Vísir - 11.01.1977, Page 1
Þriðjudagur 11. janúar 1977
9. tbl. 67. árg.
Sjálfsiætt vandad
HVERS VEGNA FLÝJA IÐNFYRIRTÆKI HÖFUÐBORGINA?
Gatnagerðargjöld vegna
einnar lóðar
Hversvegna flytja iðnfyrirtæki frá Reykjavik til nágrannasveit-
arfélaga, þegar þau þurfa að byggja yfir starfsemi sína? Ein
meginástæðan er sú, að í höfuðborginni verða fyrirtækin að greiða
strax öll gatnagerðagjöld fyrir það hús, sem má reisa á þeirri lóð,
sem þau fá, að sögn Davíðs Sch. Thorsteinssonar, formanns Félags
32 milljónir
isl. iðnrekenda, sem nefndi dæmi um, að á sl. hausti hefði iðnfyrir-
tæki þurft að greiða 32 milljónir í gatnagerðargjöld í Reykjavík. I
sumum nágrannasveitarfélögum má hins vegar greiða þessi gjöld
eftir því sem byggt er á lóðinni. Viðtalið við Davið er á blaðsiðu 11.
TIL HAMINGJU MEÐ AFMÆLIÐ!
Þetta leikfélagsfólk var mætt snemma niður f gamla Iðnó, enda stendur þar mikið til. Hið sfunga
og vinsæla leikhús á 80ára afmæli idagog hefur á þeim árum stigið mörg brautryðjendasporin.
Afmælisins verður minnst á veglegan hátt meðsýningu á verki Shakespeare, Mackbeth. Afmælis-
hátfðin hlýtur að verða um leið nokkur baráttuhátfð þvl að eins og allir vita stendur Leikfélag
Reykjavlkur i ströngu við að byggja Borgarleikhús.
Leikararnir voru ekki mættir I morgun þegar Jens ljósmyndari VIsis tók þessa mynd. Þeirra blða
mikil átök i kvöid. En Ragnar Hólmarsson forstöðumaður smlðaverkstæðis, Guðbjörg Jónsdóttir
gjaldkeri, Vigdls Finnbogadóttir og Tómas Zoega framkvæmdastjóri voru Iprýðilegu afmælisskapi
á sviði Mackbeths. —EKG.
HEFUR EMBÆTTI SAKSÓKNARA
EKKI TÍMA FYRIR
ÁVÍSANAMÁLIÐ?
i yfirlýsingu frá Hrafni Bragasyni umboðsdómara kemur fram, aö hann telúr
embætti rikissaksóknara ekki hafa gefið sér tima til að kynna sér málavöxtu.
Hann hefur þvi enn á ný sent málið til saksóknara og býður jafnframt aðstoð
sina svo ekkert fari nú ‘lengur milli mála.
— Sjá bls. 3.
L ____________________4
RANNSOKN HANDTÖKUMALSINS:
,,Þaö er vel hugsanlegt að
önnur sakbending fari fram i
þessu máli. Þær yfirheyrslur
sem nú fara fram eru I fram-
haldi lögreglurannsóknarinnar,
en það virðist ætla að teygjast
úr þessu máli”, sagði
Steingrímur Gautur umboðs-
dómari I handtökumálinu I sam-
tali við Vísi.
Tvö ný vitni voru yfirheyrð i
Reykjavik á laugardag og siðar
sama dag var Haukur Guð-
mundsson yfiheyrður i Keflavik
til samprófunar. Taldi Stein-
grimur ekki óliklegt að fram-
burður þessara vitna yrði til að
þoka málinu áleiðis, en kvað ó-
liklegt að rannsókn lyki i þess-
ari viku. 1 einu dagblaðanna i
morgun er haft eftir Steingrimi
Gauti, að rannsóknin beindist
nú að þvi að sanna sest Hauks
Guðmundssonar. 1 samtalinu
við Visi sagði umbóðsdómarinn
að þetta væri alrangt. Haukur
hefði stjórnað handtökunni og
sin rannsókn beindist að þvi að
ganga úr skugga um sekt hans
eða sakleysi, en á lagamáli væri
hann nefndur sökunautur. En að
reynt væri fyrst og fremst að
sanna hugsanlega sekt væri al-
rangt.
Samkvæmt upplýsingum sem
Visir hefur aflað sér eru vitnin
tvö sem komu fyrir á laugardag
lögreglumaður i Reykjavik og
eiginkona hans. Haukur mun
hafa komið á heimili mannsins
og ætlað að hafa tal af honum,
en þá var aðeins eiginkonan
heima. Fékk Haukur þá lánaðan
sima og hringdi til mannsins.
Þá hafa samtals 26 vitni komið
fyrir hjá Steingrimi Gauti og
hefur hann siðan reynt að fá
heildarmynd af málinu sam-
kvæmt framburði þeirra.
Þegar Visir hafði samband
við Hauk Guðmundsson i morg-
un kvaðst hann alltaf hafa litið
á sig sem grunaðan mann i
þessu máli, enda hefði hann
stjórnað handtökunni. Eftir
sakbendinguna á dögunum þar
sem eiginkona hans og þrjár
systur voru meðal hugsanlegra
huldumeyja kvaðst Haukur hins
vegar hafa ákveðið að fá lög-
fræðing sér til ráðuneytis. Að
öðru leyti vildi hann ekki tjá sig
um málið.
— SG
„ARABAVERÐ Á ÚT
FLUTNINGIOKKAR"
Ef oliufurstunum í Arabaríkjunum dettur í hug ai
hækka olíuverðið um 10%, lækkar í reynd verðið i
þeim vörum, sem við f lytjum út til Sovétrikjanna unr
10%, segir Svarthöfði í grein sinni á bls. 2.
'
Annað handtökumál
vaknar til lífsins
Vegna mikilla blaðaskrifa um handtöku á bílstjóra
Guðbjarts Pálssonar og hans sjálfs, svo og rannsókn á
henni, hefur annað handtökumál horfið í skuggann.
• En nú er hafin af fullum krafti rannsókn vegna kæru
tveggja varnarliðsmanna á hendur þeim Kristjáni
Péturssyni og Hauki Guðmundssyni. Sú kæra var bor-
in fram vegna handtöku varnarliðsmanna og er meira
en hálft ár síðan kæran kom fram.
Nú hefur fullur kraftur verið settur í rannsókn
þessa handtökumáls einnig og þeir Kristján og Hauk-
ur verða yfirheyrðir i vikunni — í fyrsta sinn!
— Sjá bls. 3.
..