Vísir - 02.04.1976, Blaðsíða 6
Föstudagur 2. april 1976. vism
Guðmundur Pétursson
Allt í bál og brand
á Ítalíu vegna fóst-
ureyðingafrumvarps
Frjálsar fóstureyðingar kunna
að valda þvilíkri stjórnmála-
kreppu á ttaliu að efna verði til
nýrra þingkosninga. Hörkudeilur
urðu á þinginu i gær vegna
breytingartillögu frá kristilegum
demókrötum og nýfasistum við
lagafrumvarp sem miðar að þvi
að gera fóstureyðingar löglegar.
Ef breytingatillagan verður sam-
þykkt, fellur frumvarpið um
frjálsar fóstureyðingar um sjálft
sig.
Tillaga kristilegra demókrata
og nýfasista heimilar aðeins
fóstureyðingu ef konu er nauðgað,
eða ef barnsburður ógnar lifi
konu.
Allir aðrir stjórnmálaflokkar á
ttaliu styðja frumvarpið um
frjálsar fóstureyðingar. En
samanlögð atkvæði hinna flokk-
anna tveggja gætu nægt til að
koma breytingatillögunni i gegn.
Sósialistar eru einna harðastir i
að koma frumvarpinu i gegn.
Þeir mynda eins og er starfhæfan
meirihluta með kristilegum
demókrötum. Vegna fóstur-
eyðingamálsins er hætta á slitum
þessa samstarfs, og þá blasir
ekkert við nema kosningar.
Ef til kosninga kemur, má bú-
ast við það auknu fylgi vinstri-
sinnaðra flokka, að þeir nái
meirihluta á þingi. Ef kristilegir
demókratar og nýfasistar koma
breytingatillögu sinni í gegn, er
hætt við miklu fylgistapi þessara
flokka, sérstaklega kristilegra.
Rússneskum njósnurum vísað frá
Hollandi
Tveim rússum, sem
starfað hafa i Hollandi,
hefur verið visað þaðan
úr landi, vegna þess að
þeir reyndu að kaupa
sér upplýsingar um raf-
eindaútbúnað i herþot-
um — eftir þvi sem hol-
lenska utanrikisráðu-
neytið kunngerir.
Embættismenn ráðuneytisins
sögðu fréttamönnum, að rússarn-
ir mundu fara úr landi innan
skamms, en þeir hafá verið nafn-
greindir, og er annar G.M.
Burmistrov verslunarfulltrúi i
Amsterdam, en hinn V.T. Khly-
stov, forstjóri hollensk-sovéska
fyrirtækisins, Elorg, sem aðsetur
hefur i Hilversum.
Ráðuneytið segir, að mennirnir
hafi verið á höttunum eftir
hemaðarleyndarmálum, jafnt
upplýsingum um herþotuna sjálfa
sem rafeindaloftsiglingabúnað-
inn og geimrannsóknartæki.
Þeim var visað úr landi á
grundvelii þess, að atferli þeirra
ogstarfsemi væri ekki i samræmi
við forsendur þær, sem þeir fengu
landvistarleyfi á.
Ekki fékkst upplýst, hvaða her-
þota það hefði verið, sem
rússarnir sýndu svona mikinn
áhuga. — Sovéska sendiráðið hef-
ur ekkert viljað um málið segja.
Vöruflutningabílstjórar í
verkfalli í Banda-
ríkjunum
Ford-stjórnin hefur
varað vörubilstjóra-
félagið, sem hóf verkfall
i fyrrinótt, við þvi, að
lýst verði yfir neyðar-
ástandslögum og i skjóli
þeirra bilstjórum fyrir-
skipað að hefja aftur
störf, ef deila þeirra
leysist ekki hið bráð-
asta.
Atvinnumálaráðherrann, Willi-
am Usery, lýsti þessu yfir i gær,
nokkrum klukkustundum eftir aö
verkfallið hófst. Er þetta viðtæk-
asta verkfall vörubilstjórasam-
takanna siðan þau voru stofnuð,
en innan þeirra vébanda eru um
450.000 félagsmeðlimir.
Menn hafa þegar reiknað út, að
einnar viku langt verkfall muni
gera um milljón manna atvinnu-
'iausa og kosta þjóðarbúið um 300
milljónir dollara. Sjá þeir fram á
vöruskort i verslunum, ef verk-
fallið leysist ekki innan tveggja
vikna.
1 lögum er gert ráð fyrir, að
stjórnin geti slegið verkfalli á
frest um 80 daga til að reyna til
þrautar að knýja fram samninga.
Vörubilstjórar i Bandarikjun-
um, hafa um 7,18 til 7.33 dollara á
klukkustund i laun, en hafa farið
fram á 30% hækkun.
Rubinstein
h eiðraður
Pianósnillingurinn Artur Rubin-
stein var i gærTieiðraður sérstak-
lega af Gerald Ford Bandarikja-
forseta við hátiölega athöfn i Hvita
húsinu. — Sæmdi forsetinn hann
frelsisoröunni.
Forsetinn sagöi, aö Rubinst^in
heiði — siðan hann flutti vestur til
Bandarikjanna fyrir 30 árum —
„orðiöeittaf gersemum þjóöarinn-
ar”.
Hinn pólskættaöi pianósnillingur,
sem nú er 89 ára að aldri, kom fyrst
fram i Bandarikjunum á hljómleik-
um i Carnegie Hall i New York fyr-
ir 70 árum.
Sterlingspundið sígur
Breska sterlingspundið féll i
verði á gjaldeyrismarkaði Zurich i
Sviss i gær, og virtust allir vilja
losasigvið pundinsin,meðan mikil
eftirspurn var eftir vestur-þýskum
mörkum og svissneskum frönk-
um. Um leið minnkaði ögn eftir-
spurn eftir Bandarilcjadölum.