Vísir - 15.02.1977, Page 13
Þriöjudagur 15. febrúar 1977
vism
vism Þriðjudagur
15. febrúar 1977
IpFómr
Helga Halldórsdóttir KR settir nýtt telpna-
met I 50metra grindahlaupi á föstudaginn —
hljóp á 8.4 sekúndum. Helga er mjög efnileg
og á örugglega eftir að láta meira að sér
kveða i framtiöinni. Ljósmynd — BB
Valbjörn jafnaði
íslandsmetið
Valbjörn Þorláksson úr KR lætur aldurinn
ekki á sig fá þótt hann sé orðinn liðlega fer-
tugur — og á innanfélagsmóti hjá KR á föstu-
dagskvöldib I Baldurshaganum jafnaði hann
islandsmet sitt i 50 metra grindahlaupi —
hljóp á 6.8 sekúndum. Bjön Blöndal KR varð
annar, hljóp á 6.9 sekúndum.
Á þessu sama móti setti ung og efnileg
stúlka úr KR nýtt islandsmet i 50 metra
grindahlaupi telpna, hún hljóp á 8.4 sekúnd-
um og bætti eldra metið sem Ása Halldórs-
dóttir úr Ármanni setti 1972 um þrjú
sekúndubrot, en þaö var 8.7 sekúndur.
•
Tindastóll
í úrslit
Tveir leikir voru leiknir I Norðurlands-
riblinum i 3. deild islandsmótsins i körfu-
knattleik á Eskifirði um helgina og eftir þá er
ljóst að Tindastóll frá Sauðárkróki muni
sigra I riðlinum. Tindastóll á eftir einn leik,
við KA frá Akureyri, og skiptir sá leikur engu
máli, þvi að liöið hefur nú hlotið sex stig og
geta hin félögin ekki hlotið sama stigafjölda.
Fyrst léku ÚlA og KA og lauk þeim leik
með yfirburöarsigri þeirra CIA manna sem
skoruðu 79 stig gegn 40 — og I þeim leik skor-
aði einn og sami maðurinn 31 stig. Það var
Magnús Guðmundsson i liði CtA.
Daginn eftir léku svo CtA og Tindastóll og
lauk þeim leik með sigri Tindastóls 59:56 eft-
, ir skemmtilegan og fjörugan leik. Sem fyrr
var Magnús Guðmundsson stigahæstur hjá
CtA, hann skoraði 13 stig, en hjá Tindastól
skoraði Rúnar Björnsson flest stigin 18 — öll I
siðari hálfleik.
— HJ/—BB
Staða HK er
„gulltrygg"
Handknattleiksfélag Kópsvogs
hefur nú svo gott sem tryggt sér
sigur i 3. deild Suðurlandsribli ts-
landsmótsins i handknattleik —
og nú getur fátt komið i veg fyrir
að félagið leiki I 2. deild á næsta
keppnistimabili sem veröur að
teljast góbur árangur hjá félagi
sem nýlega átti eins árs afmæii.
Um helgina lék HK við UMFN i
Njarðvikum og sigraöi i þeim leik
eftir hálfgerðan barning meö 23
mörkum gegn 18. HK hefur nú
leikið sjö leiki, unnið þá alla og
hefur þvi 14 stig. Næstu lið eru
Afturelding og Akranes sem eru
meö 12 stig að loknum tiu leikjum
og koma önnur liö ekki til með aö
ógna sigri HK. En telja verður
óliklegt aö Afturelding eða Akra-
nes nái HK að stigum, þvi aö bæði
félögin hafa tapað 8 stigum i
keppninni til þessa.
Frá þvi að staöan birtist siðast i
Visi hafa verið leiknir þrir leikir i
3. deild og urðu úrslit þeirra
þessi:
Akranes—UMFN 18:18
UMFN—HK 18:23
Breiðablik—Afturelding 16:19
Staðan i 3. deild Islandsmótsins
i handknattleik er nú þessi:
HK 7 7 0 0 162:109 14
Afturelding 10 6 0 4 252:233 12
Akranes 10 5 2 3 209:209 12
bór
(Vestm.) 9 4 0 5 195:213 8
Breiöablik 8 3 0 5 168:179 6
UMFN 10 2 2 6 189:203 6
Týr
(Vestm.) 10 3 0 7 217:247 6
Næsti leikur i 3. deildarkeppn-
inni veröur i iþróttahúsinu i
Njarðvikum á laugardaginn. Þá
leika UMFN og Breiðablik.
