Tíminn - 10.07.1968, Blaðsíða 14

Tíminn - 10.07.1968, Blaðsíða 14
14 TIMINN fsland vann Ira Og Skota EJ-Rvík, þriðjudag. — fsienzka I og sigraði með 74 stigum gegn GO. landsliðið í sundi sigraði írska Átta íslandsmet voru sett í keppn landsliðið í ^elfast fyrir helgina unum. Nánari fregnir hafa ekki með 115 stigum gegn 104. Síðan borizt, enda sæsímastrengirnir keppti það við Skota í Glasgow, slitnir. ÖKUMENN! Látið stilla * tíma. Hjclastillingar Mótorstillingar Ljósastillingar Fljót og örugg h‘ ~»usta. BÍLASKOÐUN & STILLING S’ <götu 32 Slmi 13-100 Bændur Erum með kaupendur á biðlista. Vantar dráttarvéi- ar, blásara og önnur land- búnaðartæki. Bíla- og búvélasalan v/Miklatorg. Sími 23136 Heimasími 24109. ÞAKKARAVÖRP Hjartans þakkir til allra, sem glöddu okkur með heim- sóknum, gjöfum og skeytum á gullbrúðkaupsdegi okk- ar 29. júní s. 1. Guð blessi ykkur öll, Guðlaug Þorsteinsdóttir, Sigurður Bjarnason, Reykholti, Fáskrúðsfirði. Útför eiginmanns míns, föSur og tengdaföSur, Guðjóns J. Jónssonar, Jaðarsbraut 39, Akranesi, fer fram fimmtudaginn 11. júlí kl. 2 frá Akraneskirkju. beim, sem vildu minnast hans er vinsamlega bent á sjúkrahús Akraness. Anna Björnsdóttir, börn og tengdabörn. Eisku litli drengurinn okkar, Þorlákur sem lézt af slysförum 4. júlí s. I. verSur jarSsunginn frá Fossvogs- klrkju, flmmtudaginn 11. júlí kl. 10.30 f. h. Svala VeturliSadóttir, Richard Þorláksson. MóSir okkar, Guðrún Þorsteinsdóttir frá BergsstöSum f verSur jarSsett aS Hruna 12. júlí kl. 2. KveSjuathöfn verSur í Dómkirkjunni sama dag kl. 9.30. BílferS verSur aS lokinni kveSju- athöfn. Börn hinnar látnu. Elskuleg eiginkona mín, Guðrún Ragnheiður Jónsdóttir frá ReykjahlíS, lézt aS heimili slnur7. júli s. I. F. h. aðstandenda Gestur Guðmundsson. BARNALEIKTÆKl ★ ÍÞRÓTT ATÆKI Vélaverkstæði BERNHARÐS HANNESS., Suðurlandsbraut 12. Sími 35810. Auglýsið í Tímanum RAFGEYMAR ENSKIR — úrvals tegund LONDON — BATTERY fvrirliggiandi Gott verð Lárus Ingimarsson, heildv. Vitastíg 8 a. Sími 16205 SÍLDVEIÐAR Framhaid aí bls^ 1. ið þau bera. Svo að hér ber allt að sama brunni, það er helzt von um að stóru síld- veiöiskipi.n geti borið sig. Þá kemur líka til greina, að nú er mjög góð togveiði fyrir norðan land og undan Jökli. Einnig er fjöldi báta á línuveiðum við Grænlandi Á meðan svo er er þess ekki að vænta, að útgerðarmenn og skipstjórar fari að tefla á tví- sýnu með því að fara á síldveiðar í Norðurhafi, og það allt norður og austur að Bjarnarey. Mjög mik il vinna er nú og hefur verið und- anfarið í öllum frystihúsum á Norðurlandi og Vestfjörðum. Sum ir þakka hafísnum, sem lá fyrir öllu Norðurlandi fram á sumar þessa veiðisæld, en togveiðibátar fyrir norðan hafa ekki fengið jafn mikinn afla í fjölmörg ár. Samt segja sjómenn, að þeir á minni bátunum fiski lítið magn miðað við togarana, sem eru á veiðum fyrir Norðurlandi. Það er aðal- lega þorskur, sem þarna fiskast og er hann smár, en ekki slæmur til frystingar. Togbátar frá Snæfellsnes- og! Faxaflóahöfnum eru margir á veið I um undir Jökli og fiska vel. Hins | vegar er afli togbáta við suður-1 ströndina lélegur og humarveiði j með mimista móti. Það er álit fiskifræðinga, að I síldin sem nú er í Norðurhafi, j gangi nær íslandi í haust, eins og undanfarin ár. Þegar þar að kem- ur fara minni síldveiðiskipin að halda á síld, svo að áður en síldar- vertíð lýkur næsta vetur er ekki ólíklegt