Vísir - 14.08.1976, Blaðsíða 19
Grásleppuframleiðandi skrifar:
Visir og Rannsóknarstofnun
sjávarútvegsins hafa að undan-
förnu réttilega gagnrýnt það
glapræði að selja til Rússlands
gallaða og ef til vill hættulega
gaffalbita og skuldinni er einhliða
skellt á Siglósild, eitt af eilifðar
taprekstrarfyrirtækjum rikisins
á Siglufirði.
Almenningur á tslandi, sem
greitt hefur margra ára tap þessa
rikisfyrirtækis og greiðir hundruð
milljóna i styrk eftir ýmsum
krókaleiðum og beint til Sölu-
stofnunar lagmetis ætlast einnig
til þess að Visir skýri okkur frá
þvi liver bauð og samdi um sölu á
gölluðu vörunni með afslættinum.
Var þgð Siglósild eða Sölustofnun
lagmetis? Ef Sölustofnunin seldi
vöru, sem hún vissi að var stór-
gölluð, er þessi rikisstofnun þá
ekki jafn sek þó að notað sé annað
islenskt vörumerki? Fær Sölu-
stofnun lagmetis ekki sölulaun af
gölluðu vörunni? Og hversu
mikil? Er það rétt að saurgerlar
séu i gaffalbitunum? Af hverju
þora blöð stjórnmálaflokkanna
ekki að minnast á þetta
hneykslismál? Ég skora á ykkur
hjá Visi að kryfja þetta mál til
mergjar.
Grásleppuframleiðandi
(Sem neyddur er með lögum til að
standa undir rekstri Sölustofn-
unarinnar og Siglósildar)
Lokaorð
um grein
Kristínar
Hver samdi um
gaffalbitana?
liúsmóðir i Breiðholti, hringdi.
Við erum hér saman komnar
nokkrar vinkonur og langar til
þess að koma á framfæri þakklæti
til Kristinar Magnúsdóttur, fyrir
grein hennar um sjónvarpsmálið,
i Morgunblaðinu, 11. þessa
mánaðar.
Við erum sammála Kristinu um
að það sé skerðing á mann-
réttindum að fá ekki að velja um
það sjálfur, hvort maður vill
horfa á kefiavikúrsjónvarpið eða
ekki. Við hvetjum sem flesta
landsmenn til að láta skoðun sina
i ljós.
ATH. Visi hafa nú borist all-
mörg bréf um þetta mál, sem
hafa verið birt samviskusamlega.
Bréfin eru nú hinsvegar farin aö
verða svo samhljóða að þau telj-
ast varla skoðanaskipti lengur.
Væri undirskriftaherferð eðlilegt
framhald, ef fleiri vilja tjá sig.
Mikið af bréfum um önnur mál-
efni biða birtingar i blaðinu og
þykir þvi rétt að láta útrætt um
þetta mál að sinni. Þá má benda á
að af hverju sem það stafar hefur
Velvakanda Morgunblaðsins ekk-
ert borist um þetta og birtist þó
grein Kristinar i Morgunblaðinu.
Það er auðvitað ekkert skrýtið að
menn skuli heldur vilja skrifa
Visi, en við verðum sem fyrr seg-
ir að gera hlé á, vegna annarra
mála, sem biða birtingar.
HURRA FYRIR
SAMÚEL
Jakob Jóhannsson skrifar:
Samúel þú átt hrós skiliö. Mig
langar að vekja athygli á þvi
hve mánaöarritið Samúel hefur
margt og margbreytilegt uppá
að bjóða, í ágústritinu.
Aldrei hefur það að mér vit-
andi verið jafn skemmtilegt af-
lestrar þótt oft hafi það verið
fullboðlegt. Batnandi manni er
bestað lifa. Þettagetur rétt eins
átt við blöö, og annað og ef
stefnan heldur sér I þá átt sem
stefnt var, viö útgáfu ágúst-
heftisins, spái ég þvi Samúel, a<
þú verðir eftirsóttasta timarit
framtiðinni. Hefur þá e.t.v. bæt
við þig nokkrum siðum oj
stendur á hundraði eins og koll
egar þinir erlendis. Þú ert sí
sem segir sex. Haltu þvi.
PIPARSVEINN I
VANDRÆÐUM
Piparsveinn, hringdi.
Ég er alveg i vandræðum með
þetta bann við að kyngreina i
auglýsingum. Þannig er mál
með vexti að mér finnst ég vera
búinn að búa einn alveg nógu
lengi. Ég var þvi búinn að
ákveða að auglýsa eftir ráðs-
konu, með hjónaband fyrir aug-
um.
Nú er mér hinsvegar bannað
að gera það. Ég verð að auglýsa
eftir ráðsmanneskju og get þvi
alveg eins búist við fúlskeggjuð-
um togarajaxli, sem ég hef eng-
an áhuga á að sænga hjá.
Mér finnst þetta vera mikil.
gloppa i kerfinu og legg til að
piparsveinar verði undanskildir
þessu banni, ef þeir geta sýnt
fram á konuþörf.
RílHiniAn
BROUT
Ikeifunnill