Vísir - 29.07.1976, Blaðsíða 3
VISIR Fimmtudagur 29. júlí 1976.
3
Taka innflytjendur hagnaðinn
erlendis í formi umboðslauna?
Eftirlit með gjaldeyris-
skilum innflytjenda erfitt
segja talsmenn Seðlabankans
„Það er engin
sérstök rannsókn i
gangi á þvi hvort inn-
flytjendur skila inn
umboðslaunum sín-
um,” sagði Björn
Tryggvason aðstoðar-
bankastjóri Seðlabank-
ans i viðtali við Visi.
Fyrr i þessum mánuöi kom
fram i viðtali Visis við Ólaf
Jóhannesson viðskipta-
ráðherra,að mörg fyrirtæki fá
umboðslaun sin greidd i gjald-
eyri, sem aldrei kemur til skila
hjá gjaldeyrisbönkunum.
Björn kvað hugsanlegt að inn-
flytjendur gerðu eitthvað af þvi
að taka hagnaðinn erlendis i
formi umboðslauna.
Gjaldeyrisyfirvöld hefðu hins
vegar litil tök á þvi að hafa
eftirlit með þvi að menn skiluðu
inn umboðslaununum. Engar
opinberar reglur eru til um
stærð þeirra og gildir yfirleitt
alþjóðleg hefð i þvi efni. Þó
koma einnig til sérstakir samn-
ingar milli innflytjandans og
seljanda vorunnar.
„Það sem helst er treyst á að
hafi áhrif i þá átt að umboðs-
launin komi til skila, er annars
vegar eðlileg verðmyndun i
landinu, þe.e. samkeppni i vöru-
verði, og hins vegar leyfi inn-
flytjenda til að flytja frilistavör-
ur inn fyrir umboðslaunin, án
gjaldeyrisyfirfærslu, auk
raunsærrar gengisskráningar,”
sagði Björn.
Eina leiðin sem hann sagðist
sjá til þess að unnt væri að hafa
raunhæft eftirlit með þvi að
menn gefi umboðslaunin upp,
væri að skattayfirvöld reiknuðu
þau út frá heildarinnflutnings-
magni hvers innflytjanda. Sá
útreikningur yrði leiðbeining
bæði fyrir bankana og skatt-
heimtuna.
Einig mætti hafa eftirlit með
umboðslaununum með þvi að
fylgjast með heimsmarkaðs-
verði, þar sem verð vörunnar
verður hærra en eðlilegt er, ef
menn taka hagnaðinn erlendis
með umboðslaununum. Þannig
eftirlit væri þó geysilegt
fyrirtæki.
Björn sagði að lokum, að auk-
in samvinna milli landa auö-
veldaði starf gjaldeyriseftirlits-
ins. Þjóðbankar ýmissa landa
væru farnir að skiptast á upp-
lýsingum og væri sú samvinna
aö aukast. Sérstaklega væri
þess farið að gæta gagnvart
norðurlöndunum.
Engin sakamál vegna
almennra
umboðslauna.
Visir hafði samband við
Sigurð Jóhannsson yfirmann
gjaldeyriseftirlits Seðlabankans
og spurði hann hvernig væri
fylgst meö umboðslaununum.
Sigurður sagði að innflytjendur
gerðu jafnóðum grein fyrir
umboðslaunum sinum til
gjaldeyrisbankanna. Auk þess
sendi gjaldeyriseftirlitið árlega
út skýrslur þar sem menn eiga
áð gefa upp móttekin umboðs-
laun á siðasta ári.
„Við tökum siðan af handa-
hófi gjaldeyrisskil einstakra
manna og berum saman við
skýrsluna. Við erum að þessu
allt árið. Með þessu sjáum við
hvort samræmier i skýrslugerö
manna og eins getum við gert
samanburð milli ára og haft
viðmiðun af gjaldeyriskaupum
viðkomandi á árinu.
Það er mjög erfitt fyrir okkur
að fylgjast neitt með þeim
umboðslaunum sem viðkom-
andi ekki kýs að gefa upp. Við
teljum að það hafi farið vaxandi
að menn ráðstafi þessum
tekjum erlendis, en þó er ekki
liklegt að það sé i stórum stil.
Þegar eitthvað misræmi hef-
ur fundist i skýrslugerðum
manna, höfum við haft
samband við þá beint og i öllum
tilvikum hefur misræmið verið
lagað án þess að úr þvi veröi
sakamál,” sagði Sigurður
Jóhannsson.
