Vísir - 14.08.1976, Blaðsíða 1

Vísir - 14.08.1976, Blaðsíða 1
Fyrstur med fréttirnar i ÓS ár „Gefur enga vísbendingu um gos" - segir Dagbjartur Sigursteinsson borstjóri ,,t þessari holu sem búið er aö bora reyndist hitinn vera :t43 stig. En hann gefur enga visbendingu um gos. Segir að- eins að þetta sé háhitasvæði", sagði Dagbjartur Sigursteins- son borstjóri við Kröflu i sam- tali við Visi i gærkvöldi. „Þetta er nákvæmlega sá hiti sem við bjuggumst við ’, sagði hann. „Hitinn fylgir suðukúrfunni og það er hægt að gefa upp hitastig á hvaða metra sem er hér á svæðinu”. Dagbjartur var óánægður með fréttaflutning blaða af ástandinu við Kröflu. ,,Það er gott að vera i Kröflu”, sagði hann ,,En það er erfitt fyrir aöstandendur okkar i Reykja- vik sem lesa frásagnir blaða. Annars er ekkert héðan að frétta. Menn eru almennt komnir i helgarfri, nema þeir sem vinna að borunum, þar eru vaktir.” — EKG Hitinn í borholunni við Kröflu 343 stig Mjög alvarlegt umferðarslys varð i gærkveldi um kl. 18.00 á Praghálsi, er sendiferðabifreið og jeppi rákust saman. Þrir men'n voru i sendiferðabif- reiðinni og slösuðust tveir þeirra mjög alvarlega, en einn slapp ótrúlega vel, en i jeppanum skarst kona i andliti en aðrir voru litið meiddir. Báðir bilarnir eru stórskemmdir. Þyrla frá varnarliðinu sótti um tiuleytið i gærkvöldi bilstjóra sendibilsins og flutti hann til Reykjavikur á sjúkrahús, en læknarnir á Akranesi ásamt lækni úr Borgarnesi gátu ekki sinnt öllu fólkinu. Slysið varð með þeim hætti að sendibifreiðin sem er úr Borgar- firði var að aka fram úr annarri, en aur slettist á framrúðu hennar, svo ökumaðurinn sá ekki jepp- ann, sem á móti kom, en hann var úr Reykjavik, og skipti þvi engum togum að bifreiðarnar skullu saman. BP/RJ Alvarlegt umferðarslys á Draghálsi SELDIR TIL AÐ KOMA I VEG FYRIR 40 MILLJ. KR. TJÓN Segir ráðuneytisstjóri viðskiptaráðuneytisins um gaffalbitana, er ei fengu útflutningsvottorð „Þetta er fyrst og fremst mál Sölustofnunar lagmetis og so- véska fyrirtækisins Prodin- torgs,, og þar sem fyrir liggur nýr samningur milli þessara aðila verður útflutningsleyfiö veitt”, sagði Þórhallur Asgeirs- son, ráðuneytisstjóri I viðskipta ráðuneytinu i samtali við Visi I gær. Þóhallur sagði, að i þessum nýja samningi væru engin skil- yrði um gæðavottorö og kaup- endunum hefði verið vel kunnugt um ásigkomulag vör- unnar og geymsluþol hennar. Þeir hefðu fengiö hana með 5% afslætti af þeim sökum og með sölunni hefði verið komið i veg fyrir 40 milljóna króna tjón hjá lagmetisiðjunni Siglósild. Voru gaffalbitarnir seldir undir merkjum Siglósildar en ekki sölustofnunar lagmetis, eins og upphaflega hafði verið ráðgert. Svo sem fram hefur komið i Visi neitaði rannsóknarstofnun fiskiðnaðarins Sölustofnun lag metis um útflutningsvottorð fyrir þessa gaffalbita á þeirri forsendu að varan hefði ekki staðist einföldustu gæðapróf- anir. t þvi sambandi var haft eftir dr. Birni Dagbjartssyni, forstjóra Rannsóknarstofn- unarinnar, að svona vöru hefði verið fleygt i Noregi, og okkur miðaði hægt fram á við i vöru- vöndun á meðan slik vara væri flutt út. t frétt i Visi á þriðjudaginn var haft eftir deildarstjóra i við- skiptaráðuneytinu, að hann vildi ekki gefa upp neinar ástæður fyrir þessari sölu. Raðuneytisstjórinn var þá utan- bæjar, en samkvæmt þeim upp- lýsingum, sem hann veitti Visi i gær var viö söluna lögð áhersla á að koma i veg fyrir fjárhags- tjón Sigló-verksmiðjunnar, sem áætlað hafði verið 40 milljónir króna, ef gaffalbitunum hefði verið kastað. Visir bar þetta atriði undir dr. Björn Dagbjartsson i gær, og kvað hann það aö sjálfsögðu verða að vera mat viðskipta- ráðuneytisins hverju sinni, hvort væri meira virði að halda sig við viöurkennda staðla varð- andi gæði lagmetis eða koma i veg fyrir fjárhagstjón ákveð- inna fyrirtækja. —öR. FRUMVARP UM BREYT- INGAR SKATTALAGA LAGT FRAM í HAUST Matthias A. Matthiesen, fjár- málaráðherra, skýrði frá þvi i fréttaviötali i sjónvarpinu i gær- kveldi, að stefnt væri að þvi aö leggja fram frumvarp um breytingar á skattalögum fyrir alþingi i haust. Yrðu þar væntanlega ákvæði þess efnis, að einstaklingar yrðu að telja sér laun i eigin atvínnu- rekstri eins og launamenn. sem tekjur sinar fengju annars staö- ar. Sömuleiðis sagði ráðherra, að i undirbúningi væru breyt- ingar á ákvæðum skattalaga um fyrningar og væri athyglinni i þvi sambandi beint að sölu- hagnaði. Matthias A. Matthiesen kvað einnig unnið að tillögum um sérsköttun hjóna, en ekki væri ákveðið með hvaða hætti hún yrði framkvæmd. Er ráðherra var inntur eftir þvi, hvað gert yrði i sambandi við það misræmi, sem bent hefði verið'á i blöðum varðandi skatta einstaklinga og fyrirtækja, eða réttara sagt skattleysi, sagði hann að um það hefði verið rætt við rannsóknardeild rikisskatt- stjóra, að kanna þessitilvik sér- staklega. —ÓR. Báðir óánœgðir Bæði verkf ræðingar og fulltrúar i launa- málanefnd Reykja- vikurborgar voru óánægðir með samninga þá sem undirritaðir voru milli þessara aðila i fyrrakvöld. Launamálanef nd borgarinnar klofnaði i tvennt og skrifuðu full- trúar minnihlutaf lokk- anna i launamálanefnd ekki undir samninginn. Sjá bls. 3

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.