Vísir - 11.01.1977, Qupperneq 5
Nýr bíll vann
1. kappakstur
ársins
Jody Scheckter frá Suður-
Afriku sigraði i Argentinukapp-
akstri heimsmeistarakeppninn-
ar um helgina, þar sem flest
átrúnaðargoð kappaksturs-
manna heltust úr lestinni, áður
en komið varð i mark.
„Það var kraftaverki h'kast
með nýsmiðaðan bil, nýja á-
höfn”, sagði Scheckter, sem ók
Wolf-Ford i þessari fyrstu
keppni, sem sá bill tekur þátt i.
Liklegri garpar — eins og
James Hunt frá Bretlandi, nú-
verandi heimsmeistari, eða
Niki Lauda frá Austurriki, fyrr-
verandi heimsmeistari luku
ekki keppni.
Scheckter var tiundi, þegar
byrjað var, en vann sig áfram,
og komst loks fram Ur Carlos
Pace frá Braziliu á siðustu
hringjum. Pace kom annar i
mark á Brabhambil sinum. —
Meðalhraði Scheckters mældist
189,43 km/klst.
1 35. hring virtist Pace örugg-
ur með sigur, þegar hann fór
fram úr John Watson frá Ir-
landi. En Scheckter var 43
sekúndum á undan Pace i mark.
Þriðji var svo Carlos Reutmann
frá Argentinu i Ferrari. — Um
tima var Reutmann heilum
hring (6 km) á eftir fremstu
mönnum, en dró mikið á undir
lokin. Watson, sem leiddi
keppnina um hrið, varð fyrir
vélarbilun i 41. hring og féll úr
keppni.
t 32. hring var heimsmeistar-
inn sjálfur, James Hunt, i for-
ystu, en McLaren-billhans slóst
utan i grindverk i vandasamri
beygju, fór út af og var ekki til
frekari keppni fær. — ,,Ég veit
ekki, hvað skeði. Ég veit ekki
einu sinni, hvort það var ég eða
billinn, sem brást”, sagði Hunt.
Fyrrihluta keppninnar var
Niki Lauda þriðji fremsti bill,
en i 11. hring tók vélin i Ferrari-
bilnum að nötra svo að hann
dróst aftur úr og varð að lokum
að hætta keppni i 21. hring.
Emerson Fittipaldi, fyrrum
heimsmeistari (frá Braziliu),
ók Copersugarbil sinum f jórði i
mark, og Mario Andreotti
(Bandarikjunum), varð fimmti
á Lotus, varabifreið, sem hann
greip til, þegar aðalbillinn
skemmdist á brautaræfingu.
Sexhjóla Elf-Tyrrell-bilarnir
féllu báður úr keppni. Ronnie
Peterson frá Sviþjóð lenti út af
brautinni á sinum i 29. hring.
Frakkinn Patrick Depailler
lenti i rafmagnsvandræðum
með sinn.
Eigandi sigurbilsins, Wolf-
Ford, er kanadiskur oliukóngur,
fæddur i Austurriki. Walter
Wolf fékk áhuga fyrir kapp-
akstri og ákvað i fyrra að láta
smiða eigin bil. Það verk annað-
ist bretinn Harvey Postleth-
waite, og kostaði gripurinn
40.000 sterlingspund.
Hvert verður
nýmœlið í stjórn Corters?
Jimmy Carter sagði að eng-
inn forseti Bandarikjanna
mundi jafnvel undir það em-
bætti búinn og hann þegar hann
leysir Jerry Ford af hólmi.
Má vera að rétt verði. Að
minnsta kosti hefur ekki verið
lát á fréttum af viðræðum hans
við hina og þessa vitringa á
flestum sviðum til þess að fræða
hann um ástand mála, allt frá
þvi að hann sigraði i forseta-
kosningunum.
Siðustu vikurnar hefur hann
verið önnum kafinn við manna-
val i ýmis lykilembætti stjórnar
sinnar og hafa störf núverandi
forseta og núverandi banda-
rikjastjórnar alveg horfið i
skuggann af fréttum um, hverja
Carterhefur valið til þess aðtaka
þeirra sæti.
Carter hefur nú lokið þvi
mikla verki, sem var að velja
sér samstarfsmenn i ráðherra-
stóla. Þar á ofan hefur hann set-
ið með þeim á fundum til að
ræða möguleikana á að efna
kosningaloforð sin um skatta-
lækkanir, sparnað i hernaðar-
útgjöldum, efnahagsaðstoð við
þurfandi stórborgir Bandarikj-
anna, aðgerðir til atvinnusköp-
unar og fleira og fleira. Eftir
biður þó mikið verk, sem er
ráðning manna i nær 300 minni-
háttarembætti, og svo ráðning
sjálfs starfsliðsins i Hvita hús-
inu.
Nánustu samstarfsmenn for-
setans i skrifstofum hans I Hvita
húsinu setja sinn svip á stjórn-
' timabil hans, engu siður en ráð-
herrarnir i rikisstjórninni.
(Mönnum er ekki úr minni,
hvern blæ Haldeman og Erlich-
mann settu á Nixontlmann).
Carter boðaði breyttan tima
með komu sinni til Hvita húss-
ins. Hann hamraði á þvi i kosn-
ingabaráttunni, að hann kæmi
utan frá, en ekki gegnsýrður af
skriffinnsku Washingtonborgar,
og lofaði kjósendum nýjum
mönnum i embættin.