— BB
Líð „óónœgðra"
valíð í gœr!
Þeir Guðjón Jónsson og Bjarni
Jónsson völdu I gær lið það sem á
að leika sem B-lið tslands i
fjögurra liba handknattleiks-
keppni kvenna f Laugardalshöll-
inni um næstu helgi.
Eins og kunnugt er varð niður-
staðan af fundi þeirra stúlkna
sem eru orönar 23 ára og eldri
meö stjórn HSt á dögunum sú, að
ákveöið var að „gömlu konurn-
ar” skyldu'senda lið i keppnina.
Ekki er annað að sjá en að hægt
sé að tefla fram mjög bærilegu
liði, en þaö veröur þannig skipaö:
Ragnheiður Blöndal, Val
Björg Jónsdóttir, Val
Björg Guömundsdóttir, Val
Elin Kristinsdóttir, Val
Sigurbjörg Pétursdóttir, Val
Oddný Sigsteinsdóttir, Fram
Jóhanna Halldórsdóttir, Fram
Kristin Orradóttir, Fram
■Guörún Sigurþórsdóttir,
Ármanni
Jóhanna Guðmundsdóttir,
Vikingi
Auk þess er fyrirhugað að fá
tvær stúlkur frá Akureyri I liöiö,
en okkur tókst ekki að afla
upplýsinga um nöfn þeirra.
Auk tveggja liða frá íslandi
taka lið Hollands og Færeyja þátt
I mótinu. Islenska liöið sem valið
er af landsliðsnefnd hefur ekki
verið tilkynnt, en i þvi munu vera
18 stúlkur eftir þvi sem við höfum
heyrt.
„Oánægðar handknattleikskon-
ur” 23 ára og eldri hafa nú skipaö
nefnd sem á að ræöa við stjórn
HSl um málefni stúlknanna, og i
nefndinni eru Oddný Sigsteins-
dóttir, Helga Magnúsdóttir, Elin
Kr i stinsdó11 i r , Björg
Guðmundsdóttir og Erla Sverris-
dóttir.
gk-.
Galena Stepanskava frá Sovétrfkjunum varð sigurvegari f 1500 metra
skautahlaupi kvenna sem fram fór i Bandarikjunum nýlega. Hún fékk
timann 2,11,85 mfnútur.
Geir Hallsteinsson og félagar hans i islenska landsliðinu i handknatt leik hafa svo sannarlega haft nóg ab gera að undanförnu. f kvöld leika
þeir siðasta opinbera leik sinn hér á landi fyrir keppnina I Austurriki, og verða mótherjar þeirra pólska meistaraliðið Slask.Ljósmynd Einar
Ótímabœr skot komu
í veg fyrir sigur!
— Landsliðið hafði tveggja marka forskot þegar þrjór minútur voru eftir,
_______________en Slask núði að jafna 21:21.__
„Þetta var mun betra hjá okkur
uppi á Akranesi I gærkvöldi held-
ur en I siðustu leikjum okkar,”
sagði Agúst Svavarsson, lands-,
liðsmaður i handknattleik, þegar
við ræddum vib hann i gærkvöldi.
Landsliðið var þá nýkomið til
Reykjavikur frá Akranesi þar
sem liðið gerði jafntefli við Slask
Wroclaw, en eins og kunnugt er
hafa pólverjarnir unnið ótrúlega
auðveida sigra á landsliðinu
undanfarna daga. En i gærkvöldi
náði islenska liðið að rétta úr
kútnum, og fyrir troðfullu húsi
upp á Akranesi skildu liöin jöfn,
21:21.
En islenska liðiö fór illa að ráði
sinu undir lokin, þvi að þá virtist
þaö vera með sigurinn i hendi sér.
