Vísir - 16.03.1977, Blaðsíða 9
vx
<1
Miövikudagur 16. mars 1977
9
Heilbrigðiseftirlitið
ekki verið dragbítur
„Heilbrigöisyfirvöld hafa ætið
gert allt sem í þeirra valdi hefur
stabiö til aö fá fram bætta
vinnuaöstööu og heilbrigöis-
eftirlit viö álveriö i Straumsvfk
og mótmæla alfariö fullyröing-
um um aö þau hafi verib „drag-
bitar á þvi sem þurft hefur aö
bæta i Straumsvik”, sem
ábyrgöarlausum og órökstudd-
um og ekki til þess föllnum aö
bæta samvinnu þeirra aðila sem
þessi mál varöa”.
Þannig er komist aö oröi i
fréttatilky nningu sem
Heilbrigðiseftirlit rikisins hefur
sent frá sér. Er þar meöal ann-
ars vakin athygli á 38. grein 4 i
heilbrigðisreglugerð fyrir
lsland, þar sem segir.
„Sérstakur fulltrúi verkafólks
, „umsjónarmaður vinnustaða”
eöa varamaöur hans tilnefndur
af fulltrúar. eða fjórðungs-
sambandi skal eiga þess kost að
sitja heilbrigðisnefndarfundi
með málfrelsi og tillögurétti.
Þar sem ekki starfa sérstakir
heilbrigðisfulltrúar skal
„umsjónarmaður vinnustaða” i
heilbrigðisnefnd hafa með
höndum eftirlit vinnustaða
undir yfirumsjón héraðslæknis.
Jafnan skal hann hafa samráð
við trúnaðarmann verkamanna
um allt sem að bættum aðbún-
aði og hollustu lýtur og gefa
honum kost á að fylgjast með
þvi hvað umbótum liður.”
Ennfremur segir I fréttinni.
„Heilbrigöiseftirliti rikisins er
ekki kunnugt um að fyrrnefnd
launþega sambönd hafi notfært
sér þessi réttindi sin til þess að
hafa áhrif á og fylgjast með
framkvæmd heilbrigðis*ag holl-
ustumála við álverið i Straums-
vik.”
Frétt sem birtist um þessi
mál i Visi siðast liðinn mánudag
um þessi efni var á misskilningi
byggð að hluta og eru viðkom-
andi beönir velvirðingar á þvi.
Þær sem útskrifuðust:
Aftari röö frá vinstri: Ingigeröur Marfa Jóhannsdóttir, Elsa Zim-
sen, Margrét Jónsdóttir, Birna Jóhannsdóttir, Sigurbjörg Jónsdótt-
ir, Hallfriöur Guömundsdóttir, Kristjana Aöalsteinsdóttir, Lára
Erlingsdóttir, Guölaug Eiiasdóttir, Kolbrún Magnúsdóttir, Edda
Lóa Skúladóttir, Steinunn Stephensen Bjarndis Markúsdóttir, Asdls
Magnúsdóttir, Elln Þrúöur Theódórsd.
Fremri röö frá vinstri: Fanný Guöjónsdóttir, Halldóra Teitsdóttir,
Marla Jörgensen, Hafrún Kristjónsdóttir, Axel Sigurösson skóla-
stjóri, Ingibjörg Guöjónsdóttir, Ingibjörg Jónsdóttir, Guörlöur
Friöriksdóttir og Dagbjört Þóröardóttir. (Ljósmyndastofa Gunnars
Ingimarssonar)
Fjölgun í félagi
lyfjatœkna
Lyfjatækniskóli tslands út-
skrifaði fyrir skömmu 23 nýja
lyfjatækna. Skólanum er ætlaö
þaö hlutverk aö tæknimennta
aöstoöarfólk vib lyfjagerö og
lyfjaafgreiöslu.
Námið tekur þrjú ár og er
bæði verklegtog bóklegt. Skóla-
stjóri er Axel Sigurðsson lyfja-
fræðingur.
Lyfjatæknar stofnuöu með sér
félag á siöasta ári og bera nú
merki viö störf sin sem er gyllt
letur á bláum grunni.
—SG
Fyrirlestur um
dularsálfrœði
„Dularsálfræði sem vís-
indagrein” heitir fyrirlestur,
sem prófessor'Martin Johnson
frá háskólanum I Utrecht I
Hollandi flytur kl. 20.30 i kvöld
I Háskóla Islands. Þar mun
prófessorinn fjalla um árang-
ur dulsálfræöilegra rann-
sókna, rannsóknaraðferða og
gagnrýni.
Fyrirlesturinn, sem haldinn
er I boöi Félagsvisindadeildar
Háskóla íslands, verður
fluttur á ensku I stofu 101 I
Lögbergi, húsi lagadeildar, og
er öllum heimill aögangur.
—ESJ
VERÐLAUNAHAFI I
NORRÆNA HÚSINU
Norski heimspekingurinn varð hann prófessor við háskól-
Arne Næss, sem fengiö hefur
Sonning-verölaunin I ár, heldur
fyririestur I kvöld kl. 20.30, I
samkomusal Norræna hússins I
Reykjavlk og kallast fyrirlest-
urinn: „Sammenheng mellom
holdningen til natur, dyr og
kvinnen”. Næstkomandi þriöju-
dag kl. 17.15 heldur hann svo
annan fyrirlestur, en þá I
Háskóla islands um vistfræö-
ilegt efni.
