Tíminn - 30.07.1968, Page 13
ÞRBMIjBAGUR 30. Júlí 1968.
ÍÞRÓTTIR
TIMINN
ÍÞRÓTTIR
13
Frá leik Fram og Keflavíkur
urmarkinu.
í gærkvöldi. Fram sækir að Keflavik-
(Tímamynd: Róbert).
Valsmenn skoruðu
úr 2 vítaspyrnum
— og náðu jafntefli á Akureyri, 2:2 í spennandi leik.
ÁI—Akureyri. — Tvisvar sinn
um benti dómarinn, Baldur Þórð-
arson, á vitaspyrnupunktinn hjá
Akureyringum, í leik þeirra gegn
Val á sunnudaginn. Og í bæði
skiptin skoruðu Valsmenn og náðu
þar mcð jafntefli, eai leiknum
lauk 2:3. Þrátt fyrir þessi úrslit,
eru Akureyringar enn í efsta sæti
1. deildar, með 10 stig.
Auðvitað þótti heimamönfnum
súrt í broti að fá tvær vítaspyrn-
ur á sig i sama leiknum, en í báð-
um tilvikum hafði Baldur Þórð-
arson á réttu að standa, þó að
mér hafi fundizt fynri vítaspyrnu-
dómurinn full strangur. Ævar
Jónsson, bakvörður, snerti knött-
inn með hendi út við vitateigis-
línu. Knötturinn var á ieið frá
marki og var Ævar á auðum sjó,
engin hætta. Síðari vítaspyrnan
var óumflýjanieg, þar sem Gunn-
ar Austfjörð, beinlínis forðaðl
marki með þvi að fara í veg
fyrir knöttinn, þegar skotið var
að marki, og snerti hann með
hendi. Reynir Jónsson skoraði
örugglega úr báðum spymunum,
þeirri síðari á 21. mín. síðari hálf-
leiks.
Akureyringar, sem mættu til
leiks án nokkurra sinna beztu
manna, en Skúli Ág., Jón Stefáns
son og Guðni Jónsson voru allir
forfallaðir, skoruðu bæði mörk
sín í fyrri hálfleik. Fyrra markið
skoraði Kári Árnason á 15. mín.
FRAM 12. SÆTIEFTIR
SIGUR GEGN KEFLAVlK
Fram jafnaði úr vafasamri vítaspyrnu og vann 2:1
Alf-Reykjavík. — Fram sigraði
Keflavík með 2:1 í slökum leik á
Laugardalsvellinum x gærkvöldi.
Þar með hefur Fram náð 2. sæti
í deildinni á nýjan Ieik, hefur hlot-
ið 9 stig. Það gekk á ýmsu í leikn
um í gærkvöldi. Keflvíkingar urðu
fyrri til að skora, en Fram jafn-
aði úr vítaspyrnu 3 mínútum síð-
ar, vafasamri vítaspyrnu, svo að
ekki sé sterkara að orði kveðið.
Knötturinn hrökk í höndina á
Karli Hermannssyni, þar sem hann
stóð á vítateigslínu. Strangt til
tekið mátti Magnús Pétursson
dæma vitaspyrnu, en það er einu
sinni hlutverk dómarans að vega
og meta aðstæður. Þarna hefðu
fáir dæmt víti.
Hvað um það. Helgi Númason
jafnaði fyrir Fram úr vítaspyrn-
unni, en í fyrstu hálfvarði Skúli,
markvörður Keflavíkur, skot hans.
Knötturinn hrökk út til Helga aft
ur og nú tókst honum að skora.
En hafi Magnús gefið Fram
vítaspyrnu í fyrri hálfleik, tók
hann aðra af þeim í síðari hálf-
leik, þegar Einari Árnasyni var
hrint illþyrmilega, þar sem hann
var í gýðu færi. Það brot færði
Magnús út fyrir vítateig.
Keflvíkingar voru ívið sterkari
í fyrri hálfleik, og skoraði Jón
Ólafur eina mark þeirra á 31. mín.
Hins vegar voru Framarar mun
sterkari í síðari hálfleik og sóttu
nær látlaust að Keflavíkurmark-
inu. Skall þá hurð oft nærri hæl-
um og komst Ágúst Guðmundsson,
miðherji Fram, hvað eftir annað
I dauðafæri, en brást bogalistin
jafn oft.
