Vísir - 08.10.1977, Síða 23
m
VISIR Laugardagur 8. október 1977
l________________________
23
Hringið í síma 86611 mi
anl3og!5 eða skrifið til Vísis Siðumúla 14/ Reykjavík.
Róttœkan óróður
vegna slysaöldunnar
Disa skrifar:
Mig langar að hvetja fjöl-
miðla og þá sem að umferðar-
málum standa til að hefja nú
sem fyrst róttækan áróður
vegna þeirrar slysaöldu sem
gengið hefur yfir upp á siðkast-
ið.
Þaðer þaðeina sem dugar. Ef
hamrað er nógu mikið á þessu
siast þetta smátt og smátt inn i
fólk og það fer varlegar i um-
ferðinni en ella.
Sjónvarpið hefur mjög mikil
áhrif i þessum efnum á fólk og
liklega er þaö sterkast i slikum
áróðri. Blöðin gégna þarna
ákaflega þýðingarmiklu hlut-
verki lika, ekki sist ef komið er
með sérstaka þætti, eins og Vis-
ir geröi fyrir stuttu. Mætti mjög
gjarnan gera meira af sliku.
Nú fer veður að breytast og
skammdegið nálgast og þvi
hlýtur þetta að vera rétti timinn
fyrir rækilega herferð.
HÍÍ kVfál
Á )
Wi
Smurbrauðstofan
BJaRIMIIMN
Njólsgötu 49 - Simi 15105
Jndarlegt að gœta ekki
fonga á sjúkrahúsum
r /\ 1*0 lll M tt Xll M aft fanpfl vapri vfirlpift #
Verslunarmaður
hringdi:
Mér brá nú heldur þegar ég
las það i frétt i Visi i gær um
strok fangans af sjúkrahúsinu,
að fanga væri yfirleitt ekki gætt
sérstaklega ef þeir þyrftu að
leggjast inn á sjúkrahús.
Þetta þykir mér undarlegt.
Mennirnir hafa brotið lög eftir
sem áður þó þeir leggist inn á
sjúkrahús um skemmri tima.
Þeirra er gætt vel og vandlega
frá þvi þeir eru settir I fangelsi
og eftir að þeir koma þangað
afturúrsjúkrahúsi. En á meðan
dvölinni þar stendur, eru þeir
jafn frjálsir og aðrir sjúklingar.
Það getur varla verið mikið
mál að láta einn mann gæta
fanga sem vegna veikinda verð-
ur að leggjast inn til lækninga.
Ekki get ég imyndað mér það.
&ilfurþúöutt
Brautarholti 6, III h.
Simi 76811
Móttaka á gömlum
munum:
Fimmtudaga kl. 5-7 e.h
Föstudaga kl. 5-7 e
KYNNISFERÐ TIL
EFNAHAGSBANDALAGSINS!
Dagana 19.-21. október nk. efnir Vísir til kynnis-
ferðar fyrir menn úr islensku viðskiptalifi,
stjórnsýslu og aðra áhugamenn til höfuðstöðva
Efnahagsbandalags Evrópu i Brússel.
Samskipti íslendinga við Efnahagsbandalagið og
aðildarlönd þess hafa sivaxandi þýðingu fyrir ís-
lendinga, og við þvi má búast, að þessi samskipti
aukist enn á næstu árum. Á sl. ári fór t.d. yfir 30%
af útflutningi okkar til Efnahagsbandalagsland-
anna, og við fengum vel yfir 40% af innflutningi
okkar frá þessum löndum.
Með kynnisferðinni til skrifstofu Efnahagsbanda-
lagsins i Brússel vill Visir i samvinnu við upplýs-
ingadeild bandalagsins gefa mönnum kost á að
afla sér sem bestrar þekkingar um málefni
bandalagsins og samskipti íslendinga við það.
VISIR
Lagt verður upp í ferðina 19. október, en 20. og 21.
október verða fundir með embættismönnum
Efnahagsbandalagsins. Á fundunum verður m.a.
rætt almennt um Efnahagsbandalagið, samskipti
íslands og Efnahagsbandalagsins, fiskveiðistefn-
una og stefnu bandalagsins i viðskiptamálefnum
og varðandi samkeppnisfrelsi.
Fargjald fyrir ferðina Keflavik — Brússel —
Keflavik er kr. 58.340 + kr. 1.500 i brottfarar-
skatt, og er þá miðað við 8-21 dags fai gjald og, að
farið sé um London. Þátttakendur eru ekki
bundnir við að verða samferða heim, svo að þeir
geta einnig hagnýtt ferðina til annarra erinda er-
lendis. Gisting er ekki innifalin i framangreindu
verði.
Þeir sem hafa áhuga á þátttöku i ferðinni gjöri
svo vel að leita nánari upplýsinga og láta skrá sig
i sima 86611 sem allra fyrst, þvi að takmarka
verður þátttakendafjölda.