Vísir - 14.08.1976, Blaðsíða 2
m
Laugardagur 14. ágúst 1976 VTSIH,
Umsjón: Anders Hansen
3
Ertu fylgjandi þvi aðj
keflavíkursjónvarpið
verði opnað á ný?
Guðmundur Guögeirsson, hár
skeri: ,,Nei, það heldég nú ekki"
Sesselja Sigurðardóttir, iþrótta
kennari: „Já, þvi ekki það, ann
ars hef ég nú litið hugsað um það*
mál".
Herdis Sveinbjörnsdóttir, verka
kona: „Já, ég er alveg örugglegai
fylgjandi þvi".
Guðfinna Friöriksdóttir, verka
kona: „Nei, ég er & móti þvi aö
það veröi opnaö á ný".
Hér erSvavar Guðnason málari að veiðum i Elliðaánum i gærkvöldi. Þar varþá rigningog besta veiðiveður, enda hefur veiðst vel I Elliða-
ánum að undanförnu. Mynd: KJ
Selur varnar laxi upp-
göngu í Laxá í Aðaldal
Helga i veiðihusinu á Laxa-
mýri við Laxá i Aðaldal var
hress að vanda er við höfðum
samband við hana i gær. Sagði
hún að nú væru komnir á land
1005 laxar, og væri það svipað
þvi sem var i fyrra.
Eins og menn rekur minni til
var veiðin mjög dræm lengi
framan af i sumar, en siðar
rættist úr, og veiddist mjög vel
um tima. Eitthvað hefur dregið
• úr veiöinni nú siðustu daga, en
Helga kvaðst vona að það yrði
ekki langvarandi.
Veiðimenn i Laxá segja aö
enn sé lax að ganga i ána, og
eitthvað hefur sést af nýgengn-
um og gljáandi laxi þar að
undanförnu. Er þaðþó ef til vill
minna en efni standa til, þvi sel-
ur hefur haldið sig niðri i ósn-
um, og fælir hann laxinn f rá auk
þess sem hann étur sjálfur.
Veitt er á tólf stengur i Laxá i
Aðaldal, og það eru islendingar
að langmestu leyti sem þar eru'
við veiðar. Veiðitimabilinu i
Laxá lýkur 31. ágúst.
MIKILL FISKUR
í VATNHOLTSÁ
MikOI fiskur er i Vatnholtsá á
Snæfellsnesi i sumar, og hefur
sjaldan meira sést þar af fiski.
Veiði hefur veriö dágóð, en þó
ekki eins mikil og hið mikla
fiskimagn i ánni gæti gefið til
kynna.
í Vatnholtsá veiðist bæði lax
og silungur, og getur silungur-
inn orðið mjög vænn.
Viða á Snæfellsnesi eru ágætis
veiðivötn, og hefur veiðst nokk-
uð vel þar i sumar.
Það hefur nokkuð háð eölileg-
um vexti silungs i islenskum
vötnum hve mikið er af honum,
og þvi litið um fæðu. Nú að
undanförnu hefur verið unnið að
þvi af hálfu veiðimálastjóra að
grisja silungsstofnana, og hefur
það þótt gefa góða raun.
BJARNI SÝNIR
í HAFNAFIRÐI
,,Það má segja að
þarna kenni ýmissa
grasa, þvi að þetta eru
bæði abstraktverk og al-
veg hlutlægar myndir"
sagði Bjarni Jónsson
listmálari i samtali við
Visi, en hann opnar sýn-
ingu i Iðnskólanum i
Hafnarfirði i dag,
laugardag.
Verkin á sýningunni eru áttatiu
að tölu, ollumálverk, vatnslita-
myndir, kritarmyndir og teikn-
ingar. Bjarni hefur áður haldið
fjölmargar sýningar 1 Reykjavik
og viða um land, en slðast sýndi
hann á Akureyri. Einnig hefur
hann tekið þátt i samsýningum,
bæði hér heima og erlendis.
Bjarni er eflaust mörgum kunnur
fyrir teikningar sinar, en hann
teiknaði lengi skopmyndir I
Spegilinn og seinna myndir viö
ýmsar sögur I Vikunni. Þá hefur
hann myndskreytt bækur fyrir
Rfkisútgáfu námsbóka og nokkur
önnur útgáfufyrirtæki.
Bjarni var sem strákur talsvert
viöloðandi á vinnustofu Kjarvals
og Asgríms og kvaðst hann hafa
lært mikið af að fylgjast með
þeim viö vinnu sina. Seinna
stundaði hann nám I Handiðu- og
myndlistaskólanum. Sýningin er
opin frá kl. 14-22.00 um helgina,
en 18-22.00 virka daga og stendur
tU 22. ágúst. A.H.O.
VERÐLAUSIR PEN-
INGAR í UMFERÐ
Þann 11. þessa mánaðar, voru
vörur, sem keyptar voru I búð
einni hér i borginni, greiddar
með grænleitum peningaseðli,
sem prentað er framan á svo-
hljóöandi texti: „THE JAPAN-
ESE GOVERNMENT promises
to pay the bearer on demand
TEN DOLLARS MP".
Sá, sem greiddi með seðlin-
um, sagði að hann væri jafnvirði
10 bandarikjadala, og var hann
tekinn á því gengi.
Seðill þessi er hins vegar
einskis virði og þar sem gera
má ráð fyrir, að reynt veröi að
setja fleiri slika seðla i umferð,
er fólk hér með var^ð við að
taka þá og beðið að láta rann-
sóknarlögregluna I Reykjavik
vita um, ef það verður vart við
slíka seðla.
Peningaseðlarnir.sem seldir eru á sama gengi og bandarfkjadollar, erueinskisvirði og ættu menn ekki
aðláta blekkjast af þeim, ef þeir verða varir viðþá.