Vísir - 29.07.1976, Blaðsíða 9
VISIR Fimmtudagur 29. júlf 1976.
fyrir föstudaginn 30. júií.
Hrúturinn
21. mars—20. aprfl:
Þú hefur löngun til að taka þér
eitthvað skapandi og þroskandi
fyrir hendur. Liklega kemur fólk
þó í veg fyrir það meö slfelldum
truflunum sem eyða öllum tima
frá þér. Gættu barnanna vel.
I Nautiö
......* 21. apríl—21. mai:
Sameiginlegt átak gæti veitt
þér og öðrum mikla ánægju.
Griptu inn I atburöarás og bjóddu
fram hjálp þina án þess að þú sért
beðin(n).
Tviburarnir
I 22. mai—21. júni:
Það gæti reynst nauðsynlegt að
heröa örlitið sultarólina á næstu
dögum. Þetta verður þér erfitt
þvi að þú hefur sannarlega ekki
vanið þig á neina sparsemi
undanfarið. I kvöld ferðu liklega i
óvænt ferðalag eða færð óvænta
upphringingu.
Krabbinn
________' 21. júni—23. júll:
Leggðu mikla áherslu á að
styrkja sambandiö við nána
ættingja þina eða nágranna.
Einn þeirra mun seinna kynna
þig fyrir nýjum og skemmtileg-
um hópi fólks.
Nt
Ljóniö
I 24. júlf—23. ágúst:
Þú lendir ef til vill i erfiðleikum
með að ryðja einhverjum
hindrunum úr vegi. Þér gengur
þó vel að koma þér úr þessum
erfiöleikum með liðugu málbein-
inu. Farðu varlega I öllum
viðskiptum við banka.
Meyjan
24. ágúst—23. sept.:
Skyldur þinar við fjölskylduna
eru þér til nokkurra trafala i
starfi. Þetta er slæmt þvi að nú er
mjög mikilvægt að þú einbeitir
þér að verkefni sem þú ert að
vinna. Reyndu að finna mála-
miðlun sem allir geta sætt sig við.
Vogin
' 24. sept.—23. okt.:
Taktu þátt i einhverju með
fjölskyldunni, leikjum eða starfi.
Það gæti orðið til þess að treysta
fjölskylduböndin og á þvi er ekki
vanþörf. Eyddu kvöldinu heima
við og dyttaðu að ýmsu smávegis.
Drekinn
I 24. okt.—22. nóv.: #
Taktu hlutunum eins og þeir
eru I dag. Þannig kemstu hjá
óánægju og vonbrigðum. Þér
finnst allt ganga á afturfótunum
en þá er bara aö sætta sig við það.
Eyddu kvöldinu heima með
fjölskyldunni.
Bogmnöurinn
I 23. nóv.—21. des.:
Eitthvað kemur fyrir sem
þarfnast vandlegrar ihugunar og
gæti orðið til þess að þú verðir að
breyta áætlunum þinum.
Ferðalög eru ekki heppileg I dag.
&
I Steingeitin
22. des.—20. jan.:
Vinur þinn er i þann mund að
gera eitthvað mjög óskynsam-
, legt. Þú ættir að vera vinur i raun
og vara hann við þvi að gera
þetta gláppaskot. Það gæti endaö
meö ósköpum fyrir hann og aðra.
Vatnsberinn
21. jan.—1!». febr.:
Sýndu fyllstu varkárni I dag.
Forðastu að reita nokkurn til reiði
að óþörfu eða ganga út i öfgar.
Eitthvað miður heppilegt gæti
hent þig ef þú ferö ekki gætilega.
Fiskarnir
20. febr.—20. inars:'
Þú ættir aö byrja að undirbúa
ferðalag um helgina. Þú hefur
unnið mikið undanfarið og þér
veitir ekki af hvild. Ef þú fylgir
þessum ráðum veröur helgin
mjög ánægjuleg og hressandi.
-*>-r >Q)-r rODinmi -JO-S DZO mmnOZÞ ncrrpiii <nm-* ti-ii 2>N3i>H