Vísir - 29.07.1976, Page 1
3HflBBBHHHnSHH3HBBHHSBHBHflHflBHflflHHflHBBflflHBfl9HBBSHflflflflHBBH
Flugleiðir greiða
varnarliðinu stórfé
— en varnarliðið hefur ókeypis afnot af flugskýlum okkar
CATAUNA
OG KASSA
FLUGVÉL
Sjó flugsíðu
Flugleiðir greiða
varnarliðinu rúmar 11
milljónir islenskra
króna (60.000$) á ári fyr-
ir afnot af einu flugskýla
varnarliðsmanna.
Skýli þetta er notað
við svokallaðar B-skoð-
anir á Boeing-þotum fé-
lagsins, en sllkar skoð-
anir munu framkvæmd-
ar á um það bil mánað-
arfresti og taka 8-9
klukkustundir i senn.
Minna má á skrif Visis
um flugskýlin þrjú, sem
nú hefur verið staðfest
að eru eign islendinga.
Þau skýli hefur varnar-
liðið notað endurgjalds-
laust i 25 ár.
Skýli það sem flug-
leiðamenn leigja að-
stöðu i er að sögn flug-
virkja, sem i gærkvöldi
unnu þar við skoðun á
annarri Boeing-þotu
Flugleiða, einstaklega
lélegt og hvorki vatns-
né vindhelt. Til marks
um það sögðu þeir visis-
mönnum, að Flugleiðir
sæju þeim fyrir stigvél-
um til notkunar inni i
skýlinu.
Viðræður fóru fram i
gær milli flugvirkja og
utanriksiráðherra um
hugsanlega notkun á is-
lensku skýlunum þrem-
ur, sem Visir hefur gert
sér að umtalsefni.
Að sögn flugvirkja
voru viðræðurnar mjög
gagnlegar og verður
þeim fram haldið á
morgun. í millitiðinni,
mun eiga að kanna af-
stöðu Flugleiða til máls-
ins.
—JOH
Flugvirkjar unnu I gærkvöldi af kappi viö skoöun á Boeing-þotu Flug leiöa.
sem varnarliöiö notar nú sem bilaverkstæöi og geymslu.
Vinnuaöstaöa er þarna slæm og mun verri en I islensku skýlunum
Þýski glœpasérf rœð
ingurinn kominn á
ný til landsins
— Mun ekki rceða við fjolmiðla fyrst um sinn
1 \
Tðlva spáir
góðu veðri
á suðurlandi
á mánudag
Samkvæmt 5 daga
tölvuspá, sem út-
reiknuð er vestur i
Bandarikjunum, er
gert ráð fyrir norð-
iægri átt á landinu á
verslunarmannafri-
daginn nk. mánudag.
Ef hún reynist rétt mega
sunnlendingar búast viö nokk-
uð góöu og björtu veðri, en
veöur veröur verra noröan-
lands. Aö sögn veðurfræöinga
á Veöurstofu íslands er þó
varhugavert aö byggja um of
á þessari spá. Eftir þvi sem
spáð er lengra fram i timann,
verða spárnar óáreiöanlegri.
Gert er ráð fyrir noröaustan-
átt næsta sólarhringinn, með
björtu veðri á Suðvesturlandi
en súld annað slagið og kulda
á Norður- og Austurlandi.
—AHO.
Vestur-þjóðverjinn
Karl Schutz kom til
landsins i gærkvöld.
Schutz er hingað kom-
inn fyrir atbeina dóms-
málaráðuneytisins, og
mun hann aðstoða rann-
sóknarlögregluna við
rannsókn Geirfinns-
málsins svonefnda.
Vfsir reyndi að ná sambandi við
Schutz i rnorgun, en tókst ekki aö
hafa upp á honum. Hann var
hvergi að finna á gestalistum'
hótelanna i Reykjavik, oghvorki
dómsmálaráðuneytið né saka-
dómur gátu eða vildu upplýsa
hvar hann dveldist.
Orn Höskuldsson sakadómari
sem unnið hefur að rannsókn
hinna umfangsmiklu sakamála,
sem athygli fólks hefur mjög
beinst að upp á siðkastið, kom til
landsins með sömu flugvél og
þýski sakamálasérfræðingurinn
frá Luxemburg i gærkveldi.
Visir náði tali af Erni i morgun
og varðist hann allra frétta um
ferðir sinar eða tilgang þeirra, en
játaði þó að hafa verið i Þýska-
landi. Hann kvaðst vita, að þjóð-
verjinn, sem hingað er kominn,
vildi ekki ræða við fjölmiöla á
þessu stigi málsins.
Baldur Möller, ráðuneytisstjóri
dómsmálaráðuneytisins lagði á
þaö áherslu i viðtali viö Visi i
morgun, að meðferð saka-
málanna og rannsókn öll væri
algjörlega á vegum Sakadóms
Reykjavikur, og starfsmenn hans
yrðu þvf að meta, hvort og
hvenær upplýsingar um málið og
meðferð þess yrðu látnar i té.
—SJ/AH
ÆTLARÐU
AÐ KÆRA
SKATTANA
ÞÍNA?
Leiðbeiningar um það hvernig
á aö fara að þvi, finnurðu i
þættinum „Málalok”.
*
Stórlaxar
veiddu
j stórlaxa
1