Þegar hér er komið undir-
búningi hans fyrir stjórnar-
skiptin, eru það þó flest gamal-
kunn andlit, er hann hefur kynnt
sem væntanlega ráðamenn.
Menn, sem gegndu trúnaðar-
störfum I stjórnartið Johnson,
jafnvel Kennedys. Það bregður
fyrir meira aö segja andlitum
úr stjórn Nixons og Fords,.
Slikir menn eru Theodor Sör-
ensen, sem var ræðuskrifari
Kennedys og ráðgjafi. Eða
James Schlesinger, fyrrum
varnarmálaráðherra Nbcons og
Fords, sem á að verða orku-
málaráðherra Carters.
Enn sem komið er, hefur
ekki bólaö á þvi „splunkunýja”,
sem einkenna skal stjórn Cart-
ers.Enda hefurmenn grunað að
hannmundi kannske geyma sér
það til siðast að kynna nýmæl-
in.
Upp úr áramótunum komst á
kreik sá kvittur um , hvert væri
nýja trompið, sem Carter ætlar
að slá fram. Að visu einungis
getgátur, sem sýnast samt lik-
legar, þegar litið er yfir undir-
búningsstarf Carters allar götur
aftur til þess aðhann haföihlotið
útnefningu Demókrataflokksins
til framboðs i forsetakosningun-
um. — Menn halda að þetta
tromp verði varaforsetinn,.
Walter Mondale. Það er nefni-
lega hald manna að Carter ætli
að láta Mondale gegna embætti
starfsmannast jóra Hvita
hússins jafnhliða störfum vara-
forseta.
Störf varaforseta Bandarikj-
anna hafa um áratuga bil ein-
skorðast við stjórn funda i öld-
ungadeild Bandarikjaþings. Af
og til ferðalög sem sérlegir er-
indrekar leiðtoga bandarisku
þjóðarinnar til fundar við aðra
leiðtoga. Ef ekki væri fyrir
stöku fréttamyndir af þeim við
hlið forsetanum i mannfagnaði,
hefðu þeir gleymst nema á
kosningaárum, þegar forseti,
sem ieitarendurkjörs, en er um
leið bundinn af stjórnarsýslu
verðurað reiða sig á erindrekst-
urs varaforsetans, þar sem
hann getur sjálfur ekki verið á
tveim stöðum i einu.
Fyrir kosningarnar lýsti
Carter þvi yfir og áréttaði
margsinnis, að hann ætlaði
Mondale meiri hlut i sinni rikis-
stjórn en fyrirrennarar hans
höfðu. Það sama hafa hinsvegar
nær öll forsetaefni sagt i sömu
sporum. En Carter hefur leitast
við að standa við þessa heit-
strengingu. Ekki aðeins i kosn-
ingabaráttunni, þegar fram-
bjóðendurnir þurftu að bera
saman bækur sinar um stefnu-
yfirlýsingar og kosningaloforð,
heldur og á eftir á i undirbún-
ingsstarfinu fyrir stjórnarskipt-
in. Mondale hefur tekið virkan
þátt i að velja menn til embætta
og verið einna áhrifarikastur
samherja og ráðgjafa Carters
við mannavalið.
Carter hefur sagt, að eftir
stjórnarskiptin muni Mondale
fá skrifstofur i Hvita húsinu.
Fyrri forsetar höfðu varafor-
seta sina i hæfilegri fjarlægð i
skrifstofum handan götunnar,
eða i þinghöllinni. Staðsetning
varaforsetans i Hvita húsinu
kemur til með að auðvelda hon-
um mjög að ná eyra forsetans,
sem skiptir miklu. 1 tið Nixons
forseta báru þingmenn og ráð-
herrar sig mjög undan þvi, hve
erfiðir Haldemann og Erlich-
mann reyndust þeim við að út-
vega áheyrn hjá forsetanum.
Voru þessir ráðgjafar áhrifa-
mestu menn Bandarikjanna
þegar frá var tekinn forsetinn
sjálfur, og jafnvel áhrifameiri
en ráðherrarnir. 1 samkeppni
þeirra Henry Kissingers og
James Schlesinger um áhrifin á
Ford forseta naut Kissinger
þess, að hann hafði frá skrif-
stofu sinni i Hvita húsinu greið-
ari aðgang að Ford, og Schles-
inger var um það er lauk vikið
úr embætti varnarmálaráð-
herra.
Starfsmannastjóri forsetans
er innan sjón- og heyrnarmáls
við æðsta mann þjóðarinnar alla
daga. Sem slikur mundi Mond-
ale njóta meiri áhrifa en nokkur
fyrirrennari hans.
A fyrsta fundi sinum eftir ára-
mót með væntanlegri rikis-
stjórn sinni er sagt, að Carter
hafi látið þau orð falla, sem
komið hafa þessum orðskvitt á
stað og hefur hann fengið slikan
byr undir vængina, að menn
draga litt i efa sannleiksgildi
hans. Timinn leiðir það i ljós.
En komi það á daginn er fyrir-
sjáanleg sú breyting á stjórn
Carters frá stjórnum annarra
Bandarikjaforseta, að i staðinn
fyrir að utanrikisráðherrar
þeirra hafa verið mest áberandi
menn stjórna þeirra, verður það
varaforseti Carters.