að álíka mörg íslenzk skip hafi verið á síldveiðum einhvern tíma vertíðarinnai og í fyrra. En í fyrra stunduðu nálægt 250 ís- lenzk skip síldveiðar. Nokkur skip munu í sumar salta um borð. Sækja barf um leyfi til Síldarút- vegsnefndar til að fá slík söltun- arleyfi og virtust fáir hafa haft áhuga fram eftir sumri, en síðustu dagana hafa æ fleiri útgerðarmenn sótt um leyfi til að salta , um MIÐVIKUDAGUR 10. júlí 1968 borð. Ekki er að búast við að mikið magn verði saltað á þennan hátt, miðað við heildaraflamagn skipanna, en eitthvað hlýtur það að verða. Þá verður forvitnilegt að fylgjast með hvernig útkoman verður hjá Valtý Þorsteinssyni og síldarstöð hans í Norðurhafi. Ef sú tilraun gefst vel, má telja full- víst, að fleiri aðilar taki upp sama hátt og leigi eða kaupi skip, sem útbúin verða eins og fullkomnar söltunarstöðvar og léti þau fylgja síldarflotanum eftir. JOJHNSON oq THIEU Framhald af bls. 1. Saigon gætir nú sífellt meiri óvissu um stefnu Bandaríkja- manna í Víetnam. Margir suður- víetnamskir stjórnmálamenn hafa látið í Ijós áhyggjur um það í einkaviðtölum, að Bandaríkja- menn séu jafnvel farnir að velta því fyrir sér, hvort ekki væri ráðlegast að kalla herstyrk sinn heim frá Víetnam. í skýrslu, sem gefin var út af skrifstofu Thieus, segir, að vegna fundarins við Johnson neyðist for setinn til þess að vera á burtu úr landi sínu a. m. k. hálfan mánuð, þar eð gert er ráð fyrir að fundur- inn standi í nokkra daga. Þetta sé mjög bagalegt, þar eð allt bendi nú til þess að Víetcongmenn séu nú að undirbúa enn eina stór- sóknina á Saigon. Hins vegar væru mörg mál, sem forsetarnir þyrftu að ræða og þyldu enga bið, t. d. leiðir til friðar og sameiginlegt varnarátak. Liðsflutningar Víetcongmanna að undanförnu og staðsetning her- virkja í grennd við Saigon hafa vakið ótta meðal Saigonbúa um yfirvofandi stóráhlaup á borgina. Talið er, að á fundi forsetanna muni Thieu fara fram á meiri að- stoð frá USA, t. d; meiri vopna- sendingar, en einnig muni hann reyna að fullvissa sig um framtíð- arstefnu Bandaríkjamanna í Víet- nam. VEGGIR SPRINGA Framhald at bls 16 Blaðamaður innti húsfreyij- una á efstu bæðinni eftir því hvernig þetta hefði borið til. — Við erum orðin ýmsu vön hérna í hverfinu og kippum okkur ekki upp við stöðugan hávaða, upprifnar götur og smá sprengingar, þótt þetta sé allt afskaplega hvimleitt ti’l lengd- ar. Við vissum.að verið var að undirbúa spreningu um kvöld matinn í gærkvöldi beint fyr ir fratnan húsið, en bjuggumst ekki við neinu sérstöku. Svo kl. 7,30 kom þessi líka óhugn anlega sprenging, svo að allt húsið lék á reiðiskjálfi eins og í jarðskjálfta. — Þetta er nú svo nýskeð, að við höfum litið atíhugað, hverjir séu bótaskyldir fyrir þetta. Við erum nýflutt inn í húsið, svo að þetta er ekki glæsileg byrjun. Nú erum við hræddust um að grunnur hússins sé líka sprunginn og skemmdur, þar sem undir göt- unni og húsinu er sama klöpp- in. Sé svo, hefur hér orðið til- finnanlegt tjón. Maður frá verktökunum lofaði að koma hingað í dag til þess að líta á Skemmdirnar. Blaðamaður átti tal við nokkrar fleiri húsmæður þarna i Efsta sundinu í dag og voru þær á einu máli um að lýsa óánægju sinni yf ir þessum framkvæmdum, sem þeim þótti vanskipulagðar og framkvæmdar af lítilli fyrir- hyggju. t allt sumar hefðu göt- úrnar Skipasund, Sæviðarsund, Drekavogur og Efstasund verið meira eða minna