Vísir - 20.01.1976, Side 7

Vísir - 20.01.1976, Side 7
vism Mánudagur 19. janilar 1976. . I 7 MISST AF STRÆTISVAGNI Þegar mörg og mikil tiðindi gerast samtimis, fjöldi merki- legra deilumála þróast eins og best verður á kosið, merkir gáfu- menn viðra sig f dagblöðunum og fjalla um aðskiljanlegustu hluti svosem eins og Kröflumáiið, Brecht, Alþýðublaðiö, Ver- fremdungseffektinn, Bókmennta- verölaun Norðurlandaráðs, Náttúrulækningafélag tslands, < sem raunar er senníiega langmerkilegasta deilumáliö sem nii er I gangi í blöðunum þó aö undirritaöan hafi ennþá skort ÞREK til þess að fylgjast nægi- lega vel meö því), að ógleymdu sjálfu „máli málanna” — málinu, sem að sjálfsögðu hefur algjöran forgang — Landhelgismálinu — þegar allt þetta dynur yfir sam- timis, þá vandast mjög verkefna- valið fyrir þennan dálk. Það má vissulega merkilegt heita hjá þjóð, sem undantekn- ingarlitiö lukkast að vera ósam- mála um flesta hluti, að þó skuli henni takast að vera nokkurn veginn sammála um það mál, enda þótt menn greini vitanlega á um leiðir — sem skiljast raunar fyrir alvöru, þegar rætt er um hvort og hvemig NATO skuli blandast i málið. Merkasti viðburðurinn á nýja árinu Að minu viti voru aðgerðir þeirra Suðurnes jamanna og Hornfirðinga um næstsiðustu helgi merkilegustu viðburðir þessa nýbyrjaða árs — þ.e.a.s. þeirra af manna völdum, enda ekki sannað aö eldgos við Kröflu og jarðskjálftar i Kelduhverfi séu beinlínis af mannavöldum. Þessar aðgerðir sýndu að minu viti þjóðarhuginn margumtal- aða betur og skýrar en hinar fjölmörgu fundarsamþykktir, ályktanir, blaðaskrifin og ræöu- höldin, og þá um leið og ekki síð- ur, hversu heitt mönnum var og er i hamsi. Hér var ekki um þrautskipulagðar ráðstafanir að ræða ogsíst af öllu, að undirbiin- ingurinn hafi verið langur og gagnger — þvert á móti! Og jafn- skjótt og Grindvikingar höföu rið- ið á vaðið, var engu llkara en einskonar vakning ætti sér stað, Sandgerðingar létu ekki á sér standa og Hornfirðingar enn síð- ur. Þá voru þessir viðburðir ekki síöur merkilegir fyrir þær sakir, hverjir að þeim stóðu. Eftir þvi sem manni skilst, voru það út- gerðarmenn, skipsstjórar og há- setar — kjarnakarlar úr þeim stjórnmálaflokkum, sem hlynntir eru aðild okkar að NATO og veru varnarliðs i landinu — af þessum stöðum. Hvað vildu svo þessir menn með þvl að loka vegum að hinum ýmsu stöðvum varnarliðs- ins I Grindavik, „Rockville” og Stokksnesi? Mér þykir sem fyrir- sögn Dagblaðsins frá 12. janúar svari þeirri spurningu hvað best: ólíkt fréttamat Það var vissulega lærdómsrikt að fylgjast með þvi, hvernig blöð- in skýrðu frá þessum atburðum oghvaðfréttagildi þeirra var tal- ið mikið á hinum ýmsu rit- stjórnarskrifstofum. Siðdegis- blöðin gátu þeirra nokkuð á for- siðum, en helguðu þeim verulegt rúm á innsiðum og birtu auk þess ágætar myndir. Fréttin fékk einnig heima i eindálki á forsiðu Þjóðviljans á þriðjudag — sem annars var helguð tillögum Lúð- viks Jósepssonar i Landhelgis- nefndinni eins og vera bar! Þeim mun meira rúm var veitt á inn- siðum blaðsins, þar sem heil opna var helguð frásögnum, myndum og viðtali við forystumann þeirra Grindvikinga, Edvarð Júliusson útgerðarmann,og mun það senni- lega fádæmi að varaþingmaður Sjálfstæðisflokksins fái jafn mik- ið rúm fyrir skoðanir sinar (og mynd af sér I ofanálag!) i þvi blaði! Timinn átti ofurlitið pláss á þriðju siðu — engar myndir — en forsiða blaösins var helguð um- mælum Helga Hallvarðssonar skipherra og Ólafs Jóhannesson- ar dómsmálaráðherra og vitan- lega ekkert nema gott eitt um hvorttveggja aö segja. Morgun- blaðið gat um atburðina neðst á annarri siðu — með þessari fyrir- sögn: Páll Heiðar Jónsson skrifar: |Vcgartálnii vifl Stukksnesstöflina: AÐGERÐIHNAR HAFA NÁÐ j [TILGANGI sínumíjbili - scgja SuAurncsjamcn Tvær ljósmyndir fylgdu með Morgunblaðsfréttinni, en forsíða blaðsins, sem yfirleitt er helguð erlendum fréttum nema um eitt- hvað verulega