Þegar 3 minútur voru eftir
haföi Island 2 mörk yfir, en reynt
var ótimabært skot og pól-
verjarnir minnkuðu muninn I eitt
mark. Island haföi boltann þegar
45 sekúndur voru eftir og var
marki yfir, en þá var aftur reynt
ótimabært skot og allt fór á sama
veg og fyrr, pólverjarnir náðu
boltanum og skoruðu. Þegar
nokkrar sekúndur voru eftir af
leiknum fékk Björgvin Björgvins-
son góða sendingu inn á linuna, en
hann skaut I markvörðinn. Pól-
verjarnir geystust upp I hraða-
upphlaup en áður en þeir næðu að
skora rann leiktiminn út og liöin
skildu þvi jöfn. Sannarlega slæmt
hjá landsliöinu að ná ekki sigri,
hann virtist vera i höfn rétt fyrir
leikslok.
„Það sem geröi gæfumuninn
fyrir okkur i þessum leik var aö
samvinna okkar i vörninni var
mun betri en hún hefur veriö aö
undanförnu,” sagði Agúst
Svavarsson.
„Þá gekk okkur vel að ráða viö
Klempel i þessum leik. Viö sett-
um sérstakan gæslumann á hann,
og ef hann losnaði úr þeirri gæslu
var tekið hraustlega á móti hon-
um. Baráttuandinn sem hefur
ekki sést i liðinu að undanförnu
var nú með að nýju, og það var
verst að vinna ekki, en við tökum
þá i kvöld”.
Leikurinn var mjög skemmti-
legur fyrir áhorfendur. Allan
fyrri hálfleikinn skiptust liðin á
um að skora og jafnt var á flest-
um tölum. ísland hafði yfir I hálf-
leik 11:10. 1 siðari hálfleiknum
náði islenska liðiö siðan forskoti
sem heföi átt að nægja til sigurs,
en leikmenn „héldu ekki haus” og
þvi fór sem fór.
Björgvin Björgvinsson var
bestur islendinganna og skoraði
einnig mest eða 6 mörk. Geir
Hallsteinsson skoraði 5 mörk þar
af 3 úr vítum, Viggó Sigurösson 3
mörk og aörir þetta eitt til tvö
mörk.
Siðasti leikur pólverjanna hér á
landi aö þessu sinni verður i
Laugardalshöll I kvöld og þá fær
landsliöið tækifæri til að laga aö-
eins viðskipti sin við þetta liö að
undanförnu, en pólverjarnir unnu
3 fyrstu leiki liðanna örugglega.
gk —
endilega vilt þá skulum
íviö gera uppreikninginn úti,
íffT^ Hvað gengur~''\
þarna á?‘ y
iðir eru þeir vel þjálfaðir
óttamenn og berjast af hörku
iackmore er enginn aumingi,
like — hann er haröur i horn
r aötakay
Galt er baö lika — «
iiá.
Nýi og dýri leikmaðurinn I liöi|
Milford — Willie Blackmore,
ó ekki samleið með hinum
leikmönnum liðsins og fljótlega
sýðuruppúr. Allitekur Randall^
útaf I leik vegna þess að hann
hundsar Blacmore. Um kvöldift
hittast þeir tveir á dansstaö og.l
Húsvíkingar eru
mjög óúnœgðir!
finnst furðulegt að landsliðsnefnd HSI skuli ekki vilja
„skoða" fleiri stúlkur úr meistaraliði félagsins í 2. flokki
„Það verður að segjast eins og
er að almenn undrun og óánægja
rikir hér á Húsavfk vegna þess að
landsliðsnefnd kvenna hjá HSl sá
ekki ástæðu tilþess að lita á fleiri
stúlkur frá okkur en þær Jóhönnu
Guðjónsdóttur og Margréti Jóns-
dóttur,” sagöi Freyr Bjarnason,
iþróttafrömuður á Húsavik, þeg-
ar við ræddum viö hann i gær.
