Vísir - 29.07.1976, Blaðsíða 10

Vísir - 29.07.1976, Blaðsíða 10
10 ’ VÍSIR Útgefandi: Reykjaprent hf. Framkvæmdastjóri: Davift Guftmundsson Ritstjórar: Þorsteinn Fálsson, ábm. Ólafur Kagnarsson Ilitstjórnarfulltrúi: Bragi Guftmundsson Fréttastj. erl. frétta: Guftinundur Pétursson Blaftamenn: Anders Hansen, Anna Heiftur Oddsdóttir, Edda Andrésdóttir, Einar K. Guftfinnsson Jón Ormur Halldórsson, Kjartan L. Pálsson, Ólafur Hauksson, Óli Tynes, Rafn Jónsson, Sigriftur Egilsdóttir, Sigurveig Jóns- dóttir, Þrúftur G. Haraldsdóttir. íþróttir: Björn Blöndal, Gylfi Kristjánsson. Útlitsteiknun: Jón Óskar Hafsteinsson Ljósmyndir: Jens Alexandersson, Loftur Asgeirsson. Auglýsingastjóri: Þorsteinn Fr. Sigurftsson. Dreifingarstjóri: Siguröur R. Pétursson. Auglýsingar: Hverfisgötu 44. Simar 11660 86611 Afgreiftsla: Hverfisgötu 44. Simi 86611 Ilitstjórn: Siftuinúla 14. Simi 86611.7 linur Áskriftargjald 1000 kr. á mánufti innanlands. í lausasölu 50 kr. eintakift. Blaftaprent hf. ^ Framsóknartrúin á undanhaldi Ritstjóri Timans heldur uppteknum hætti i mál- gagni sinu og Framsóknarflokksins og klifar enn á þvi að Visi eigi að flokka með dönskum æsifrétta- blöðum, sem hann kallar svo. Virðist hann eiga erfitt með að kyngja þvi, að fréttir séu sagðar án tillits til þess hvaða pólitiskir flokkar eða hags- munahópar eigi þar hugsanlega hlut að máli og staðreyndir séu birtar án þess að ályktanirséu af þeim dregnar eða flokkspólitiskt mat látið fylgja þeim. Þá gefur hann i skyn, að fréttaval og meðferð frétta miðist fyrst og fremst við hvað helst selji blaðið þann daginn og fer ýmsum niðrandi orðum um starfslið og útgefendur Visis. Hvað svo sem hefur mátt segja um Visi fram að þeim tima, er mannaskiptin urðu á blaðinu siðast- liðið haust, og nokkrir þeirra manna, sem áður höfðu mótað stefnu blaðsins stofnuðu Dagblaðið, — þá er það vist, að núvérandi ritstjórar blaðsins hafa engan hug á að gefa út það sem ritstjóri Timans kallar æsifréttablað eða sorpblað. Þvert á móti birt- ir Visir traustar fréttir, sem byggðar eru á áreiðan- legum heimildum, og eru þær á allan hátt unnar i samræmi við lögmál þau, sem heiðarlegir blaðamenn hafa i hávegum. Það hefur einnig sýnt sig, að lesendur Visis kunna vel að meta vinnubrögð blaðamanna og svip blaðs- ins þar sem kaupendum fjölgar sifellt.ekki sist úti um land, þar sem Vísir hafði áður selst i takmörk- uðu upplagi. Ekki er ósennilegt, að sú ófrægingarherferð, sem Timinn hefur nú hafið gegn Visi eigi rætur sínar að rekja til þess, að þetta blað hafi orðið þess valdandi, að kaupendum Timans fækki jafnt og þétt. Vitað er, að ýmsir af þeim nýju áskrifendum, sem bæst hafa i hóp kaupenda Visis að undanförnu, keyptu áður Timann, en höfðu gefist upp á þvi að kaupa blaðið, vegna þess, að þeim fannst það staðnað, efni tak- markað og allt of mengað af flokkspólitik. Þá sneru margir fyrri stuðningsmenn og kaup- endur Timans baki við blaðinu eftir að það hóf i vet- ur svivirðilega rógsherferð á hendur kunnum lög- gæslumönnum, sem þóttu of athafnasamir. Það er eðlilegt að pólitiskur ritstjóri málgagns Framsóknarflokksins eigi erfitt með að skilja mun- inn á sliku linublaði sem Timanum annars vegar, sem ekki birtir annað en það, sem flokksforystunni þóknast, og hins vegar sjálfstæðu fréttablaði sem Visi, sem ekki er i eigu stjórnmálaflokks, og leitast við að gæta fyllstu óhlutdrægni gagnvart mönnum og málefnum og birta sem flest sjónarmið i hverju máli. Það er tvennt ólikt að vinna eftir markmiðum heiðarlegrar nútima