markvert sé að ræða af innlendum vettvangi, fjallaði um mótmæli og verkföll á Spáni og skaðsemi fiskveiðideil- unnar fyrir NATO. Stórfrétt i útlöndum En þótt meðferð blaðanna á þessum atburðum væri næsta ólik, svo ekki sé meira sagt, þóttu útlendingum þeir vera þeim mun meiri tiöindi, og áður en deplað væri auga, voru aðgerðir Suður- nesjamanna og Hornfirðinga orönar heimsfréttir. Sem dæmi um áhuga manna erlendis má geta þess, að til min hringdi fréttastofa Nýsjálenska útvarps- ins og stóðu menn þar beinlinis á öndinni yfir þvi, að „búið væri að loka NATO-stöðvunum á Is- landi”, eins og þeir komust að orði. Ég er þeirrar skoðunar, að mótmæli þessi hafi þannig haft meiri áhrif erlendis en margt, ef ekki flest annað, sem gerst hefur i þorskastriðinu til þessa — gert ótvirætt gagn og vakið athygli út- lendinga á nauðsyn þess að leysa fiskveiðideiluna sem fyrst! Þá upplýstist það einnig, hverj- um þeir ágætu Suðurnesjamenn ogHornfirðingaráttu heimsfrægð sina að þakka. Það var engum öðrum að „gamla Visi” — a.m.k. eignaði blaðið sér þann heiður s.l. þriðjudag: iVísir Tkom Tréttum heimspressuna Fáar fréttir I sambandi vib þorskastrlbift hafa vaklb jafn- mikla athygli erlendis og lok- un leiAa a*A fjarsklptastöAvum varnarllAsins. ÞaA var fyrir tilstilli VIsls aA fréttirnar af atburAunum komust nýjar og ferskar f heimspressuna. Þegar blaöamenn VIsis höfAu samband viA frétta- menn Reuter og BBC hér á landi, hafAi hvorugur heyrt af atburöunum. En þeir komu fréttunum inn I aAalfréttatima dtvarps og sjónvarpsstöbva, vegna þess hversu skjótt var brugAiA viA. Ritzau fréttastofan danska fékk fréttirnar frá Visi, og sömuleiAis eitt ensku dagblaA- anna. —OH Misstu af strætó! Ég gat þess hér að framan, að merkilegir mættu atburðir þessir kallast fyrir þá sök, hverjir að þeim stóðu. Fram að þessu hefur viss hópur, sem sumir kalla „kommadót”, aðrir „þjóðholl og vakandi vinstri öfl” og énn aðrir „ofstækis- og öfgalýð” haft nokk- urs konar einkarétt á þvi að hafa i frammi það sem útvarpið nefnir „andóf”. 1 þessu tilviki brá svo við, að þeir aðilar, sem fram til þessa hafa „staðið i fylkingar- brjósti” eða „haft i frammi skrilslæti” hvort heldur orðalagið lesendur kjósa að nota — misstu algjörlega af strætisvagninum, útgerðarauðvaldið og ihalds- pakkið á Suðurnesjum og Horna- firði skaut þeim gersamlega ref fyrir rass! Og svona lika hressi- lega! Og það samtimis þvi að Samtök lierstöðvaandstæðinga eru i róiégheitum að mynda starfshópa til þess að stúdera áhrif „hernámsins” á islenskt þjóðlif------! En okkar fólk lét ekki lengi að sér hæða. I blöðunum á fimmtu- dag og föstudag lásum við nefni- lega: Slik var fyrirsögn Þjóðviljans en fyrir þá lesendur, sem ekki átta sig á hver „NATO-Mangi” er, skal fyrirsögn Morgunblaðs- ins af sama atburði einnig til- færð: FRuddust inn á skrifstofu : t,,Vestrænnar samyinnu’ J Er skemmst frá að segja, að 27 manna hópur „verkafólks og námsmanna” eins og þetta fólk kynnti sig fyrir blöðunum, stöðv- aði NATO-störf Magnúsar Þórö- arsonar eina morgunstund, en hafði áður gætt þess að boða pressuna á staðinn, þannig aö enginn missti af þessu baráttu- framtaki. Þetta þóttu hinar ágætustu fréttir að mati blaðanna og brá nú svo við, að dálkar þeirra voru nokkurn veginn jafn langir — þó Þjóðviljinn vinni samt keppnina með sjónarmun — en hinsvegar hefi ég ekki orðið þess var, aö uppátæki þetta hafi vakið viðlika eins mikla athygli erlendis og mótmæli Suðurnesjamanna og Hornfirðinga, hvernig sem á þvi stendur. Kannskier skýringin sú, að i þvi tilviki stóðu fáein hundruð vopnlausra manna gegn „máttugasta herveldi heimsins”, svo notað sé orðalag Þjóðviljans, en i þvi siðara 27 baráttufélagar „verkafólks og námsmanna” gegn Magnúsi einum. Setning vikunnar: Og þá er komið að athyglis- verðustu ummælum vikunnar, en þau tel ég vera svar Geirs Hall- grimssonar forsætisráðherra á blaðamannafundi s.l. föstudag, þegar hann var spurður álits á tittnefndu andófi Suðurnesja- manna og Hornfirðinga. Ráð- herrann sagði m.a.: .