Vísir - 25.01.1977, Blaðsíða 1
HUGMYNDIR JÓNS SiGURÐSSONAR, FORSTÖÐUMANNS ÞJÓÐ-
HAGSSTOFNUNAR, UM ENDURSKOÐUN LÍFEYRISMÁLANNA:
ALLAR LÍFEYRISTRYGGINGAR
SAMEINAÐAR I EITT KERH
,,Ég hallast sjálfur helst aö
þvi, að tekið verði upp eitt heild-
arkerfi fyrir lifeyristryggingar
landsmanna, sem auk llfeyris-
trygginga almannatrygginga
taki að sér að rækja skuldbind-
ingar lifeyrissjóðanna, sem fyr-
ir eru, við félagsmenn þeirra, og
fengi til þess tekjustofna þeirra
og eignir samkvæmt sérstöku
samkomulagi”.
Þetta segir Jón Sigurðsson,
forstöðumaöur Þjóðhagsstofn-
unar, í itarlegu viðtali, sem birt
er á bls. 8-9 i blaðinu i dag og
fjallarum endurskoðun þá, sem
nú stendur yfir á lifeyrissmál-
um landsmanna, en Jón er for-
maöur 7 manna nefndar sem
vinnur aö þvi máli og f.ulltrúar
vinnuveitenda og launþega eiga
aðild að.
Þessi nefnd var skipuð sam-
kvæmt samkomulagi launþega
og vinnuvéitenda fyrir tæpu ári
og átti upphaflega að skila áliti
á siðasta ári. Starf nefndarinnar
hefur hins vegar reynst mun
meira og timafrekara en þá var
áætlað, og er þvi ekki ljóst hve-
nær nefndarálit með hugmynd-
um nefndarinnar um nýtt lif-
eyriskerfi allra landsmanna
mun sjá dagsins ljós.
— ESJ
r
Lokakafli greinargerðar FIB:
Skátastarf
er orðinn fastur þáttur hér í Vísi og œttu
skátar og raunar miklu fleiri að finna þar sitt
af hverju við sitt haefi Sjá bls. 17
-
Börnin í Hólabrekkuskóla voru hress, en ekkert sérlega óþæg f gæsluleysinu. Innfelld mynd er af
Sigurjóni Fjeldsted, skólastjóra. Mynd: —JA.
Verður skólanum lokað?
Sigurjón Fjeldsted, skóla-
stjóri Hólabrekkuskóla, hefur
skrifað Fræðsluráði bréf, þar
sem hann kveðst ekki treysta
sér til að halda uppi reglu-
bundnu starfi i skólanum, ef
kennarar sem eru aðilar að
Landssambandi framhalds-
skólakennara, fáist ekki tii að
taka aö sér gæslu I frímínútum.
„Ég tel það ábyrgöarleysi að
kalla saman mörg hundruð börn
i skólann og láta þau vera eftir-
litslaus i friminútunum,” sagði
Sigurjón við Visi i morgun.
„Ég held fund meö kennurum
ILSFK á eftir til að kanna hvort
einhverjir þeirra vilja halda á-
fram gæslu'. Ef ekki, verður rætt
við þá kennara okkar sem eru i
öðrum kennarafélögum, til að
athuga hvort þeir vilja leggja á
sig aukagæslu.”
„Ef það gengur ekki heldur,
veit ég ekki hvað gerist. Þaö
verður örugglega truflun á
starfseminni, þvi ég treysti mér
ekki til að hafa börnin eftirlits-
laus úti i friminútunum.
—ÓT.
Sporgöngumenn fógetans í Notthingham?
Sjó grein Haralds Blöndals lögfrœðings á blaðsíðum 10 og 11
Bílaskoðunin
á verkstœðum?
i lokakafla greinargeröar Félags íslenskra bif-
reiðaeigenda um númeramálið og Bifreiðaeftirlit
rikisins er fjallað um bifreiðaskoðunina/ og hvort
dýrara verði að flytja hana inn á bifreiðaverkstæð-
in. FIBtelursvoekkivera.
Sjá bls. lOog 11.
——m*