Vísir - 15.02.1977, Side 23
■\
Sem flestir œttu að
styðja bjórtillöguna
Þóra Svavarsdóttir skrifar:
„Ég sá i frétt i VIsi, aö Jón
G. Sólnes ætlar aö bera fram
tillögu um aö leyft veröi aö
opna nokkrar bjórkrár hér i
borginni. Mér finnst aö sem
flestir ættu aö lýsa yfir stuön-
ingi viö þessa ágætu tillögu.
Hins vegar finnst mér þaö
fáránlegt þegar Jón Ármann
Héöinsson og fleiri vilja
þyngja áfengislöggjöfina. Ef
þaö veröur gert og viniö
kannski hækkaö um leiö þá er
ég viss um aö ástandiö fer
versnandi. Fólk fer þá bara aö
koma meö vasapela meö sér á
vinveitingastaöina og smygl
mun stóraukast.
Mér finnst leiöinlegt aö sjá,
aö Jón Ármann og félagar ætli
aö reyna aö fá þvi framgengt,
aö fólk innan viö tvitugt fái
ekki aö fara inn á vinveitinga-
staöina og maöur eigi aö sýna
nafnskirteini um leiö og keypt
er flaska eöa glas af vini. Nóg
er vist þetta nafnnúmerafarg-
an samt. Ef þeir halda aö meö
þessu veröi komiö i veg fyrir
aö unglingar á aldrinum 17-19
ára geti keypt sér flösku eöa
vinglas þá er þaö misskilning-
ur.
Svo vil ég mælast til aö þjóö-
inni sjálfri veröi leyft aö
ákveöa hvort hún vill bjór eöa
ekki, en einhverjir bannmenn
veröi ekki látnir ráöa öllu.”
, <' ''
Helgarkaupbœtirinn
fellur í góðan jarðveg
G. Magn. Isafiröi skrifar:
Þaö er svo oft, aö fólk lætur
heyra frá sér þegar þaö er
óánægt meö eitthvaö, en
sjaldnar er minnst á þaö sem
er þakkar vert.
Ég tek mér nú penna I hönd
til þess aö þakka fyrir Helgar-
blaö Visis, sem mér hefur
fundist sérstaklega gott. Mér
finnst reyndar ótrúlegt, aö
þetta litprentaöa vikublaö
skuli fvlgia VIsi ókeypis, þvi
aö vikublöö, sem eru meö
áiika 'miklu efni hafa veriö
seld á 200-300 krónur.
En aöstandendur Visis mega
vita, aö þessi kaupbætir fellur
i góöan jaröveg hér vestra, og
vænti ég aö svipaöa sögu sé aö
segja annars staöar af land-
inu.
Hafiö þökk fyrir góöa lesn-
ingu, forvitnileg viötöl og
ágæta fasta þætti Helgar-
blaösins, eins og kvikmynda-
spjail Erlends Sveinssonar,
sem ég les alltaf meö athygli,
þótt pistlar um kvikmyndir
hafi f ram aö þvi ekki höföaö til
min.
Ur 200
sleðum í 27
„Holl fœða er heilsugjafi
##
Þakkar greinarnar um „kostur og þjóðrif'
Bjarnveig Bjarnadóttir sendi
blaöinu eftirfarandi:
,,Ég vil þakka VIsi fyrir hin-
ar prýöilegu og fróölegu
greinar Jóns Óttars Ragnars-
sonar um fæðuna.
Mér viröist stundum sem
ýmsir séu harla ófróðir um
þennan veigamikla þátt I dag-
legu llfi manna.
Holl fæöa er heilsugjafi en
óholl heilsuspillandi.
Bjarnveig Bjarnadóttir.”
Þ.B. skrifar:
Liklega treystir tollstjóri sér
ekki til aö svara lesendabréfi,
sem birtist I Visi þann 27. janúar
siöastliðinn, þar sem spurt var
hversu miklum tollatekjum
rikissjóöurtapaöi vegna þeirrar
embættismannaákvörðunar aö
hækka gjöld af vélsleöum inn-
heimtum hjá tollstjóra um
helming.
Honum er lika vorkunn aö
verja sllka ákvöröun, þvi á þvi
timabili hefur innflutningur lik-
lega dottiö úr ca. 200 sleöum I
ca. 27 sleöa og rikissjóöur tapaö
stórfé.
En þaö eru fleiri sem tapa,
stórfjöldi sportmanna tapar,
sem ef til vUl gerir ekki til, en
fyrir bændur er þetta alvarlegt
áfall, þar sem i mörgum sveit-
um er þetta eina samgöngutæk-
iö sem til er yfir vetrarmánuö-
ina og þaö er ábyrgöarhluti aö
spenna svo upp opinber gjöld á
þessu bráönauösynlega tæki aö
bændur geti ekki keypt.
Hún ristir ekki alltaf djúpt
umhyggjan fyrir velferð bænd-
anna hjá embættismönnunum.
En þaö er lika ein önnur
alvarleg hliö á þessu máli og
þaö er aö menn láta gömlu sleö-
ana ganga alltof lengi, þegar
þetta er oröiö svona dýrt og ef
sleöarnir bila undir erfiðum
kringumstæöum á háfjöllum og
slys veröur, hvers er þá ábyrgö-
in?
Blaðburðar-
fólk óskast
Tjarnargata
Aðalstrœti
Ford Cortina
Ford Cortina árgerð 1977 er til sýnis dag-
lega í sýningarsal okkar að Skeifunni 17
Komið og kynnist nýju Cortinunni
Ford í fararbroddi
JHARSKE
ISKLJLAGÖTU 54
OPIÐ Á LAUGARDÖGUM
HlVERGI BETRI BÍLASTÆÐI
| HERRASNYRTIVÖRUR í ÚRVALI
SÍMI 2 81 41 R MELSTEÐ
FÞ SVEINN EGILSSON HF
FORD HUSINU SKEIFUNNi 1 7 SIMI 85100
AUGLYSINGASIMAR VISIS:
86611 OG 11660
NÝIR & SÓLAÐIR
snjóhjólbarðar
_______
NITTCJ umboðið hf. Brautarholti 16 s.15485
----------
HJÓLBARÐAÞJÓNUSTAN
Laugaveg 178 s. 35260
GÚMBARÐINN
Brautarholti 10 s.17984
HJÓLBARÐAVIÐGERÐIN MÚLA
VSuðurlandsbraut s.32960
HJÓLBARÐAVIÐGERÐ
VESTURBÆJAR
VNesveg s. 23120