Vísir - 02.04.1976, Blaðsíða 10
Föstudagur 2. april 197«.
VÍSIR
SKÍRN í KÓPAVOGI
Ungmennafélag Reykdæla hefur i vetur sýnt leikrit Guðmund-
ar Steinssonar, Skirn, að Logalandi.
Leikflokkurinn leggur nú land undir fót og sýnir leikritið i
Félagsheimili Kópavogs annað kvöld kl. 8.30.
Á myndinni heldur Maja (Margrét Gunnarsdóttir) á barni sinu
undir skirn. Gestir og heimilisfólk horfir alvörugefið á prestinn
(Kristófer Má Kristmundsson) skira.
RÁS 76
Urir nemendur Myndlista og
Handiðaskólans hafa tekið
saman höndum og opnað grafik-
sýningu i vinnustofu Guðmund-
ar Árnasonar að Bergstaða-
stræti 15.
Að henni standa Reinhild Pat-
zelt, Ásgeir Einarsson og Skúli
Ólafsson. Þremenningarn-
ir Ijúka prófi frá skólanum i vor
og voru meðal þeirra nemenda
sem Rudolf Weissauer kenndi,
þegar hann var hér fyrir jólin.
Á sýningunni eru alls 27
grafikmyndir allar á viðráð-
anlegu verði.
Mozart til
heiðurs
Mozart-tónleikar
verða haldnir á sunnu-
dag i tengslum við
Minningarsýningu
Ásgrims Jónssonar, en
Ásgrimur var mikill
unnandi Mozarts.
Margir tónlistamenn koma
fram. Guðný Guðmundsdóttir
og Gisli Magnússon leika sónötu
fyrir fiðlu og planó.
Sigriður E. Magnúsdóttir og
Jónas Ingimundarson flytja
sönglög. Þá verður fluttur
kvintett i ES-dúr fyrir pianó og
blásara. Flytjendur eru þeir
Jónas Ingimundarson, Sigurður
Y. Snorrason, Kristján Stephen-
sen, Stefán Stephensen,
Hafsteinn Guðmundsson.
Tónleikarnir verða haldnir i
Austursalnum og hefjast kl. 3.
Háskólakórinn hefur stefnt að
þvi að flytja verk eftir núlifandi
islensk tónskáld og það mun
hann einnig gera á tónleikunum
i Félagsstofnun stúdenta á
morgun. Frumflutt vcrður verk
eftir Jón Asgcirsson við kvæði
Jóhannesar úr Kötlum. ”Á
þessari rimiausu skeggöld”.
Jón samdi þetta verk fyrir
nokkrum árum við danska þýð-
ingu á ljóðinu og var verkið
flutt i þeirri mynd i Danmörku
en nú hefur Jón breytt verkinu
mikið og færði hann kórnum það
til flutnings snemma á þessu
ári.
Auk verks Jóns mun kórinn
syngja stúdentalög, negra-
sálma, þjóðlög frá Ungverja-
landi, Bulgariu og Englandi,
talkór úr indverskri óperu og
lög eftir Bent Lorentzen við
danska þýðingu á 3 ljóðum eftir
Mao tse-Tung. Háskólakórinn lýkur með þessum tónleikum 3. starfsári sinu.
Kórinn er með þessum tón- Rut Magnúsdóttir hefur verið stjórnandi kórsins frá upphafi.
Ljósm. Jim.
„Á þessari rímlausu skeggöld"
leikum að ljúka 3. starfsári sinu,
en fyrr i vetur tók hann þátt i
flutningi Carmina Burana
ásamt söngsveitinni Fil-
harmoniu og Sinfóniu-
hljómsveitinni. Stjórnandi frá
upphafi hefur verið Rut
Magnússon.
Tónleikarnir hefjast kl. 5 á
morgun og verða endurteknir á
sunnudag kl. 20.30, einnig i
Félagsstofnuninni.
Finnsk
list að
Hallveigar-
stöðum
Um helgina stendur yfir sýn-
ing á verkum finnsku listakon-
unnar Oili Elinar Sandström.
Elina Sandström hefur verið
busett hérlendis i 9 ár en býr nú
i Norður-Finnlandi. Hún hefur
stundað listmálun yfir 25 ár og
hefur náð sérstökum árangri i
gerð „miniatyrer” eða litlum
oliuverkum.
Að þessu sinni sýnir hún 58
oliuverk og sækir myndefni sitt
bæði i finnskt og islenzkt lands-
lag.
Þetta er fyrsta sýning Elinu
hér á þessu ári, en hún hélt hér
þrjár sýningar á liðnu ári.
Sýningin stendur til sunnu
dagskvölds og er opin frá kl. 2 -
10.
„Eins og ferskur vor-
blær kemur nú „Textil-
gruppen” frá Stokk-
hólmi i sýningar-
sali Norræna hússins
með sin litriku
blómstrandi og frum-
legu verk. „Textil-
„Eins og
ferskur
vorblœr"
gruppen” hefur aðset-
ur sitt i gömlu húsi á
Söder i Stokkhólmi, þar
sem hópurinn hefur
sameiginlega sýn-
ingarsali og verslun, en
verk þeirra bera með
sér sterka samfélags-
kennd.” segir Maj-
Britt Imnander i skrá
að sýningu sem opnuð
verður á morgun kl. 2.
Fjórar frá Stokkhólmi: (f.v.) Tania Alyhr, Asa Bengtsson,
dargareta Röstin og Kristina Laurent eru fjórar úr hópi
leirra 44 listakvenna sem eiga myndir á sýningunni i Norræna
íúsinu. ... , r.
Ljosm. Loftur.
A sýningunni i
Norræna húsinu eru
ýmis konar textilverk.
Myndvefnaður, tau-
þrykk og textil-
skúlptúr. í „Textil-
gruppen” eru 44 lista-
konur, en fjórar þeirra
komu með sýninguna
til landsins, settu hana
upp og munu kynna
hana. Sýningin stendur
til 19. april og er opin
daglega kl. 2—10.