Vísir - 25.01.1977, Qupperneq 5
5
Hagsmunir
ofar öfíu
ogmeðþað
slapp Abu!
,,Þetta er okkar nýja, endurbætta þjóbartákn!”
Reiðialdan
ViðbrögBin voru meiri, en
nokkurn hefði getað órað fyrir,
og vissulega miklu meiri en
þeim svartsýnasta i frönsku
rikisstjórninni hafði grunað,
áður en A1 Fatah-skæruliðafor-
ingjanum, Abu Daoud, var
sleppt.
Dögum saman nudduðu skop-
teiknarar helstu blaða heims
andliti Frakklands upp úr dára-
bleki sinu, meðan leiðarar
endurspegluðu vanþóknun
ritStjórnanna.
,,I hugleysi, mannvonsku og
kaldhæðni hefur rikisstjórn
Frakklands veifað uppgjafar-
fánanum framan I oliukaup-
menn og Mirageþotukaupend-
ur,” skrifaði hið annars dag-
farsprúða óháða dagblað „Ma
’ariv” i ísrael, þar sem almenn-
ingur fylltist ofsabræði og efndi
til mótmælaaðgerða fyrir fram-
an franska sendiráðið i Tel
Aviv..
I Bonn, þar sem yfirvöld
höfðu látið i ljós vilja sinn til
þess að fá hryðjuverkaforingj-
ann framseldan, létu menn sér
hins vegar nægja að lýsa yfir
„hryggð” sinni vegna þessara
málaloka og hnýttu i Frakkland
fyrir að leggja ekki lið „barátt-
unni gegn hryðjuverkum”. —
Washington tjáði „undrun sina
og áhyggjur”.
Jafnvel frönsku blöðin fengu
sjálf ekki orða bundist, og öku
sér undir alheimsálitinu. Dag-
blaðið ,,Le Monde” i Paris sagði
Ileiðara sinum: „Þegar máður
hefur lögreglu, sem hlýöir ekki
fyrirmælum, dómarakerfi, sem
lætur skipa sérfyrir verkum, og
rikisstjórn, sem frammi fyrir
alheimsálitinu gerir sig bera að
þvi að eltast við hentistefnu-
sjónarmið, þá fær maður út úr
þvi einn allsherjar ógæfu-
graut.”
Þessi einkunn blaðsins á
hentistefnukaupmangi frönsku
stjómarinnar rifjar upp um-
mæli John F. Kennedys banda-
rikjaforseta, sem einhvern tima
i gremju yfir kaldrana frakka i
garð bandarikjastjórnar, sagði:
„Frakkland á ekki vini — aðeins
hagsmuni!”
Hagsmunirnir
Frönsku stjórninni til vor-
kunnar verður að benda á, aö
hún seldi sig dýrt. Það voru
geipilegir hagsmunir annars
vegar, sem hún setti ofar al-
menningsálitinu, þegar hún
kaus að ofbjóða siðgæðisvitund
manna með þvi að sleppa einum
af morðingjunum frá Munchen.
Fyrir dyrum þá stóð heim-
sókn Giscard d’Estaings frakk-
landsforseta til Saudi Arabiu,
sem hann vonaðist til að gæti
orðið stórt skref i átt til þess að
treysta sambönd frakka og
araba. Margra milljarða við-
skipti frakka við araba, fjár-
festingar og útflutningur, eru
undir þvi komin, að þau sam-
bönd endist. Arabar höfðu ekki
talað neinni tæpitungu um,
hvernig þeir mundu lita á það,
ef frakkar framseldu Abu
Daoud Vestur-Þýskalandi eða
Israel. Frakklandsforseti hefði
ekki þurft að gera sér neinar
vonir um árangur slikrar heim-
sóknar og þvi alveg eins getað
aflýst henni. Þar við bætist
hversu háöir frakkar eru
Austurlöndum nær um oliu, en
þeir fá um 90% sinnar oliu frá
aröbum.