fréttamennsku eða ösla áfram dáleiddur af framsóknarmaddömunni, án þess að lita til hægri né vinstri. Timinn er einungis skrifað- ur fyrir framsóknarmenn og meginmarkmiðin eru að halda þeim við trú sina, heilaþvo flokksmenn ef þeir kynnu að hafa látið glepjast af einhverju, sem komið hefur fram i öðrum fjölmiðlum, og vinna markvisst að þvi að foringi flokksins komist i dýr- lingatölu. Það er eðlilegt, að kaupendum sliks blaðs fækki með degi Jiverjum i þjóðfélagi þar sem fólk vill fá að hugsa sjálfstætt og vega og meta fréttir og ýmis málefni upp á eigin spýtur. Fimmtudagur 29. júlí 1976. VTSIR Umsjón: 'Jón Ormur Halldórsson y j Tveir foringjar en einn flokkur — aivarleg vandrœði breskra íhaldsmanna Breski íhaldsflokkurinn hefur unniö stóra sigra I aukakosning- um til þingsins aö undanförnu. t sveitarstjórnakosningum, sem fram fóru i Bretlandi fyrir nokkrum vikum siöan vann flokkurinn mjög á um land allt og bætti sumstaöar viö sig 20—30% atkvæöa. Flokkurinn er I fyrsta sinn um áratuga skeiö i greinilegri sókn á meöal ungs fólks og stúdenta og hefur unniö mikilvæga sigra I nokkrum verkalýösfélögum, þar sem ihaldsmenn riöa nú bagga- muninn I átökum milli bylt- ingarsinna og hægfara vintri manna. Engu aö siöur má leiöa rök aö þvi aö flokkurinn eigi viö meiri erfiöleika aö striöa um þessar mundir en nokkru sinni siöan 1945. Tveir leiðtogar i einum flokki Útá viö viröist mesti vandi flokksins vera persónulegur á- greiningur milli Edward Heaths fyrrum leiötoga flokksins og Margaret Thatcher, núverandi léiötoga ihaldsmanna. Ihaldsflokkurinn háöi fjórum sinnum kosningabaráttu meö Heath sem leiötoga. Flokkurinn tapaöi þrisvar og vann einu sinni. Fyrir þennan lélega ár- angur átti Heath aö gjalda meö pólitisku lifi sinu, aö mati meiri- hluta þingflokks ihaldsflokks- ins. Hann var settur af meö at- kvæöagreiöslu og Margaret Thatcher valin leiötogi i hans staö. Hún er fulltrúi hægra arms flokksins en Heath var studdur fram i rauöan dauöann af frjáls- lyndari öflum flokksins, þeim sem telja má ihaldsmenn uppá gamla visu. Mikill málefnaá- greiningur er á milli nýja leiö- togans og þess gamla og hreinn misskilningur aö álita aö deil- urnar milli þeirra séu eingöngu af persónulegum ágreiningi sprottnar. Þingflokkur ihalds- manna taldi, að Heath heföi ekki einungis reynst litt vinsæll íeiðtogi meöal almennings held- ur heföi hann vikið um of frá stefnumálum flokksins. Þegar Thatcher tók viö endurnýjaði hún forustusveit flokksins aö nokkru leyti og vék frá frjálslyndum en setti I staö- inn hægri menn. Hún áréttaöi ýmis grundvallaratriöi i Ihald- samri stefnuskrá flokksins og undirstrikaöi muninn á Ihalds- flokknum og öörum stjórnmála- flokkum I landinu. Heath naut stuðnings almennra flokksmanna Stjórnmálaskýrendur töldu margir aö, ef leiötogakjör I flokknum heföi veriö I höndum almennra flokksmanna heföi Heath unnið glæsilegan sigur á Thatcher og fáir munu efast um aö hann hefði aö minnsta kosti boriö sigur af hólmi. 18 mánuö- um eftir að Thatcher tók viö völdum er þaö mat margra aó Heath mundi sigra Thatcher ef flokksmenn fengju aö ráöa.v Ungir ihaldsmenn og enn frekar ungir Ihaldsstúdentar hafa hvaö eftir annaö sýnt svo aö ekki verður um villst aö Heath er þeirra maður og hefur Thatcher oft fengiö kaldar kveöjur úr þessum herbúöum. Þegar Heath tekur til máls I þinginu er máli hans gefinn jafn mikill gaumur og máli Thatch- er. Þetta hefur valdið forustu flokksins stööugt meiri vand- ræöum, þvi aö undanförnu hafa skoöanir Heaths ekki