samgöngumálaráðuneytið fylgj
Framhald á bls. 14
Harold Wilson
Stórsigur íhaldsmanna í aukakosningum í 4 kjördæmum:
Háværar kröfur um al-
mennar þingkosningar!
NTB-London, föstudag.
Það var „grátur og gnístan
tanna“ i brezka Verkamanna-
flokknuni 1 dag, þegar farið var
að íhuga orsakir kosningaósigurs-
ins í gær, en þá fóru fram auka-
kosningar í fjórum kjöi'óæmum.
Verkamannaflokkurinn fór þar
Iiinar herfilegustu hrakfarir fyrir
íhaldsflokknum, sem vann í öll-
um kjördæmunum, hélt einu með
miög auknum meirihluta og vann
hin af Verkamannaflokknum.
Fylgisaukning ílialdsmanna var'
að meðaltali 18%, öll atkvæði tek
in af Verkamannaflokknuni.
Þetta fylgistap Verkamanna-
flokksins er næstum einsdæmi, og
mikið áfall fyrir hann og ríkis
stjórnina.
Aðalspuming manna í Bret-
landi er nú: I-Ive lengi á Wil?on
■að fara með flokksstjórnina? Wil-
son tók við völdunum i©64. Þó
að flokksleiðtogarnir hafi að visu
búizt við fylgistapi í kjölfar
efnahagsráðstafarjanna undanfár
ið. þá muu fáa hafa orað fyrir1
að Verkamannaflokkurinn hlyti
svo hörmuiega útreið.
Leiðtogar Verkamannaflokks
ins eru þeirrar skoðunar, að flokk
urinn eigi hvorki að láta af völd-
um, né slaka til á hinum hörðu
ráðstöfumum í efnahagsmálunum.
Þeir telja ráðstafanirnar nauðsyn
legar til að rétta við efnahag
Bretlands.
Edward Heath, foringi íhalds-
flokksins, sagði í dag, að það sem
fólkið vildi og þarfnaðist, væri ný
1 stjórn. „Verkamanimaflokkur-
inn hefur glataft siðferðisstyrL
sínum og traust' þjóðarinnar"
sagði Heath.
Annar leiðtogi íhaldsflokksins
Quintin Hogg, fyrrum ráðherra,
sagði að ef ósigur Verkamanna-
flokksins endurtaki sig um land-
ið allt, myndi það leiða til þess,
að allir ráðherrar flokksins, nema
tveir, myndu víkja úr Neðri deild-
innJ. Meðal þeirra, sem yrðu þá
að víkja, væri Wilson. Aðeins Pet-
er Shore, efnahagsmálaráðherra
Framhald á bls. 14