Þótt sagan sýni, að ekki þarf
að frýja frökkum áræðis, þá er
mannlegt að þeim hrjósi hugur
við þeirri holskeflu hryðju-
verka, sem þeir hefðu kallað
yfirfrönsk fyrirtæki og stofnan-
ir, þar sem þau eru dreifð um
viða veröld. Flugfélög, verk-
smiðjur, sendiráð hefðu öll orðiö
i augum ofstækisfullra hryðju-
verkamanna araba réttmæt
skotmörk. Lifi þeirra manna,
sem i þeim skotmörkum stafa,
French connection kallar skoptoiknarinn þessa mynd sfna, og þeir,
sem séð hafa samnefnda kvikmynd, sem fjallar um viðkomu eitur-
lyfja I Frakklandi á leið þeirra frá Austurlöndum til fikniefnasjúk-
linga á Vesturlöndum, átta sig á samhenginu.
hefði þar með verið stofnað i
stöðuga hættu. — Það er mun
léttara þeim, sem fjarri standa,
að dæma um slikar ákvarðanir,
en hinum, sem vandara er um,
að taka þær.
Franska rikisstjórnin taldi
auðsýnilega Abu Daoud ekki
þessa alls virði.
Hver er Abu Daoud?
Raunarheitirhannréttu nafni
Mohammed Daoud Mohammed
Auba, fæddur I Siluan, útborg
Jórsala, fyrir 39 árum. Aldraðir
foreldrar hans búa þar ennþá.
Abu Daoud er dulnefni, sem
hann tók sér innan skæruliða-
hreyfingar palestinuaraba „A1
Fatah”. 1 hana gekk hann upp
úr 1965, en hafði fram til þess
kenn’t stærðfræði og eðlisfræði I
menntaskóla.
Sjálfur þakkar hann sér stofn-
un leyniþjónustudeildar
„Fatah”, sem gengur undir
nafninu „E1 Rash”, en það
mundiþýða „gát”. Grundvöllur
hennar mun hafa verið lagður
um 1968.
Abu Daoud er sagður hafa
verið einn aðalskipuleggjandinn
i undirbúningi Fatah fyrir borg-
arastyrjöldina i Jórdaniu 1970,
þegar skæruliðum palestinu-
araba misheppnaðist að hrifsa
völdin I landinu úr höndum
Husseins konungs. Daoud særð-
ist i einhverjum fyrstu bardög-
unum og lá þvi i sárúm á
sjúkrahúsi i Damaskus það sem
eftir var átakanna.
Hann hefur viða komið fram
fyrirhönd þjóðfrelsishreyfingar
palestinuaraba (PLO), en það
er stjórnmálahreyfing, sem
Fatah stofnaði til að skáka fram
fyrir skæruliðastarfsemina. —
Daoud var I sendinefndum sem
fóru til Kina, Noröur-Kóreu og
fleiri landa.
Afrekaskrá Abu
Lesendur minnast þess sjálf-
sagt af fréttum, að Abu Daoud
var sagður skipuleggjandi árás-
arinnar á ólympiuþorpið i
Munchen, sem lauk með falli
ellefu Iþróttamanna frá Israels,
þýsks lögregluvarðar og arab-
iskra skæruliða. — Timaritið
Newsweek heldur þvi fram, að
þetta sé ekki rétt, þvi að „heið-
urinn” af þeirri árásaráætlun
eigi Ali Hassan Salameh, annar
foringi i hryðjuverkasamtökum
Fatah. Blaðið segir þó, að Abu
Daoud hafi svo sem átt ærinn
þátt i Munchenárásinni samt.
Hann hafi undirbúið aðgerðirn-
ar með þvi að fara i þorpið og
kynna sér staðhætti, útbúa
vegabréf handa morðingjunum,
sem opnuðu þeim leið inn i ibúð-
ir iþróttamannanna, og smygl-
að vopnum þeirra fyrir þá inn I
þorpið.