alltaf fariö saman við stefnu flokksforust- unnar. Aö undanförnu hefur verið á kreiki þrálátur orörómur um, aö Heath sé tilbúinn til sátta og vilji taka sæti I skuggaráöu- neytinu. Heath hefur neitaö þessu og má benda á, aö einn helsti stuöningsmaður hans i þingflokknum Peter Walker fyrrum iönaðarráöherra hefur verið að undanförnu stööugt haröari i gagnrýni sinni á for- ustu flokksins. Engu að siöur má búast við aö Heath geri upp hug sinn I þessu máli á næstu mánuöum en hann er I góöri aðstööu til aö setja skilyrði fyrir inngöngu I skuggaráöuneytið. Aöstööu sina reynir hann eflaust aö bæta næstu vikur og jafnvel mánuöi en honum getur reynst hættu- legt aö draga ákvöröun sina á langinn. Steele gæti reynst skeinuhættur Þó undarlegt megi viröast heföi þaö veriö Ihaldsmönnum meira aö skapi aö fá vinstri sinna i stööu flokksleiötoga frjálslyndra i staö hins hægfara og aö mörgu leyti ihaldsama David Steele. Frjálslyndari menn I ihalds- flokknum gætu hæglega átt þaö til aö skipta um flokk og kjósa Frjálslynda flokkinn ef Thatch- er nær ekki aö koma á friöi viö þá. Ef svo færi að stór hópur ihaldsmanna kysi frjálslynda i næstu kosningum mundi þaö tryggja sigur verkamanna- flokksins vegna kjördæmaskip- unarinnar i landinu, sem i siö- ustu kosningum gaf verka- mannaflokknum þingmeiri- hluta, þó flokkurinn fengi ekki nema 39% atkvæöa. Frjálslyndi flokkurinn fékk i siðustu kosn- ingum 13 þingmenn fyrir 5 mill- jónir atkvæða en verkamanna- flokkurinn fékk á hinn bóginn 318 þingmenn fyrir rúmlega helmingi fleiri atkvæði, en frjálslyndum voru greidd. íhaldsflokkurinn i dauðateygjunum? Thatcher hefur fært flokkinn lengra til hægri en hann var á stjórnarárum Heaths. Með þvi hefur henni ef til vill tekist aö fyrirgera öllum vonum flokks- ins um aö ná meirihluta á þingi á ný. Frjálslyndi flokkurinn er i sterkari aöstööu meö hinn nýja formann sinn til þess að biöla til Ihaldsmanna, sem ekki eru jafn hægri sinnaöir og Thatcher. Ef Ihaldsmönnum tekst ekki aö vinna næstu kosningar horfir illa fyrir framtiö flokksins. Verkamannaflokkurinn hefur á siöustu misserum fylgt sósial- iskum leiöum og er ekki langt frá þvi aö vera búinn aö koma Bretlandi gersamlega á haus- inn. Þjóöin riðar á barmi efna- hagslegs hruns og þjóöargjald- þrots. Venjuleg hagstjórnarráö geta tæpast lengur bjargaö á- standinu og bágur hagur einka- reksturs I landinu hefur orðiö hvatning til sifellt nýrra þjóö- nýtinga, sem kalla á aukna skattpiningu, sem leiöa til si- felldrar útþenslu rikisbáknsins. Brátt veröur ekki unnt aö snúa viö á þeirri braut til sósialisma sem bretar hafa aö undanförnu troðiö. Thatcher sjálf hefur gef- iö i skyn aö siöasta tækifæri flokksins til aö snúa landinu af þessari braut sé aö sigra I næstu kosningum. Þrátt fyrir mikla óánægju kjósenda með ástand mála þar I landi verður að draga I efa, aö þeir treysti forustu Ihalds- flokksins betur fyrir málum sin- um. Thatcher og félögum hennar i skuggaráðuneytinu viröist þvi aðeins ein leiö fær og hún er að breikka grundvöllinn undir flokknum og breyta ásjónu flokksins þannig að hún höfði til annarra en þeirra sem betur mega sin. Slika andlitslyftingu fengi flokkurinn með þvi að taka Heath i sátt og fela honum mik- iivæg embætti innan skugga- ráðuneytis Thatchers. Margt bendir til, að Thatcher skilji þessa nauðsyn og sé tilbúin til sátta. Á ákvöröun Heaths gæti framtið flokksins riöiö. Edward Heath. Á sáttfýsi hans gæti framtiö Ihaidsflokksins riöiö.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.