Vísir - 11.11.1977, Side 1
Bátur með tveim-
ur mönnum týndur
— mikil leit stendur yfir
Umfangsmikil leit
hefur staðið yfir i nótt
og i morgun að 29 tonna
eikarbáti frá Grundar-
firði. Um borð i bátnum
eru tveir menn. Ekkert
hefur spurst til bátsins
frá þvi i gærkvöldi en
hann var þá á leið til
heimahafnar.
Báturinn, Haraldur
SH 123, hafði talsam-
band við annan bát
laust fyrir klukkan niu i
gærkvöldi og var hann
þá á leið til Grundar-
fjarðar. Hann var þá
staddur sjö milur
norður af öndverðar-
nesi. Var þá allt i lagi
um borð i bátnum. Er
siðast vitað um bátinn
þar.
Veður á þessum
slóðum var norð-norð-
austan 7-8 vindstig
fyrir og um miðnætti. 1
nótt hefur veður gengið
niður og voru 4 vindstig
á Snæfellsnesi i morg-
un og bjart. Leitar-
veður var þvi gott.
Um tuttugu skip og
bátar hafa leitað
Síðustu
fréttir
Þegar Vísir hafði
samband við Slysa-
varnarfélagið skömmu
fyrir hádegi, hafði leit
að bátnum ekki borið
árangur. Leitvar hald-
ið áfram.
stöðugt og einnig
leitarflugvél frá Land-
helgisgæslunni strax i
birtingu. Björgunar-
sveitir frá Grundar-
firði, Ólafsvik og
Hellissandi hafa gengið
fjörur og halda leit
áfram.
—EA
Auknir skjálftar
í Mývatnssveit
Síöan I gærkvöldi hafa komiö
fram talsvert fleiri smáskjálft-
ar á jaröskjáiftamælunum i Mý-
vatnssveit. Skjálftarnir hafa
komið fram sitt á hvaö á
mælunum og er þvi aö sögn
skjálftavaktarinnar f Reynihliö
ekki gott aö staösetja upptök
þeirra.
Flestir skjálftanna komu
fram á Gæsadals- og Reyni-
hliðarmælunum, en einna
minnst hreyfing hefur verið á
Kröflumælunum.
I morgun var enn ekki orðið
ljóst hvaöa þýöingu þessi aukna
skjálftavirkni heföi.
—SJ
Tjörnin er vinsælasta leiksvæði borgarinnar þegar hún er isilögð. Skautar
eru þá óðara dregnir fram og skautaiþróttin sem bæði er holl og skemmti-
leg iðkuð af kappi. (Visism. J.A.)
Ekkert hálfkók
Hörð gagnrýni kemur fram á stjórnarfrumvarp
um Sinfóniuhljómsveit Islands i grein
sem Arnór Hannibalsson skrifar. Frumvarpið
gerir ráð fyrir allt að 65 mönnum i
hljómsveitinni en Arnór segir að þeir þurfi að
vera 76 og hér dugi ekkert hálfkák.
— Sjá bls. 10-11
Konur í pólitík
#/Það vœri aldeilis ágœtt ef konur fœru að
sýna efnahagsmálum meiri áhuga"
segir Aðalheiður Bjarnfreðsdóttir sem skrifar
i dag um prófkjörin og þátttöku
kvenna í þeim.
— Sjá bls. 10
Kjaftásar sem
reisa skýjaborgir
„Sjálfstœðisflokkurinn er stœrsti
saumaklúbbur i heimi þar sem kjaftásar
koma saman til að reisa skýjaborgir" segir
Baldur Hermannsson i grein i Visi i dag.
Hann segir þátttöku Ernu Ragnarsdóttur bera
með sér hressandi gust en Albert hafi
ekki hundsvit á stjórnmálum.
— Sjá bls. 11