Vísir - 14.08.1976, Síða 20

Vísir - 14.08.1976, Síða 20
VÍSIR Laugardagur 14. ágúst 1976 Seðlar í umferð eru tryggðir 278% 5.261.300.000 voru i umferö i seölum I iok júnimánaöar sl. Trygging aö baki þessum seölum var 278%, eöa 14 1/2 milljaröur. 76% seöianna voru 5.000 króna seðlar, 16% 1.000 króna seölar, 3% 500 króna seölar og 5% 100 króna seölar. Tryggingin skiptist þannig aö 214 milljónir voru I gulleign og upphæðum i erlendri mynt sam- kvæmt guilveröi i New York. 7.132 milljónir voru I erlendum veröbréfum og 7.180 milljónir voru I inneign i erlendum bönk- um. —SJ ís tafði loðnu- skipin Sjö skip lögöu af staö til iands meö loönu i gær alls 1300 iestir. Þar af fóru sex skipanna til Bol- ungarvikur. Þausem fóru til Bolungarvikur voru. Sæberg meö 220 tonn, Helga II 140, Svanur 170, Rauðsey 130, Helga Guömundsdóttir 200, As- geir 140 og Bjami 70. Súlan fór meö 230 tonn til Krossaness. t morgun tilkynnti eitt skip um afla. Þaö var Harpa sem lagöi af staö meö 250 tonn inn til Siglu- fjaröar. Arni Siguröur sem nú er í leit á vegum Hafrannsóknarstofnunar fann i gær loönu út af vestfjörö- um. Aöeins eitt skip náöi þangaö i nótt. Var það Reykjaborg, en er Vísir hafði samband viö loönu- nefnd i morgun voru engar fréttir af veiði skipsins. Þau skip sem lönduöu i Bolungarvfk ætluöu flest á þessi mið, en is taföi þau svo aö ekkert þeirra náöi þangaö I nótt. — EKG Mjólkur- bœndum fœkkar verulega A nokkrum undanförnum árum hefur bændum, sem stunda mjólkurframleiöslu fækkaö verulega. A milli ár- anna 1974 og 1975 fækkaöi þeim um 220 en á árunum á undan aö meöaltali um 200. Þannigvoru mjólkurbændur rúmlega 3100 1974 en i fyrra lögðu 2880bændur innmjólk til mjólkursamlaga. A sama tima hefur orðiö nokkur aukn- ing á meöaltals afköstum búa og lagöi hver bóndi aö meöal- tali inn rúmlega 1300 kg meiri mjólk inn til mjólkursamlaga á árinu 1975 en árið áöur. Þetta meöaltal er nú rúm- lega 38.600 kg yfir iandiö allt en verulegur munurer á þessu meðaltali milli einstakra landssvæöa. A svæði mjólkur- samlags KEA á Akureyri var meöaltaliö 64.000 kg en rúm 48.000 kg á svæöi Mjólkurbús Flóamanna. JOH VATNAVEXTIR í SANDÁ TORVELDA FLUTNING FÓLKS TIL OG FRÁ KERLINGARFJÖLLUM Vörðuhleðsla við gamla Kjalveg „Þaö eru bilar á leiöinni til okkar núna. Þeir eru meö trukk 1 fylgd meö sér til vonar og vara. En þaö kom jeppi yfir ána i morgun, svo ég held aö þetta ætti ekki aö veröa neitt vanda- mál. Ég býst fastlega viö aö fólkiö veröi komiö i bæinn I kvöld.” Þetta haföi Þorsteinn Hjalta- son (Dossi) i Sklöaskólanum i Kerlingafjöllum aö segja þegar Vfsir naöi sambandi þangaö siö- degis i gær gegnum loftskeyta- stööina 1 Gufunesi. Fréttir höföu áöur borist af þvi aö Sandá væri alveg oiöin ófær öllum bilum vegna vatna- vaxta. A miövikudaginn voru um lOOmanns tepptir viö ána og var þá aö lokum tekiö til þess bragðs aö láta veghefil draga bilana yfir. Þetta voru aðallega jeppar og rútur, en svo mikiö var I ánni aö þaö flaut vel yfir vélarhúsiö á jeppunum. Hálendið iilfært Eftir rigningarnar aö undan- förnu eru allar ár og lækir á há- lendinu i foráttuvexti og allar leiöir meira og minna ófærar. Kjalvegur er fær stærri bll- um, sé þaö rétt aö hægt sé aö komast yfir Sandá. Sprengi- sandsleiö er heldur ekki fær nema stórum bílum vegna vatnavaxtanna. Rigningarnar hafa einnig valdið noldcrum skemmdum á vegum þar efra. A Fjallabaks- leiö hefur runniö viöa úr vegar- köntum og Uxahryggir eru ófærir þar sem ekki hefur tekist aö gera viö skemmdina sem bíður um sinn varö þar á veginum fyrir nokkr- um dögum. Veröur ekki hægt aö vinna aö viögerðum þar fyrr en dregur úr vatnsveörinu. Ætluðu að endur- reisa vörðurnar Hópur manna undir farar- stjórn Guölaugs Guömundsson- ar frá Koti I Vatnsdal ætlaði aö fara um helgina inn aö Beinhól, tjaldstæði hinna frægu Reynis- staðabræðra i siöustu ferö þeirra. Guölaugur sagöi i samtali viö Visi aö ákveöið væri aö fresta feröinni um sinn vegna vaxtar Sandár. „Þaö var meiningin hjá okkur aö hlaöa upp gamlar vöröur