Það var ekki fyrr en á 34. mín.
að Fram skoraði sigurmarkið. Enn
var Helgi Númason á ferð. Hann
skoraði nær viðstöðulaust eftir
hornspyrnu frá vinstri.
Allra síðustu mínúturnar sóttu
Keflvíkingar fast og litlu munaði,
að einn af varnarmönnum Fram
skoraði sjálfsmark. Þorbergi Atla-
syni tókst á síðustu stundu að
bægja hættunni frá.
Slakur leikur. Það er ekki hægt
að gefa aðra einkunn. Keflvíking-
ar voru öllu slakari en Fram —
og enn jókst fallhætta þeirra. Karl
Hermannsson var eini leikmaður
þeirra, sem sýndi jákvæð tilþrif.
Fram-liðið var heldur ekki sann
færandi. Að vísu lagaðist liðið
mikið, þegar Ásgeir Elíasson kom
inn á sem tengiliður, en hann er
mjög leikinn og útsjónarsamur.
Baldur Scheving, Helgi Númason
og Sigurður Friðriksson sýndu all
ir þokkalegan leik
Magnús Pétursson dæmi leikinn
og gerði það yfirleitt vel, nema
hvað telja verður, að honum hafi
orðið á í messunni í sambandi við
vítaspyrnuna.
Akranes í úrslit-
um í 2. delldinni
— en mátti þakka fyrir að vinna Selfoss 4:3 á sunnudaginn.
S. I. sunnudag léku Skagamenn
og Selfyssingar síðari leik sinn í
2. deild og fór leikurinn fram á
Selfossi. Það er skemmst frá því
að segja, að leikurinn var mjög
jafn og spennandi og fengu Skaga-
menn meiri og harðari mótspyrnu
en þeir höfðu átt von á. Lauk
leiknum með sigri þeirra, 4:3.
Með þessum úrslitum hafa Skaga-
menn sigrað í riðlinum og eru
komnir í úrslit í 2. deild.
í fyrri hálfleik sóttu Skagamenn
mun meira og á 20. mínútu skoraði
Hreinn Elliðason. 1:0, eftir að hafa
fylgt fast eftir skoti frá Matthíasi
Hallgrímssyni, sem markvörður
Selfyssinga náði ekki að halda
Á 30. mínútu sækja Skagamenn
upp hægra megin og Matthías gef
ur vel fyrir markið Þar var fyrir
hinn markheppni Hreinn Elliða-
son, sem skoraði óverjandi með
skalla, 2:0. Selfyssingar gerðu
áhlaup við og við. en án árangurs.
Urðu mörkin í fyrri hálfleik ekki
fleiri, þrátt fyrir góð tilþrif Skaga
manna, en þess má geta, að vörn
Selfyssinga þéttist eftir því sem
lengra leið á leikinn.
Fyrstu mínúturnar í síðari hálf-
leik urðu Selfyssingum örlagarík-
ar, því að á 2. minútu var dæmd
réttilega á þá vítaspyrna, sem
Guðjón Guðmundsson skoraði úr
3:0.
Virtist ekki blása byrlega fyrir
heimaliðið. en nokkrum mínútum
síðar skoruðu Selfyssingar þó sitt
fyrsta mark. Vörnin ..hreinsaði"
frá markinu og baut knötturinn
inn fyrir vörn Akraness. Tryggvi
Gunnarsson kom aðvífandi og náði
að spyrna að marki. Einar Guð-
leifsson, markvörður Akraness,
hálfvarði skotið, en missti knött-
inn fyrir fætur Þorvarðs Júlíusson-
ar, sem skoraði 3:1.
Skagamenn voru ekki lengi að
svara fyrir sig, þvi að á 8. mínútu
hófu þeir mikla skyndisókn, sem
lauk með því, að Matthías skoraði
með föstu lágskoti, 4:1.
Og þegar hér var komið, fóru
menn að tala um tölur eins og
8:1, sem hafa verið í miklu uppá
haldi hjá Skagamönnum í síðustu
leikjum, en ekkert slíkt átti eftir
að ske, bvert á móti Leikurinn
tók aljt aðra stefnu og er vart
hægt að segja. að Skagamenn hafi
komizt fram fyrir miðju það sem
eftir var leiksins. Sóttu Selfyss-
ingar nær látlaust og höfðu öll
tök á miðjunm Á 20 mín var
dæmd vítaspyrna á Akrancs, ,sem
Sigurður Eiríksson skoraði örugg-
lega úr, 4:2.
