Vísir - 22.08.1977, Side 9
Mánudagur 22. ágúst 1977
9
130 manna iðnþing haldið
ó Akureyri nú í vikunni
Iðnaöarmenn vinna ekki eingöngu við uppbyggingu, heldur geta
þeir einnig þurft að taka til hendi niðurrif. Hér er verið að vinna
rikfa mannvirki frá striðsárunum í öskjuhliðinni I Reykjavfk á dög-
unum.
Visismynd: Magnús Hjörleifsson.
Þrltugasta og sjöunda
Iðnþing tslendinga verð-
ur haldið á Akureyri í
þessari viku og hefst það
á fimmtudaginn.
Rétt til setu á þessu þingi eiga
fulltrúar frá félögum og félaga-
samböndum innan Landssam-
bands iðnaðarmanna samtals um
130 fulltrúar, sem skiptast þannig,
að frá Meistarasambandi bygg-
ingamanna eiga rétt til þingsetu
49 fulltrúar frá 14 félögum. Frá
Sambandi málm- og skipasmiðja
18 fulltnlar frá 4 félögum. Frá
rafiðnaöinum 8 fulltrúar frá 2
félögum. Frá húsgagna- og
innréttingaiðnaðinum 7 fulltrúar
frá 2 félögum Frá öðrum iðn-
greinafélögum og fyrirtækjum 26
fulltrúar frá 11 félögum og fyrir-
tækjum. Og frá 7 iðnaðarmanna-
félögum á rétt til þingsetu 21
fulltrúi.
Auk þess eiga rétt á fundarsetu
með tillögurétti og málfrelsi
fulltrúar frá iðnráðum og iðnskól-
um, svo og innlendir og erlendir
gestir, sem sérstaklega hefur
verið boðið til þingsins. Eru þetta
um 30 manns.
Undirbúningur frá þvi I
mars
Mjög hefur verið vandað til alls
undirbúnings þessa þings og má
segja, að sá undirbúningur hafi
staðið frá þvi i mars á þessu'ári en
þá tóku til starfa fimm undirbún-
ingsnefndir Iðnþings. Undirbún-
ingsnefndir þessar hafa fjallaö
um hina ýmsu málaflokka, sem
til umræðu veröa og skilaö til
stjórnar tillögum sinum og drög-
um að ályktunum i hinum ýmsu
málaflokkum. Þessar tillögur
með áorðnum breytingum og lag-
færingum hafa siðan veriö sendar
út til væntanlegra þingfulltrúa til
kynningar. Eru fundargögn mjög
viðamikil, enda tekin til af-
greiðslu um 25 málefni. Má þar
nefna ályktanir um iðnaðarstefnu
og iðnþróun, ýmis aðstöðumál
iðnaðar, s.s. lánamál, tollamál,
skattamál, verölagsmál og taáini-
aðstoð fyrir iðnfyrirtæki og iðn-
meistara.
Iðnlöggjöfin til umræðu
Þá verða til umræðu mála-
flokkar sem Landssamband iðn-
aðarmanna hefur alltaf haft mikil
afskipti af, eins og iðnfræðslumál
og iðnlöggjöfin.en fyrirhugað er
að lög um báöa þessa málaflokka
muni breytast á næstunni.
Ennfremur eru svo á dagskrá
ýmis innri málefni Landssam-
bandsins, s.s. skýrsla fram-
kvæmdastjórnar þess um starf-
sem i tveggja siðustu ára o.fl.
Iðnþingið veröur sett i Borgar-
bióiá Akureyri fimmtudaginn 25.
ágdst kl. 10.30 meðræöu Sigurðar
Kristinssonar, forseta Lands-
sambands iðnaöarmanna. Þvi
-næst munu iönaðarráöherra dr.
Gunnar Thoroddsen og gestir frá
norrænum iðnaðarsamtökum
flytja ávörp.
Að lokinni setningu þingsins
mun Akureyrarbær bjóða
þingfulltrúum og mökum þeirra
til hádegisverðar I Sjálfstæöis-
húsinu á Akureyri og iönaðar-
ráðherra hefur móttöku sama
dag.
Ferðast um Norðurland
Iðnþingið er haldiö I boði
Meistarafélags byggingamanna á
Norðurlandi og er þetta i fjórða
sinn sem Iðnþing er haldið á
Akureyri. Undirbúningur af hálfu
heimamanna hefur að mestu hvilt
á Ingólfi Jðnssyni, formanni
félagsins, og konu hans Huldu
Eggertsdóttur, sem skipulagt
hefur mjög vandaöa dagskrá
fyrir maka þingfulltrúa. Munu
ýmis fyrirtæki á Akureyri og við-
ar á Noröurlandi veröa heimsótt,
bæði af þingfulltrúum og mökum
þeirra. Ennfremur veröur sér-
stök dagskrá fyrir erlenda gesti.
Þingfundir verða haldnir I Iðn-
skóla Akureyrar, en þinginu lýk-
ur með hófi á Hótel KEA laugar-
daginn 27. ágúst.
Allt til skólans
Ritföngin
Þú þarft ekki að leita víðar
EYMUNDSSON
Austurstræti 18 Sími 13135
Námsbækumar