,Við getum bent á máli okkar til
stuðnings að Völsungur á islands-
meistara I 2. flokki kvenna, bæöi
utanhúss og innan, auk þess sem
stúlkurnar eru norðurlandsmeist-
arar.Þærhafaþvináöeinslangt i
Iþrótt sinni eins og hægt er hér-
lendis. 1 liðinu er fjöldi af stór-
efnilegum stúlkum sem að okkar
mati eiga fullt erindi i landsliðs-
hópinn, en landsliðsnefndin bað
einungisum aðfá þær Jóhönnu og
Margrétisuðurtil æfinga meölið-
inu. Við erum sárir út af þessu,
vegna þess að stúlkurnar eru
búnar að sanna getu sina”.
Freyr sagöi að þaö væri enn at-
hyglisverðara 1 sambandi við ár-
angur 2. flokks Völsungs I hand-
knattleik kvenna að liöiö yrði aö
æfa við ófullnægjandi skilyrði.
Salurinn sem þær æfa i á Húsavik
er aöeins 10x20 metrar á stærö en
þær yröu að spila alla sina leiki i
löglegum sal sem er 20x40 metr-
ar.
StUlkurnar hafa sýnt geysileg-
an áhuga og æfa árið um kring,
enda sýnir árangur þeirra að þær
hafa unnið vel.
„Þaö hafa áöur komið mjög
góðar stúlkur frá okkur og nægir i
þvi sambandi að nefna Arnþrúði
Karlsdóttur, Björgu Jónsdóttur,
Bergþóru Asmundsdóttur, Jó-
hönnu Asmundsdóttur, Sigþrúöi
Sigurbjörnsdóttur og Auöi Dúa-
dóttur i þvi sambandi, en allar
þessar stúlkurhafa veriö i eöa við
landsliðið. Hér er þvi ekkert nýtt
á ferðinni þótt athygli sé vakin á
þvi aö við eigum hóp efnilegra
stúlkna sem eiga að minu mati
fullkomlega erindi i landsliðshóp-
inn. Ég er ekki aö segja að þær
ættu að ganga beint inn i liöið, en
það ætti aö lita á þær”. —-gk—
Cruyff dœmdur
í keppnisbann
Hollenska knattspyrnustjarn-
an Johan Cruyff var I gærkvöldi
dæmdur i þriggja leikja
keppnisbann með félagi sinu
Barcelona á Spáni.
Atvikið sem varð til þess að
Cruyff var dæmdur i bann átti
sérstaðá leikvelli Barcelona 6.
febrúar siðastliðinn, þá visaði
dómarinn — Ricrado Melero,
Cruyff af leikvelli, en
áhangendur Barcelona voru
ekki sáttir við þá ákvörðun og
réðust inn á leikvöllinn og börðu
dómarann og unnu nokkur
spjöll.
Dómarinn sagði f skýrslu
sinni að Cruyff hefði slegið sig,
en þvf neitar hann og allt Barce-
lona-liðið stendur með honum
og segir að ef einhver hefði átt
að vera rekinn af leikvelli þá
hefði það átt að vera dómarinn.
Cruyff hefur nú þrjá daga til að
áfrýja þessum úrskurði.
Þessi mynd er af 2. flokks liði Völsungs í handknattleik kvenna, en liöið hefur veriö ósigrandi og sigraði
bæöi I tslandsmótinu utanhúss og innan, auk þess sem liðið er norðurlandsmeistari. Ljósmynd Börkur.
Síðasti
leikurinn
í kvöld
Siðasti leikur pólska meistara-
liðsins Slask Wroclaw hér á landi
að þessu sinni verður f Laugar-
dalshöll i kvöld, og þá leikur liðið
gegn islenska landsliöinu.
Liöin hafa leikið fjóra leiki á
undanförnum dögum, hafa pól-
verjarnir unnið þrjá þeirra en i
gærkvöldi gerðu liöin jafntefli.
Leikurinn sem hefst kl. 21 veröur
sfðasti leikur landsliðsins hér á
landi fyrir átökin i Austurriki.
gk-.
— SPORT-blaðið—»
Verið með frá byrjun
og gerist áskrifendur
Nafn:
Heimilisfang:
Staður: Sími
Pósthólf SPORT-blaðsins er 4228
-