Færðist nú fjör í leikinn og var
alltaf stanzlaus pressa á mark
Akraness, t. d. komst Tryggvi
einn inn fyrir og skaut í stöng. Og
Sverrir Einarsson vár í góðu færi,
þegar hann komst framhjá mark-
verði og ætlaði síðan að lyfta
knettinum yfir varnarmann, en
knötturinn fór í slá.
Á 32. mínútu skoraði Sverrir 3.
mark Selfoss eftir góðan undirbún
ing Jakobs og Þorvarðar. Staðan
4:3 og spennan á hápunkti. Var
Skagamönnum farið að hitna i
hamsi, enda allir komnir í vörn.
Á 40. mín. var einum Skagamanni
vísað af leikvelli fyrir gróft brot.
Hófst nú lokasóknin að marki
Akraness og skail hurð oft nærri
hælum, en ekki vildi knötturinn
í netið.
Segja má, að Akranes hafi verið
heppið að hljóta bæði stigin. Sel-
fyssingar voru óheppnir að hljóta
ekki annað stigið eða jafnvel
bæði. Liðið sýndi nú sinn bezta
leik á sumrinu og var barátta allra
liðsmanna aðdáunarverð
Akranes-liðið, sem nú er komið
í úrslit. lék létta og skemmtilega
knattspyrnu. en átti í erfi.ðleikum
gegn sterkri vörn Selfoss.
Leikrnn dæmdi Ragnar Magnús-
son vel. — BG.
eftir ævintýralegt úthlaup Sigurð
ar Dagssonar. Kári sótti upp
hægra megin og var um það bil
að hrista tvo varnarleikmenn Vals
af sér, þegar Sigurður hljóp úr
markinu. Hefði Sigurður staðið
kyrr, hefði Kári eflaust aldrei
reynt markskot. En þarna reyndl
hann skot að marki og með að-
stoð vindsins hafmaði knötturinn
í netinu. Akureyringar léku und-
an sterkum vindd í fyrri hálfleik
og er vart hægt að segja, að um
gott knattspyrnuveður hafi verið
að ræða. En miðað við það, var
leikurinn góður, einhver sá bezti,
sem sézt hefur hér á Akureyri
í sumar.
Annað mark sitt skoruðu Akur-
eyringar skömmu síðar. Kári lék
upp vinstra megin og gaf fyrir
á Valstein, sem var með á nótun-
um og fylgdi inn, en Valsteinn
skoraði örugglega, 2:0.
Eins og fyrr segir, var leikur-'
inn nobkuð góður. Akureyringar
léku furðu vel miðað við, hve
margir af föstu leikmönnunum
voru forfallaðir. En ungu leik-
mennirnir, sem komu inn á fyrir
þá, stóðu sig vel. Sérstaka athygli
vöktu Eyjólfur Ágústsson — yngri
bróðir Skúla — og Aðalsteinn
Sigurgeirsson. Annars var Kári
Framhald á bls. 14.
STAÐAN
Akureyri 7 3 4 0 12: 5 10
Fram 7 3 3 1 13:10 9
KR 6 3 2 1 16: 8 8
Valur 7 2 3 2 13:11 7
Vestm. 6 2 0 4 8:16 4
Keflavík 7 0 2 5 3:16 2
Bikarkeppnin
Bikarkeppni KSI verður haldið
áfram á Melavellinum í kvöld kl.
20 (ath. breyttan tíma) með leik
Vikings a og Akraness b.
FRI í
Reykjavík
Undanrás fyrir Reykjavík í Bik
arkeppni FRÍ verður á Laugardals
veDinum í Reykjiavik 31. júlí og
l. ágúst n. k. og skulu þátttökutil
kynningar berast til Karls Hólm í
síma 38100.
Fyrri daginn verður keppt í
þessum greinum. Karlar: 200 m.
hlaup, 800 m. hl., 3000 m. hl.,
langstökk, hástökk, kúluvarp spjót
kast 4x100 m. boðhlaup. Konur:
100 m. hl., spjótkast, kúiuvarp, há
stökk, 4x100 m. boðhiaup.
Síðari dagur. Karlar: 110 m.
grindahl., 100 m. hl., 400 m. M.,
1500 m. hl. 5000 m. hl., stangar-
stökk, þrístökk kringlukast,
sleggjukast, 1000 m. boðhlaup.
Konur: 80 m. grindahl., 200
m. hlaup, langstökk. Kringlukast.