Abu Daoud hefur afrekað
fleira á þessu sviði. Tveim árum
siðar var hann tekinn fastur á-
samt sautján félögum úr
„svarta september”, morð-
ingjasveitinni, sem fræg er orð-
in af flugránum, tökum sendi-
ráöa og gisla og moröum á
diplómötum og öðru saklaus
fólki. Það voru yfirvöldin i
Amman, sem höföu hendur i
hári þessa hóps, og ákærðu hann
fyrir enn eitt samsæri gegn
jórdaniukonungi. — Palestinu-
skæruliöar gengu berserksgang
til þess að reyna að losa Abu
Daoud úr prísundinni. Gerðar
voru tilraunir til flugrána og
töku sendiráða. Ráðist var
meira að segja á sendiráö eins
arabarikjanna, nefnilega Saudi
Arabiu-sendiráðið i Khartoum,
Lauk þeirri árás með þvi, að
þrir diplómatar, tveir banda-
rikjamenn og einn belgiumaður
voru teknir af lifi með köldu
blóði.
Hryðjuverkamaður
Það er sagt, að leyniþjónusta
Jórdaniu hafi þvingaö töluverð-
ar upplýsingar upp úr Abu
Daoud um félaga hans og
Fatah. Sömu sögur herma, að
israelar hafi fljótlega komist
yfir þessar upplýsingar siðan,
og hafi þær auðveldað böðuls-
sveitum þeirra að fyrirkoma
hryðjuverkaforingjum pale-
stinuaraba.
Alla vega komst Abu Daoud I
ónáð um hrið fyrir að ljósta þvi
upp, að yfirstjórnandi „svarta
september” morðingjanna væri
enginn annar en Yasser Arafat
sjálfur, leiðtogi PLO, sem þá
var I óða önn að máta dipló-
mataskikkjuna ogkunniþvi illa,
að grillti i blóðflekkaðan
hryðjuverkabúninginn innan
undir.
Eftir að jórdanir slepptu Abu
Daoud 1973 settist hann að með
konu sinni og sex börnum i
Damaskus og hafði sig ekkert I
frammii leyniaðgerðum Fatah,
eftir þvi sem best er vitað. Hon-
um voru falin verkefni á dipló-
matasviðinu og kom fram sem
sendifulltrúi PLO. Þess erindis
kom hann til Parísar fyrir jarð-
arför Mahmoud Saleh bóksala
og fyrrum talsmanns PLO, sem
skotinn var til bana fyrir fram-
an bókaverslun sina i araba-
hverfi Parisar 3. janúar.
Flókið tafl
Þótt Abu kæmi þannig á
yfirborðinu séð friðsamlegra
erinda til Parisar, þótti honum
aUur varinn góður og ferðaðist
undir fölsku nafni. — Hvernig
franska leyniþjónustan varð
þess áskynja, hver maðurinn
var, eða hvi hún handtók hann
án þess að ráðfæra sig við æðst-
ráðendur landsins (sem hefðu
komið sér hjá klipunni með þvi
einfaldlega að loka augunum og
láta manninn afskiptalausan)
hafa menn ýmsar hugmyndir
um.
Menn geta sér til, aö Mossad,
leyniþjónusta ísraels, hafi
fylgst með þvi, þegar Abu
Daoud sté i flugvélina i Beirut,
og gert frönsku leyniþjónust-
unni viövart. Kvisast hefur, að
sú deild frönsku leyniþjónust-
unnar, sem einkennd er með
skammstöfununni DST, sé ekki
alls kostar sátt við vinskap
d’Estaings forseta og stjórnar
hans við arabalöndin. Var leyni-
þjónustan að reyna að bregða
fæti fyrirstefnu forsetans gagn-
vart arabarikjunum með þvi að
koma frakklandsstjórn i þessa
óþægilegu aðstöðu? Svar viö þvi
fæst sennilega seint.