sem eru meöfram gamla Kjal- veginum. Þær eru listavel gerö- ar, en nokkrar eru farnar aö láta á sjá. Þessar vöröur voru þannig geröar, aöútúr þeim stóösteinn sem visaöi I átt aö næstu vöröu. Þannig var hægt aö fara eftir þeim, þótt ekki sæist milli þeirra. Guömundur Jósafatsson ætlaöi aö fara þetta meö okkur, þótt hann sé kominn yfir átt- rætt, og ætlaöi hann aö aðstoöa okkur viö hleösluna. Þaö veröur ekki af þessu nú um helgina, en viö förum örugg- lega I annan tlma,” sagöi Guö- laugur. Samkvæmt siöustu fréttum vorulangferöabflar Noröurleiöa komnir heilu og höldnu yfir Sandá um kl. hálf fimm i gær og haföi feröin gengiö vel. Þó mun ekki hafa veriö fariö yfir á vaö- inu á Sandá, heldur fundin önn- ur og færari leiö yfir. Þessa mynd tók ljósmyndari VIsis I einni mjólkurbúöinni I gær en starfshópurinn mun ætla aö safna undirskriftum fyrir utan búöirnar. Undirskríftosöfnun gegn lokun Starfsstúlkur i mjólkurbúöum og nokkrir ncytendur héldu fund i gær til þess aö ræöa aðgeröir gegn fyrirhugaöri lokun mjólkur- búöa. A fundinum voru haldnar tvær framsöguræður. Lilja Kristjáns- dóttir talaöi fyrir hönd starfs- stúlkna i mjólkurbúðum og hvatti konur til samstöðu, en Elisabet Bjarnadóttir hélt ræðu fyrir hönd neytenda. Mikil þátttaka var i umræðum og að þeim loknum var samin áskorun, sem dreift verður um hverfi borgarinnar á undir- skriftalistum. Þar segir meðal annars: „Milli 170-200 manna fundur starfsstúlkna i mjólkurbúðum og neytenda haldinn i Lindarbæ skorar á öll verkalýðsfélög, laun- þega og aöra neytendur aö leggja lið baráttunni gegn lokun mjólkurbúða og styðja þær að- gerðir sem fjöldahreyfingin gegn lokun mjólkurbúða stendur fyrir, bæði með fjárframlögum og starfi. Fyrsta aðgerð er þegar hafin. Þaðer söfnun undirskrifta i ibúðahverfum Stór-Reykjavikur. Einnig veröur undirskriftum safnað fyrir utan búðirnar.” Þegar undirskriftasöfnun er lokið verða listarnir sendir Mjólkur- samsölunni. „Ég er alveg steini lostinn yfir þessu” sagði Stefán Björnsson er Visir hafði samband viö hann i morgun. „Alþingi hefur samþykkt lög þess efnis að við skulum hætta smásölu og veröa heildsöluaðilar. Það er engin á- stæða til að blanda okkur i þessi mál, því að viö höfum ekkert meö þau aö gera. Ég held að fólk ætti heldur að snúa sér aö löggjafan- um til að ræöa þessi mál.”AHO. íslendingur beið bana í bílslysi ó Spóni Ungur islenskur læknir Jón Örvar Geirsson beiö bana i umferðarslysi á Spáni i fyrra- dag. Var hann að aka til Val- enzia ásamt þremur félögum sinum er slysiö varð. Maöurinn scm lést var ókvæntur og barnlaus, og var i skemmtiferö á Spáni á vegum feröaskrifstofunnar Ferðamiðstöövarinnar. Tveir félagar mannsins slösuöust talsvert, en þó ekki lifshættulega, en sá þriöji slapp ómeiddur. —AH. 372 þúsund tonn af vörum Skip Sambands Islenskra Sam- vinnufélaga fluttu nær 372 þúsund lestir af vörum og sigldu nær 296 þúsund sjómllur á slðasta ári. 1 fyrradag voru 30 ár liöin frá þvi aö fyrsta skip Sambandsins kom til landsins. En nú eru i Sam- bandsflotanum átta flutnings- skip. Pilturmn fundinn Pilturinn sem lýst var eftir á Akureyri nýlega er nú kominn i leitirnar. Hann bankaði upp á hjá bróður sinum um hádegis- bilið i gær og er ekki vitað annað en að hann sé við góöa heilsu. Orengurinn, sem er fimmtán ára gamall, hvarf á laugardaginn fyrir viku og hafði ekkert til hans spurst siðan. Ekki er kunnugt um ástæöuna tii hvarfsins. AHO. w Atta órekstrar einn slasaðist Atta árekstrar urðu i gær frá hádegi til kl. 7. Flestir voru smá- vægilegir en i einum slasaðist farþegi. Það var á mótum Vesturlands- vegar og Breiðhöfða að bifreið var ekið aftan á aðra með þeim afleiðingum að farþegi i fremri bifreiðinni slasaöist og var fluttur á slysadeild Borgarspitalans. Aö sögn lögreglumanna voru árekstrarnir óvenju fáir á þessu timabili miðað við dagana á undan. Má ef til vill rekja það til þess að lögreglan hvatti menn með auglýsingum i útvarpi að aka með ökuljósum —RJ.

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.