Þessar aðgerðir eru ’andstæðar islenskum rhagsmunum ég 1 harma þær. Birta sjónvarpsins Jón Júliusson I hlutverki Dússa sýnir guðfræðinemanum Balda, Jóni Hjartarsyni, hvernig stjörnukerfið raunverulega er. Jörðin stendur kyrr en sólin snýst umhverfis hana. Það færöist birta yfir skjáinn á sunnudagskvöldið, þegar leik- ritið Birta eftir Erling E. Halldórsson var frumsýnt. I fyrsta skipti i langan tima kom fram reglulega vel gert og vandað leikrit sem er þvi til mikils sóma. Það var greinilegt að ekki var farið eftir má-ekki-kosta-mikla-pen inga-formúlunni, sem er vart viö hæfi. Það er að minu mati viturlegra aö sýna einu verkinu færra en vanda þeim mun meira til þess sem sýnt er. Birta gerist i nútimanum og viðkynnumst ólikum persónum, sem raunverulega eru til. En þegar upp er staðið spyrjum viö okkur sjálf, hver þeirra hafi verið einkennilegust. Uppbótar- þingmaðurinn sem fer á ráð- stefnur erlendis án umboös, eiginkona hans, sem snúið hefur baki viö hugsjóninni til að fylgja manni sinum i bliðu og striöu, guöfræðineminn, sem heldur að kona hans fæði eingetið barn, Dússi, sem leitar viskusteinsins og finnur hann að lokum eða kannski Birta sjálf, sem leitar ástar hjá manni sem er af allt öðru sauðahúsi en hún og auk þess miklu eldri. Leikritið hafði þann mikla kost, að hvergi kom i það Ingibjörg Jóhannsdóttir, Birta, á leiö upp á fæðingar- deild aðfæða barn. Dússi, Jón Júliusson, býðst til að fylgja henni, þvi Baldi, unnusti Birtu, fæst ómögulega til að vakna. „dauður” punktur, heldur hélt það viðstöðulaust áfram og maður beið eftir endinum með eftirvæntingu. En að leikritinu loknu lágu eftir margar spurningar sem hver og einn verður að svara fyrir sig. Ingibjörg Jóhanns- dóttir lék Birtu og er þetta fyrsta meiriháttar hlutverk hennar en hún hefur áður unnið við gerð auglýsingakvikmynda. Hlutverkið fórst henni vel úr hendi, hún oflék hvergi og hafði svipbrigði kvikmyndaleikarans en ekki leiksviösleikarans. Það kom ekki fram hvers vegna hún hélt sa mbandi við þingmanninn, en einna helst er það vegna þess að ástalif hennar og Balda, guð- fræðinemans, var allt úr skorð- um vegna sambýlisins við Dússa. Gunnar Eyjólfsson og Margrét ólafsdóttir léku þingmannshjónin. Gunnar er eins og skapaður i þingmanns- gervið og ferst það vel úr hendi og lék vel hinn umhyggjusama eiginmann þrátt fyrir samband sitt við Birtu. Þótt kona hans væri honum stoð og stytta, „hugsaöi hans hugsanir”, átti hún þó sin leyndarmál og voru hugsanir hennar smekklega felldar inn i myndina og nauðsynlegar til að skilja at- hafnir hennar siðar meir. Jón Júliusson lék hinn geösjúka Dússa ágætlega, manninn sem leitaði að viskusteininum, upp- gjafa útvarpsvirkjann, sem átti konu og þrjú börn úti i bæ. Hann er tákn þeirra manna sem gefist hafa upp i kapphlaupinu og hverfa inn i sjálfa sig i óraun- verulegan heim eigin hugsana. Kannski er það besta leiðin til aö lifa þetta allt saman af. Mig langar að geta þess að ljósa- meistari sjónvarpsins hjálpaöi Jóni mikið við aö gera Dússa jafn sjúkan og hann var með lýsingu, sem var best, þegar hann hafði fundið viskusteininn. Jón Hjartarson lék guðfræði- nemann eins og hann gat, en mér fannst persónusköpun höf- undarins ekki nægilega góð til að gefa tækifæri til sérstakra tilþrifa. Hlutverk Guðrúnar Stephensen fannst mér innskot sem átti varla heima i stykkinu nema þá til að sýna aðra tegund uppgjafar á lifinu. Leikstjórinn, Þorsteinn Gunnarsson, og tæknimenn sjónvarpsins eiga þakkir skild- ar fyrir þá alúð sem þeir lögðu i vericið. Þetta sjónvarpsleikrit hafði þann stóra kost að i þvi var mynd og hreyfing sem er nauösynlegt hverju sjónvarps- efni en oft vill skorta á. Óskandi er að vinnsla næstu leikrita sjónvarpsins verði með sömu ágætum og i þessu verki. Rafn Jónsson.

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.