Vísir - 19.08.1977, Qupperneq 9
9
Umsjón: Anna Heiður Oddsdóttir
)
„Annað eins fjör hefur ekki
sést síðan á síldarárunum"
— segir Halli um hljómleikaferð Brimklóar um landið
Hljómsveitin Brim-
kló hefur nú i sumaV
þanið sig vitt og breitt
um landið ásamt hin-
um viðkunnu Halla og
Ladda og skemmt fólk-
inu á landsbyggðinni.
Liöiö er nú stattá Noröurlandi
og mun þaö skemmta á Hofsósi i
kvöld, Húsavik annaö kvöld og i
Dynheimum á Akureyri á
sunnudagskvöld. Aö sögn Halla
hefur veriö sett nýtt aösóknar-
met alls staöar þar sem hljóm-
sveitin hefur komiö fram, og á
Austf jöröum ku fjöriö hafa ver-
iö svo mikiö, aö annaö eins haföi
ekki séstsiöan á sildarárunum.
„Fróöir menn segja mér aö
farir þú á ball hjá „Þeim” sé
þaö engu likt þvl aö hljómsveit-
in komist ekki aö allt kvöldiö
fyrir söng i fólkinu, enda kunni,
vilji og viti fólk hvernig eigi aö
syngja lögin meö Brimkló”
sagöi Halli. „Svo er aö sjálf-
sögöu þess aö gæta aö meö i för
eru engir aukvisar og má þar til
dæmis nefna hina hólkvíöfrægu
Valla og Hemma, sem hafa gert
landsmenn ruglaöa meö grini aö
undanförnu”. Hljómleikaferö
Brimklóar lýkur sennilega hér
sunnanlands einhverntima á
næstu vikum, og ef marka má
orö Halla er ástæöa fyrir Sunn-
lendinga aö fava aö hlakka til.
— AHO
i
Hljómleikaferð hljómsveitarinnar Brimkló um landiö hefur liklega ekki fariö fram hjá neinum. Hljóm-
sveitin er nú stödd á Norðurlandi og mun skemmta þar ásamt ýmsum valinkunnum mönnum. — VIsis-
myndir: EGE
Myndir: Einar Gunnar
Laddi bregöur á leik
Hella i Rangárvallasýsiu á fimmtiu ára byggöarafmæli á þessu ári, og veröur ýmisiegt um aö vera um
helgina i tilefni afmælisins.
HELLA HELDUR UPP Á AFMÆLIÐ
Hella i Rangárvalla
sýslu á fimmtíu ára
byggðarafmæli á þessu
ári, og verður ýmislegt
um að vera um þessa
helgi i tilefni afmælisins.
Til sæmis má nefna aö I dag er
haldinn „Dagur iönaöarins” á
Hellu, og veröur meöal annars
Iönkynning i Grunnskóla Hellu'
og fariö i kynnisferöir i fyrirtæki.
Iönkynning veröur opin almenn-
ingi áfram næstu daga, og véröur
þar væntanlega margt fróölegt aö
sjá. Auk Iönkynningar veröa
haldnar alls konar sýningar til aö
minnast afmælisins og gera ser
dagamun.
— AHO
Hollenskur listamaöur, Sef
Peeters, heldur nú sýningu I
Galleri Suöurgötu 7, og stendur
hún til 31. ágúst.
Notar margvísleg
efni við listsköpun
sína
Galleri Suöurgata 7 hefur nú
aö geyma verk eftir hollenskan
listamann Sef Peeters.
Peeters hefur notaö margvis-
leg efni viö listsköpun sina allt
frá teikningu til videotape.AÖ
þessu sinni eru ljósmyndir aöal-
uppistaöan i sýningunni, en ill
mögulegt er aö lýsa henni nokk-
uönánar, enda sjón sögu rikari.
Aö sögn Þórleifs V. Friöriks-
sonar, eins aöstandenda galler-
isins, mun sýningin aö öllum
likindum vekja forvitni gesta.
Hann sagöist aö visu ekki hafa
séö hana sjálfur, en hins vegar
heyrt aö hún væri mjög skraut-
leg og skemmtileg.
Sýning Hollendingsins opnar
klukkan átta i kvöld og stendur
til 31. ágúst. Hún veröur opin
klukkan fjögur til tiu virka daga
en tvö til tiu um helgar.
— AHO