Vísir - 15.11.1977, Page 24
4
VISIR
gftnftgfflfll
FJORIR
SKJÁLFTAR
NYRÐRA
Mjög litil skjálftavirkni hefur
verið i Mývatnssveit siðan i gær-
kvöldi. t nótt urðu þar aðeins fjór-
ir jarðskjálftar og náði aðeins
einn þeirra tveim stigum á Richt-
erkvarða.
Stærsti skjálfti sem komið hef-
ur fram á mælunum um margra
mánaða skeið varð á sunnudags-
morgun og mældist hann 3,2 stig.
Þann dag urðu fleiri stórir
skjálftar, en siðan hefur aftur
dregið úr styrkleika þeirra.
Landris heldur áfram með jöfn-
um hraða og að sögn Axels
Björnssonar jarðeðlisfræðings er
landhæðin nú að komast i fyrsta
sinn i þá hæð sem var fyrir gosið i
desember 1975.
— SJ
áSK SAIMYO 20" litsjónvarpsfœki frá Sími 86611
^ ™ ■ ■ Opiö virka daga til kl. 22 (1
GUNNARI ASGEIRSSYNI er vinningurinn I Sunnudaga kl. 18-22
smáauglýsingahappdrœtti Visis. DREGIÐ 21 NÓV.
Togari Skagstrendinga stór-
skemmdist af eldi í morgun
Útlit fyrir margra vikna atvinnuleysi á Skagaströnd vegna brunans
//Þetta er verulegt tjón
mælt í peningum og
tíma", sagði Sveinn
Ingólfsson framkvæmda-
stjóri Skagstrendings hf á
Skagaströnd í samtali við
Visi i morgun. Eldurkom
upp i skuttogara út-
gerðarfélagsins, Arnari
HU 1 um klukkan fimm í
morgun, en togarinn
hafði verið i þriggja
vikna viðgerð á Akureyri.
Var áætlað að halda heim
á fimmtudag.
,,Um 40 manns i frystihúsinu
hafa verið atvinnulausir i þrjár
vikur á meðan skipið var i
slipp,’, sagði Sveinn. Nú er
horft fram á áframhaldandi at-
vinnuleysi vegna brunans i
þrjár, sex eða jafnvel niu vikur i
viðbót. En við erum bjartsýn-
ir, og ætlum að reyna að koma
skipinu af stað sem fyrst”, bætti
Sveinn við.
í Arnari, sem er nánast eina
hráefnisöflunartækið fyrir
frystihúsið, varð mikið tjón
vegna eldsins. Skemmdir urðu
aðallega i borðsal og eldhúsi,
þar sem allt er ónýtt og hnifa-
pör ekki einu sinni heil eftir.
Skemmdir urðu einnig miklar i
nærliggjandi klefum og miklar
skemmdir urðu af reyk. Ekkert
var vitað um eldsupptök i morg-
un, en skipið var mannlaust
þegar eldurinn kom upp.
Astandið á Skagaströnd er þvi
mjög slæmt. Þess má þó geta aö
á Skagaströnd er rækjuútgerð,
sem er i öðru húsi.
—EA
Vilja
segja
upp!
Alþýðusamband Vest-
fjarða skoraði um helgina
á verkalýðsfélög innan
sinna vébanda að segja
upp kjarasamningi þeim
sem undirritaðir voru í júni
s.l.
Tillaga þar að lútandi var borin
upp og samþykkt á 23. þingi ASV,
sem haldið var á Isafirði um helg-
ina, en þingið sátu 35 fulltrúar frá
hinum ýmsu verkalýðsfélögum á
Vestfjörðum.
1 samningnum sem ASV gerði á
sinum tima var ákvæði þess efnis
að verði aðrir launþegahópar til
þess að semja um hærri launa-
bætur en samningarnir kveða á
um séu þeir uppsegjanlegir.
Kom fram á þinginu að aðrir
launþegahópar hafi nú þegar
fengið sem svari niu prósentum
meiri launahækkanir en verka-
lýðsfélögin á Vestfjörðum fengu,
er klufu sig úr heildarsamningum
ASl i siðustu kjarasamningum og
sömdu sér.
-klp-
Unnið að uppfyllingu á athafnasvæði Sambands islenskra samvinnufélaga i Sundahöfn.
Vfsismynd: JA.
SUNDAHÖFN STÆKKAR
— hafnarbakkar lengdir um 50 metra
Miklar framkvæmdir
standa nú yfir hjá
Reykjavíkurhöf n. Upp-
fyllingu fyrir vöru-
skemmu Skipaútgerðar
ríkisins við Gróf ina er um
það bil lokið, og í Sunda-
höfn eru hafnar fram-
kvæmdir við lengingu
hafnarbakka og uppfyll-
ingar.
Að, sögn Gunnars B.
Guðmundssonar hafnarstjóra á
að lengja korngarðinn og
Sundabakkann um 50 metra
hvorn. Við korngarðinn verða
þá viðlegur fyrir tvö skip og við
Sundabakkann verða þrjár við-
legur.
Þá hefur verið hafist handa
við uppfyllingu á athafnasvæði
Sambandsins i Sundahöfn.
Gunnar sagði að þessar
framkvæmdir myndu standa
eitthvað fram yfir áramótin og
myndi lenging hafnarbakkanna
bæta mjög úr brýnni þörf. Sagði
hann að bæði við korngarðinn og
Sundabakkinn þyrfti að sæta
færis með að afferma skip, ef
fleiri en eitt skip kæmi að i einu.
Hefði ekki verið hægt að koma
þarna að öllum þeim skipum
sem vildu fá afgreiðslu.
—SJ
NAGLADEKKJUNUM
FÆKKAR ÖRT!
„Ég held að tilmælum okkar
til ökumanna um að aka ekki á
negldum hjólbörðum hafi verið
vel tekið”, sagði Ingi O.
Magnússon, gatnamálastjóri
Reykjavíkurborgar er Visir
hafði samband við hann i
morgun.
„Við höfum látið fara fram
könnun af og til að undanförnu,
og samkvæmt siðustu talningu,
sem gerð var s.l. föstudag voru
þrjátiu og tvö prósent af þeim
bilum sem skoðaðir voru á
nagladekkjum”.
Það eru stöðumælaverðir sem
gera þessa könnun fyrir gatna-
máladeildina. Skoða þeir hjól-
barðana á bilum, sem eru við
stöðumæla og á bilastæðum i
borginni, og merkja við hvernig
þeir eru.
Viðkomandi bill er ekki skrif-
aður upp, svo að þeir sem enn
aka um á sumardekkjunum
þurfa ekki að óttast að vera
kærðir af stöðumælavörðunum
fyrir það.
Samkvæmt upplýsingum sem
Visir aflaði sér hjá nokkrum
hjólbarðaverkstæðum i morg-
un, er ekki mikið um að menn
biðji um að naglar séu teknir úr
notuðum hjólbörðum þegar
komið er með þá á verkstæðin
þessa dagana — en þó komi það
fyrir.
Það er aftur á mótí algengt,
að menn, sem kaupa sér nýja
eða sólaða hjólbarða um þessar
mundir óski eftir þvi að þeir séu
ónegldir. Sé sýnilegt að margir
vilji fara eftir tilmælum yfir-
valda um notkun snjóhjólbarða
án nagla. —klp