sundurtættar. Oft hefði verið illmögulegt að komast heim að húsunum og verk takar virzt hafa takm’arkaðan á- huga á, að koma fyrir góðum göngupöllum eða stigum við hús. Göturnar hafa 'líka iðulega verið stórhættulegar börnum, því sums staðar við lóðarhrúnir tók við allt upp í tveggja metra bakki og oft er drulla og leðja neðst í skurðun um. Þykir íbúum hverfisins ekki hafa verið gætt nógu mi'killa ör- yggisnáðstafana í þessu samibandi. Iíið sífellda ónæði, sem stafar af þessum framkv'æmdum, ef líka farið „að taka á taugarnar“ enda eðlilegt, því að dagufinn hjó íbú- um í þessum hluta Kleippsholtsins hefst oftast með sprengingum og vinnuvélahávaða sem stendur svo langt fram á kvöld. Ein húismæðranna, sem hlaða- maður átti tal við sagði: „Við eig um heimtingu á því að við spreng ingarnar sé gætt f.yllstu varúðar og aðeins sérfróðir tmenn látnir annast þær, svo maður geti verið nokkurn veginn öruggur fyrir því, að húsin verði ekki sprengt ofan af manni einlhvern daginn." Þykir fólki undarlegt að ekki skuli vera reynt að ta’ka fyrir eina götu í senn og toliára h-ana til þess að fyrra óíþægind- um og hœttum. Verktakar eru greinilega á annarri skoðun og virðast þeir telja heppilegra að halda mörgum götum í einni og sömu byggðartprfunni meira og minna sundurrifnum allt sumarið. Leitað var til skrifstofu borgar verkfræðings um upplýsingar við víkjandi þessu miáli og þar var Olafur Guðmundsson fyrir svör- um Sagði Ólafur, að miaflibikunar undirtoúningur nokkurra gatna í Kleppsholtinu hefði verið boðinn út af Reykjavíkurborg og hefðu fyrirtæ’kin Loftorka s.f. og Hivesta h. f. hreppt verkið. Borgarverk- fræðingur sæi aðeins um eftirlit með þessum framkvæmdum, en að öðru l’eyti eru verktakar ábyrgir fyrir þeim og bótaskyldir fyrir allt það tjón, sem þeir kunna að að valda. Ólafur sagði, að verk- takar þessir hefðu á sínum snær upi sénþjiálifaða sprengingarmenn, sem hefðu til þess réttindi að handfjalla sprengiefni. Aðspurður sagði Ólaifur, að verktakar teldu það hyggilegra að haf’a margar götur í takinu, þar eð þá nýttist vélaraflið betur. Hins vegar vœru ákvæði í úttooðslýsingunni um á hvað st’óru svæði þeir mœttu vinna í einu og hefðu þeir nokk urnveginn fylgt því. Verkinu á samkvæmt samningi að vera lok ið fyrir haustið og þess vegna vildu verktakar nota hið stutta sumar okkar til hins ýtrasta. Verk ið mun að sögn Ólafs vera nokkuð á eftir áætlun og er það ástæðan fyrir hinni miklu kvöldvinnu, sem íbúarnir í „Sundunum“ eru orðnir svo þreiyttir á. Líklegt er talið að mistökin sem urðu við sprenginguna í gær hafi verið þau, að sprengjumennirnir hafi oifreiknað hörku klapparinnar og notað of mikið af sprengiefni. í Þ R Ó T T I R Framhald af bls. 13. landsliðið mátti þakka fyrir að sigra ísland 2:1 eftir að ísland hafði haft yfir um tíma. Það sama skeði í næsta móti. Þá tapaði fs- land fyrir Pólverjum í fyrsta leik 5:0, en gerði svo jafntefli við Svía í næsta leik á eftir, 0:0. Og í mótinu í fyrra tapaði fsland fyrir Svíum í fyrsta leik 10:0. Síð an fyrir Pólverjum 7:1, en tapaði einungis 3:2 fyrir Norðmönnum eftir framlengdan leik. eins og áður hefur komið fram. Þetta bendir til þess, að ísl. unglingalandsliðin hafi litla reynslu, en, þeim vaxi ásmegin. Vonandi skeður það sama í kvöld. Þess má geta, að Guðjón Finn- bogason frá Akranesi á að dæma leikinn.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.