—SJ
Úrkoma á suðurlandi er nú farin að verða íbúum þess landshluta þungbær og vonast fólk nú tii þess, að
úr þessu rætist sem fyrst.
Norðlendingar hafa aftur á móti ekki haft yfir rigningunni að kvarta i sumar, nema kannski aðeins dag
og dag. Það var heidur ekki annað að sjá en þessi ungi maður kynni vel að meta norðurlandssólina og
biómaskrúðið er myndin var tekin af honum myrðra á dögunum.
NATTURUFRÆÐINGAR
VILJA EKKI UNA
ÚRSKURÐI KJARADÓMS
tslenskir náttúrufræðingar
eru mjög óánægöir meö
nýfeiidan úrskurð Kjaradóms i
kjaradeilu féiags islenskra
náttúrufræðinga við rikið.
Telur félagiö að Kjaradómur
hafi sniögengið mikilvæg iaga-
ákvæði, gerst þannig hlutdræg-
ur og brotið rétt á félags-
mönnum.
Náttúrufræðingar telja það
kunnara en frá þurfi að segja,
að allt frá almennu kjarasamn-
ingunum frá 1974 hafi orðið
veruleg skerðing á kjörum allra
launþega I landinu. Telja þeir
að nú þyrftu laun náttúrufræð-
inga að hækka um 15-20% til að
jafna það misrétti sem skapað-
ist á samningstimabilinu milli
náttúrufræöinga og þorra þeirra
launþega sem hafa verkfalls-
rétt. Til aö ná jöfnuði sem væri
sambærilegur viö það sem hliö-
stæðar starfsstéttir hafa á
frjálsum vinnumarkaði þyrftu
launin hins vegar að hækka um
30-65%.
Með tilvisun til alls þessa lýsir
félagið sig óbundið af niöurstöðu
Kjaradóms og mun leita allra
tiltækra ráöa til að leiðrétta hlut
félagsmanna sinna.
Félagið hefur ákveðið aö
senda fjármálaráðherra bréf
með kröfu um raunhæfar og
efnislegar viöræður. Hafi ekki
borist jákvætt svar við erindi
þeirra fyrir 1. september mun
félagið ihuga sérstakar aðgerð-
ir til að fá kröfum sinum fram-
gengt.
—AH
Larsen í topp
formi á ný
Daninn Bent Larsen teflir af
miklu öryggi á millisvæðamót-
inu sem nú fer fram i Sviss, og
hefur nú örugga forystu að
12 umferðum loknum.
Larsen er meö 9 vinninga, en i
öðru til fimmta sæti eru þeir
Byrne, Portisch, Smyslov og
Hubner með 7 1/2 vinning hver.
Ekki var teflt i gær, en i dag
verður tefld 13,umferð.
Larsen virðist nú vera að ná
sér á strik eftir nokkra lægð sem
hann hefur verið i um nokkurra
ára skeið, og er ekki annað að
sjáanlegt en aö hann verði með i
baráttunni um heimsmeistara-
titilinn enn einu sinni.
Larsen hefur oft komið þar
við sögu, en litið siðan hann var
burstaður af Robert Ficher (0 :
6) i Denver, Colorado fyrir
nokkrum árum.
AH
SVÍFA TIL SKÝJA
MEÐ VÉLINA NÝJA
„Vélin -sem iaskaðist
þegar dráttarkerra ók á
hana nýlega fer að öllum
likindum á loft i dag”,
sagði Sveinn Sæmunds-
son, blaðafulltrúi Flug-
leiða, er Visir innti hann
eftir þvi hvað liði við-
gerð á tveimur Fokker-
friendship flugvélum,
sem báðar voru bilaðar.
,,Sú vélin sem varð fyrir
hreyfilbilun I Akureyrarfluginu
komst i lag siðastliðinn mánu-
dag”, sagði Sveinn. Eins og Visir
hefur skýrt frá var vélin á leið til
Akureyrar með 41 farþega þegar
hreyfillinn bilaði og var þá ákveð-
ið að snúa við til Reykjavikur. Nú
hefur verið skipt um hreyfil á
flugvélinni. Alltbendir þvi til þess
að allar Fokker-vélarnar ættu að
geta farið i loftiö i dag.
—AHO.
r........—.................. '
Skodaeigendur
Vegna sumarleyfa verður verkstæði okkar lokað dagana 3.-17. ág. n.k. og veröur á þvi tlmabili
aðeins framkvæmt eftirlit og þjónusta með nýjum bifreiöum.
Tékkneska bifreiðaumboðið á íslandi h/f
Auðbrekku 44-46. Kópavogi
..--....