Vísir - 22.08.1977, Blaðsíða 1
„FRYSTIHÚSIN OF MÖRG
ÞEGAR AFLI MINNKAR"
— segir Ólafur B. Ólafsson, framkvœmdastjóri Miðness hf. í Sandgerði
Kynna sér nú
stöðu þeirra er
kvarta mest
„Viö viljum kynna okkur
sem gleggst stööu þeirra, sem
hæst hafa haft”, sagöi Jón
Sigurösson, forstööumaöur
Þjóðhagsstofnunar, I viötali
við Visi i morgun.
Hann sagöi, aö enn i væri
ekkert hægt að fullyröa um,
hvenær athugun þeirri á stööu
og rekstri frystihúsanna, sem
Þjóðhagsstofnun vinnur að,
yrði lokiö.
Hann lagði jafnframt á-
herslu á, aö hér væri i raun um
hluta af regíubundnu starfi
Þjóðhagstofnunar að ræða,
þótt það hefði vakið meiri at-
hygli nú en oftast áður.
ESJ
„Þetta er sjálfsagt allt rétt
hjá Páli en það vantar inn i sög-
una hjá honum með netafiskinn
að þetta er allt saman fiskur
sem fer í salt og frystihúsin ráða
litlu um verðið á honum”, sagði
Ólafur B. ólafsson fram-
kvæmdastjóri Miðness h/f i
Sandgerði um þau ummæli Páls
Andreassonar framkvæmda-
stjóra Meitiisins i Þorlákshöfn
að frystihús á Suðurnesjum yf-
irborgi fisk þar á meðal humar,
með fyrirfram umsamdri
flokkaskiptinu á fiskinum.
ÓÍafur sagði að á humarnum
tiðkuðust allar útgáfur á verði
sem stafaði m .a. af þvi að þegar
aflinn á vertiðinni minnkaði
væri þetta fyrirkomulag einn
fylgifiskurinn, húsin reyndu að
halda sér gangandi.
Aðspurður hvort hluta vand-
ans mætti ekki rekja til þess að
frystihús á Suðurnesjum væru
of mörg, sagði Ólafur að þegar
aflinn drægist saman væri það
vitaskuld afleiðing að frystihús-
in sem byggð væru til að geta
mætt toppunum bæði á vetrar-
og sumarvertíðum ættu i erfið-
leikum þegar aflinn minnkaði.
Frystihúsarekendur á .Suður-
nesjum hefðu haldið fund með
þingmönnum svæðisins i vor og
m.a. komið með þær tillögur að
hluta húsanna yrði lokað á með-
an aflaleysið varir. „Það hefur
ekki staðið á okkur i þeim efn-
um”, sagði Ólafur.
„Auk þess hefur það marg-
komið fram að aflasamsetning-
in er óhagkvæmari hér, og húsin
ná þarafleiðandi ekki sama á-
rangrí.”
Það er aftur á móti ekki hag-
kvæm lausn að láta húsin fara á
hausinn, en við höfum eins og ég
segi komið með tillögur um lok-
un á hluta húsanna meðan þetta
ástand varir”.
Vfsismenn heimsóttu
Vilhjálm Hjálmarsson mennta-
málaráðherra um helgina og
eins og sést á myndinni var
hann ekki i vandræðum með að
bjóða gestunum upp á kaffi þótt
hann sé grasekkjumaður þessa
dagana. Hann heliti að sjálf-
sögðu sjálfur upp á könnuna.
Margt skemmtilegt kemur
fram í viðtali við ráðherrann,
sem birt erá annarri siðu Visis I
dag, meðal annars það, aö kon-
ur i sundlaugunum töldu ófært
að hann kæmi með sundfötin sín
i laugarnar i Sláturfélagspoka,
og til þess kð bæta úr þvi gáfu
þær Vilhjálmi forláta tösku.
NÚ SÉR VIL-
HJÁLMUR SJÁLF-
UR UM KAFFID
Hreinn setti Ækx <
skoskt met
í Edinborg! '11'jyjHK
Hreinn Ilalldórsson setti skoskt met i lóöakasti i Edinborg i gær og varð annar i kúluvarpi eftir mikið sentimetrastrið við Pól- verjann Wladislav Komar. *L $ Í|
Allt um íþróttaviðburði helgarinnar i fjögurra síðna íþróttablaði í dag.
Helmingur landsmanna
hefur komið ó iðn-
kynningarnar á árinu
Meira en hundrað þúsund
manns hafa komið á sýningar og
fundi sem íslensk iðnkynning hef-
ur haldið undanfarið ár, að sögn
Péturs Sveinbjamarsonar, fram-
kvæmdastjóra.
Er þá ótalinn sá fjöldi fólks sem
hefur haft kynni af iðnkynning-
unni i gegnum fjölmiðla. Er þetta
mun meiri þátttaka en forráða-
menn iðnaðarins höfðu þorað að
vona að sögn Péturs.
Þegar iðnkynningunni lýkur
með sýningu i Reykjavik nú í
haust er áætlað að meira en
hundrað og fimmtiu þúsund
manns hafa komið og kynnt sér
islenskan iðnað á sýningum þess-
um og fundum.
Dagur iðnaðarins hefur nú ver-
ið haldinn á Akureyri, Egilsstöð-
um Selfossi, Sauðárkróki,
Borgarnesi, Kópavogi og nú siö-
ast um helgina á Hellu. Er þá að-
eins Reykjavik eftir, og þar fer
fram sýning dagana 23. septem-
ber til 2. október I haust.
Viðtal við Pétur Sveinbjamar-
son um Iðnkynningaráriö er á
tiundu og elleftu siðu Visis i dag.
Ungir sem aldnir hafa skoðað iðnsýningar þær sem haldnar hafa
verið undanfarna mánuði. Þessi mynd er tekin á degi iðnaðarins á
Akureyri, en þar var hann fyrst haldinn. Visismynd: A.H.