Vísir - 20.01.1976, Side 1

Vísir - 20.01.1976, Side 1
Matthías Bjarnason: ENGIR GÓÐIR KOSTIR TIL oð semjo né Hvorki svigrúm til lóto hirðo fisk í óleyfi „Svigrúm til aö semja er i raun og veru ekki fyrir hendi. Hitt er svo annað mál hvaö kann að ger- ast svo friður rlki. Það er auðvit- að heldur ekki svigrúm til þess að iáta hirða fisk i óleyfi eins og staða fiskistofnanna er núna. Það eru engir góðir kostir til I þessu máli. Hitt þarf svo að vega og meta hvaða kostur er skástur”. Þetta sagði Matthias Bjarnason sjávarútvegsráðherra i morgun er Visir hafði samband við hann og spurði hvort hann teldi svig- rúm til samninga við breta. Eins og kunnugt er hafa bretar ákveðið aðfara brott með herskip sin af miðunum og bjóða Geir Hallgrimssyni til viðræðna við Wilson forsætisráðherra breta. Er Matthias var spurður hvort þetta þýddi að áreitni við bresk herskip yrði hætt sagði hann: „Þetta kemur ekki i veg fyrir að við getum stuggað við bresku togurunum. Enda hefur hvorki verið farið fram á það eða rikis- stjórnin gefið nein slik vilyrði.” — EKG Geir Hallgrímsson: Deilunni ekki lokið „Ég tel að það sé ljóst að við hljótum að halda uppi lögum inn- an islensku fiskveiðiiögsögunnar. Fari bretar burtu með herskip sin og Nimrod þotu er það skoðun min að ekki komi tii slita á stjórn- málasambandi”. Þetta sagði Geir Hallgrimsson forsætisráðherra i morgun er Visir hafði samband við hann. Geir vildi sem minnst segja um ummæli Callaghans, þess efnis að herskipin verði send aftur inn i landhelgina ef varðskipin hætti ekki að áreita togarana, þar sem fregnir af ummælum hans væru enn of óljósar. „Ég tel að nú sé um þáttaskil að ræða. En deilunni er ekki lokið og þvi ástæðulaust að fjalla þar frek- ar um á þessu stigi”. —EKG Herskipin fara af íslandsmiðum: — en koma aftur ef varð- skipin áreita togarana „Bresku herskipin verða send aftur á tslandsmið, ef islensku varðskipin halda áfram að áreita breska togara innan 200 milna landhclginnar, sem is- lendingar hafa tekið sér með einhliða ákvörðun”, sagði James Callaghan, utanríkisráð- herra breta, eftir að hann lýsti þvi yfir, að bretar myndu kalla herskipin heim af islandsmið- um. Breski utanrikisráðherrann gerði grein fyrir þessari ákvörðun eftir að hafa setið lið- lega þriggja klukkustunda fund ineð Joseph Luns, fram- kvæmdastjóra Atlantshafs- bandalagsins i Brussel i gær- kvöldi. Hann sagði einnig, að Geir Hallgrimssyni, forsætis- ráðherra, yrði boðið til Lundúna til að ræða landhelgisdeiluna við Wilson, forsætisráðherra breta. Viðbrögðin i Hull Formælandi Sambands breskra togaraeigenda sagði i gærkvöldi, er hann frétti um yfirlýsingu Callaghans, að breska stjórnin hlyti að hafa fengið einhverskonar tryggingu fyrir þvi, að islensku varðskipin létu bresku togarana i friði, áð- ur en ákvörðun var tekin um að senda herskipin heim. Hann sagði, að erfitt væri að trúa þvi, að breska stjórnin kysi að leika sér með lif breskra sjó- manna. Hún hlyti að hafa fengið einhverja tryggingu fyrir þvi, að togararnir yrðu látnir óáreittir. Luns varð fyrir vonbrigðum Ákvörðun breta um að kalla herskipin heim kom aðeins nokkrum klukkustundum eftir að islendingar tilkynntu, að ef bresk herskip yrðu ekki á brott úr islenskri landhelgi á mið- nætti 24. þessa mánaðar, jafn- gilti það stjórnmálaslitum við breta. f fréttum frá Brussel segir, að Joseph Luns, framkvæmda- stjóri Atlantshafsbandalagsins, hafi oröið fyrir miklum von- brigðum, er hann frétti um ákvörðun Islendinga um að slita stjórnmálasambandi við breta. Haft er eftir honum, að þessi ákvörðun gerði honum erfiðara fyrir I sáttastarfinu. Bretar undrandi I frétt frá Lundúnum segir, að bresk stjórnvöld hafi orðið undrandi á „timasetningu” ákvörðunar islendinga um stjórnmálaslitin. Tilkynnt hafi verið um ákvörðunina skömmu áður en breski utanrikisráð- herrann og Joseph Luns hafi verið búnir að ákveða fund til að fjalla um málið. Þá er þess einnig getið, að Luns hafi hringt i Geir Hall- grimsson, forsætisráðherra, á meðan á fundi þeirra Callag- hans stóð. — Þegar Callaghan tilkynnti um ákvörðun bresku stjórnar- innar á blaðamannafundi, var hann spurður hvort bretar myndu gera samning við is- lendinga þar sem ákveðinn yrði 65 þúsund lesta ársafli. Breski utanrikisráðherrann sagði, að umræður um aflamagn yrðu að biða betri tima. ^skattaleiðbÍi^ ^ INGARNAR FYLGJA MEÐ BLAÐINU í DAG Sýna vald sitt hvítt ó svðrtu! Veðurguðirnir hljóta að hafa sérstakt dálæti á islendingum. Dag eftir dag, viku eftir viku hafa þeir eytt öllum kröftum sinum til að sýna það svart á hvitu (eða hvitt á svörtu?) hvers þeir séu megnugir. Og þvi miður virðist ekkert lát ætla að verða á þessum darraðardansi. Myndina tók Jim i gær af einu fórnardýra veöurguðanna. STJÓRNARANDSTAÐAN ANDVÍG FORMLEGUM SAMNINGAVIÐRÆÐUM Vfsir leitaði tii forsvarsmanna stjórnarandstöðunnar og innti þá álits á þvi, hvort við islendingar ættum að ganga til samninga- viðræðna við breta eftir að þeir væru búnir að kveðja herskipin út fyrir 200 milurnar. ,,Allt i lagi að eiga við þá könnunarviðræður” sagði Magnús Torfi. „Það fer eftir fleiru en þessum aðgerðum” sagði Magnús. „Það veltur á þvi með hvers kyns hugarfari bretar ganga til samninganna — hugmyndum þeirra um hugsanlegar niðurstöð- ur. Ég álit það óhugsandi að hefja við þá formlegar samninga- viðræður, en allt i lagi að eiga við þá könnunarviðræður um málið”. ,,Enginn grundvöllur fyrir þvi frá okkar hálfu” sagði Lúðvik Jósefsson. ,,Ég álit það vera alveg út i hött" sagði Lúðvik. „Það er enginn grundvöllur fyrir þvi frá okkar hálfu að taka upp samningaviðræður við breta um veiðiheimildir. Það yrði litið á það sem við ætluðum að semja við þá um 65 þús. tonn eða meira og mundi setja okkur i óleysan- legan vanda hér heima fyrir”. Ekki tókst að ná i Benedikt Gröndal til þess að leita hans álits á málinu. — VS.

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.