Arne Næss, sem mun taka við
Sonning-verðlaununum i
Kaupmannahafnarháskóla 19.
april næstkomandi, er einn
þekktasti heimspekingur og
vistfræðingur Norðurlanda.
Hann fæddist 1912, var magister
21 árs og varöi doktorsritgerð
sina þremur árum siöar. 1939
ann I Oslo og gegndi þvi starfi til
ársins 1969 aö hann sagöi þvi
lausu til að geta betur sinnt
ýmsum menningarlegum og
vísindalegum störfum.
„Arne Næss skipaði snemma
öruggan sess sem einn frumleg-
asti hugsuður Norðurlanda. I
heimspeki sinni er hann enginn
kerfissmiöur i hefðbundinni
merkingu þess orös, en leggur
mikla áhersiu á raunvisindi,
sem hann álitur vera*
heimspekinni nauösynlég laúsn
heimspekilegra vandamála.
Hann hefur gert heimspeki-
sögulegar athuganir á verkum
bæði eldri heimspekinga,
einkum Spinoza, sem og yngri,
Heidegger, Wittgenstein og
Sarte”, segir I tilkynningu frá
Norræna húsinu. —ESJ.
Spurningum
svarað um
pilluna og
lykkjuna
Landlæknisembættiö hefur
gefiö út tvö smárit meö
spurningum og svörum um
pilluna og lykkjuna. Þetta eru
fyrstu fræösluritin, sem gefin
eru út samkvæmt lögum nr.
25/1975, þar sem landlækni er
falin yfirumsjón meö fræöslu
og ráögjöf varöandi kynllf og
barneignir, fóstureyöingar og
ófrjósemisaögeröir.
Bæklingar þessir hafa veriö
sendir til heilsugæslu- og
heilsuverndarstöðva sem hafa
eftirlit með vanfærum konum
og sjá um fræðslu ungra
stúlkna. Auk þess mun
menntamálaráöuneytiö I sam-
ráði við skólayfirlækni dreifa
þeim I skólana.
Fræðsluritin voru unnin I
samvinnu við Sigurö S.
Magnússon prófessor sem
staðfæröi ritin. t þeim er að
finna svör við öllum helstu
spurningum sem vakna I sam-
bandi við notkun á þessum
tveim tegundum getnaöar-
varna.
Aö sögn landlæknis er von á
fleiri sllkum ritum á næstunni.
—SJ
LAUNAFÓLK SÉ Á VERÐI
A aöalfundi Félags grafiskra
teiknara fyrir stuttu var lýst yf-
ir andstööu viö framkomnar til-
lögur féiagsmálaráöherra um
breytingar á gildandi vinnulög-
gjöf. Hvetur fundurinn alla
launþega til aö vera vel á veröi I
þessu máli og ljá ekki máls á
auknum afskiptum rikisvalds-
ins af samningamálum laun-
þega. Samþykkt var aö segja
upp núgiidandi samningum.
Ný stjórn var kosin og er
Hjálmtýr Heiödal formaöur
hennar. —SG
Nauðungaruppboð
sem auglýst var 193., 95., og 96. tbl. Lögbirtingablaös 1976
á Bræöraborgarstlg 38, þingl. eign Karls Helga Glslasonar
fer fram eftir kröfu Gjaldheimtunnar I Reykjavlk á
eigninni sjálfri föstudag 18. marz 1977 ki. 15.00.
Borgarfógetaembættiö I Reykjavlk.
Nauðungaruppboð
sem augiýst var í 93., 95, og 96. tbl. Lögbirtingablaös 1976 á
hluta IFerjubakka 10, talinnieign Arna Theodórssonar fer
fram eftir kröfu Gjaldheimtunnar I Reykjavlk, Jóns
Ingólfssonar hdl. og Vilhjálms Arnasonar hri. á eignini
sjálfri föstudag 18. marz 1977 ki. 16.00.
Borgarfógetaembættiö I Reykjavlk
Nauðungaruppboð
sem augiýst var 193., 95. og 96. tbl. Lögbirtingablaös 1976 á
Bjarmalandi 8, þingl. eign Þóröar Kristjánssonar fer
fram eftir kröfu Benedikts Siguröss. hdl. og Hákonar
H. Kristjónssonar hdl. á eigninni sjálfri föstudag 18. marz
1977 kl. 14.00.
Borgarfógetaembættiö I Reykjvlk
Nauðungaruppboð
sem auglýst var 193., 95. og 96. tbl. Lögbirtingablaös 1976 á
hluta I Asparfelli 10, talinni eign Siguröar K. Sigurössonar
fer frem eftir kröfu Gjaldheimtunnar I Reykjavlk á
eigninni sjálfri föstudag 18. marz 1977 kl. 13.30.
Borgarfógetaembættiö I Reykjavik
Nauðungaruppboð
sem auglýst var i 66., 67. og 69. tbi. Lögbirtingablaös 1969 á
Skeifunni 8, þingl. eign Birgis Agústssonar fer fram eftir
kröfu Gjaldheimtunnar I Reykjavfk á eigninni sjálfri
föstudag 18. marz 1977 kl. 11.00.
Borgarfógetaembættiö I Reykjavlk. »
Pyi*stui’ meö
fréttimar
vism