Vísir - 15.11.1977, Blaðsíða 7

Vísir - 15.11.1977, Blaðsíða 7
7 VISIR ' Þriðjudagur 15. nóvember 1977 Irwin Shaw með bók sína Rich Man, Poor Man. Hefur skrifað í 43 ár — og meðal annars Rich Man, Poor Man „Ég hefskrifaði 43 ársvo að ég á þetta vel skilið. Það var kominn timi til að ég næði góðum árangri”. Irvin Shaw heitir sá sem hefur skrifað svona lengi. Án efa kannast margir við nafniö. Hann erm.a. höfundur Rich Man, Poor Man eða Gæfa og gjörvileiki sem sjónvarpið sýnir um þessar mundir. Og það var einmitt sú bók sem bætti fjárhag Shaws verulega. Yfir sex milljónir eintaka af bók- inni hafa selst fram að þessu. Shaw er nú 64 ára og hefur skrifað 10 stórar skáldsögur og auk þeirra margar smásögur og leikrit. Hann er sagður heldur mikið fyrir sopann og reynir ekkert að neita þvl sjálfur. „En ég drekk aldrei þegar ég skrifa, — aðeins þegar ég hef lokið við að skrifa.” Hann er nýskilinn við konu sina Marian, en samt halda þau enn saman. Þau höfðu verið gift i 29 ár. „Ég veit satt að segja ekki hvers vegna við vorum að skilja” segir hann. „En kannski lifnaður- S----— J rUmsjdn^ Edda 1 VAndrésdóttir J *----—1—"T-------------- inn á mér hafi haft eitthvað að segja”, bætir hann við um leið og hann lyftir glasinu. Endir sjónvarpsþáttanna er ekki eins og Shaw lætur hann vera i bók sinni (seinni hlutanum). Hann lætur persónurnar flestar vera enn á lífi i lokin, en fram- leiöendurnir voru ekki alveg á þvi. Shaw þarf ekki að hafa áhyggj- ur af fjármálum. Hann er orðinn milljónari. A Rich Man, Poor Man einni saman græddi hann yfir eina milljón punda. KAUPMANNASAMTÖK ÍSLANDS boða féiagsmenn sína til hódegisverðarfundar að Hótel Sögu (Súlnasal) fimmtudag 17. nóvember n. k. kl. 12.00. Umrœðuefni: Verðlagsmál. Forsœtisrúðherra Geir Hallgrímsson flytur évarp og svarar fyrirspurnum Hvernig er bíllinn þinn á litinn? Amerisk blöð virðast gera tals- vert af þvi að birta upplýsingar sem mrða að þvi að sálgreina fólk. Við rákumst á það i einu þeirra að sálfræðingur frá New Jersey, Dr. Berthold Schwarz, lætur hafa það eftir sér, að litur bila segi mikið til um persónu- leika eigendanna. Svo ef þig langar til að vita per- sónuleika einhvers manns, þá skaltu bara lita á bilinn hans! Rauður: Sá sem kaupir rauðan bil vill hafa hlutina iburðarmikla. Honum finnst mjög gott að lifa og vill ekki missa af einni minútu. Það er tekið fram að viðkomandi sé gæddur mikilli manngæsku. Blár: Fólk sem kýs þennan lit er rólegt að eðlisfari og hugsandi. Það er áreiðanlegt og hugsar sig vandlega um fremur en að ana út i eitthvað. Grænn: Það er hlýtt og gjafmilt fólk sem kýs græna litinn. Þetta er yfirleitt rólegt fólk, þægilegt og jarðbundið. Gulur: Sá sem kaupir gulan bil er vingjarnlegur, gæddur sköpunargáfu og bjartsýnis- maður. Yfirleitt kátt fólk og hamingjusamt. Hvltur: thaldssamt fólk og tek- ið fram að það sé snyrtilegt. Yfir- leitt ekki miklir efnishyggju- menn, frekar i þvi andlega. Brúnn: Traust fólk og ábyrgt. Mannblendið, látlaust fjölskyldu- fólk. — það segir sitt hvað um þig Purpurarauður: Fólk sem gaman er að vera með. Það vill helst ekki lita við alvarlegri hlið- um lifsins og er mikið úti við. Svartur: Viðskiptalegs sinnað fólk með litinn tima fyrir léttúð. íhaldssamt og alvarlegt og vill gjarnan ná árangri. Oft kuldalegt i viðmóti við ókunnuga. Silfurlitaður eða grár: Vill hafa allt fullkomið I kringum sig, vill búa við öryggi og leitar alltaf eftir þvi besta. Þannig eru þeir sem kjósa þessa liti. Vetrarstarf 1977 1978 Húsnæðis þjónusta Fríkirkjuvegur 11: Aðstaða fyrir æskulýðsfélög til fundahalda og námskeiða og annarrar starfsemi. Saltvík Kjalarnesi: Aðstaða fyrir hópa úr félögum til gistingar, útiveru og funda. Bátasmíði í Nauthólsvík. Innritun fer fram á Fríkirkjuvegi 11. Starfsstaður: Verkstæði í Nauthólsvík. Starfstími: Laugardagar kl. 1 —5. Starf hefst: 19. nóvember. Bátstegund: Optimist. Verð 50.000 kr. (efni). Bústaðir. Sunnudagar: Kvikmyndasýningar kl. 15.00. Þriðjudagar: „Opið hús” kl. 20.00 — 23.00 Föstudagar: Diskótek kl. 20.00 — 23.30. Aldur f '64 og eldri. Aðgöngumiðaverð kr. 200.— Laugardagar: Skemmtikvöld. Aldur f. '63 og eldri. Tómstundaklúbbar: Nánari upplýsingar í Bústöðum í síma 35119 Tækjaþjónusta við æskulýðsfélög og skóla Ferðadiskótek. Leigt með stjórnanda. Leiga kr. 10.000.— Ferða bingó. Leigt með stjórnanda. Leiga kr. 10.000.— Bókanir á Fríkirkjuvegi 11. Fellahelfir. Þriðjudagar: „Opiöhús” kl. 20.00 — 23.00. Klúbbstarf og alm. fundir með unglingum. Föstudagar: „MÁL” Diskótek og fl. kl. 20.00 — 23.30. Aldur f '64 og eldri. Aðgöngumiðaverð kr. 200.— Húsnæðisþjónusta við félög og samtök. Upplýsingar í Fellahelli, sími 73550 Tónabær. Föstudagar: Dansleikir kl. 20.30 — 00.30. F '62ogeldri. Aðgöngumiðaverð kr. 500.— Laugardagar: Dansleikir kl. 20.30 — 00.30. F '62 og eldri. Aðgöngumiðaverð kr. 500.— Nafnskírteinis krafist við innganginn. Sunnudagar: Skemmtikvöld og fl. Húsnæðisþjónusta við félög og skóla. Upplýsingar í Tónabæ, sími 35935. Allar nánari upplýsingár um ofangreinda þætti á skrifstofunni, Fríkirkjuvegi 11, kl. 8.20 —16.15. Simi 15937 —21769. ÆSKULYÐSRAO REYKJAVIKUR SIMI 15937

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.