Vísir


Vísir - 22.11.1977, Qupperneq 5

Vísir - 22.11.1977, Qupperneq 5
ísraelsferð Sadats hefur vakið gremju i sumum Arabarikjunum, og var þessi mynd tekin af mótmælagöngu i Beirút. ÞRIR FELLI- BYLJIR Á TÍU DÖGUM — þúsundir hafa farist í óveðrum ó Indlandi þessa vikuna Þriðji fellibylurinn á aðeins tiu dögum geisaði yfir suðurhluta Indlands i morgun, meðan stjórn- völd kappkostuðu að efla hjálparstarf i Andhra Pradesh, þar sem fyrri Hallar ó Spassky Stórmeistararnir, Kortsnoj og Spassky, tefldu f gær fyrstu skákina i einviginu um réttinn til aö skora á heimsmeistar- ann Karpov. Kortsnoj með hvítu mennina þótti hafa sigurstranglega stöðu, þegar skákin fór i bið, og var af flestum spáð sigri i henni. Framhaldið veröur teflt i dag. fellibylir hafa valdið gifurlegum usla og ótt- ast er um lif 6.000 manna. Flogið var með matarböggla sem varpað var úr flugvélum i þorpsrústirnar en læknar og björgunarsveitir reyna að brjót- ast landveginn til svæða sem harðast urðu úti i fellibylnum um helgina. Þetta þykja verstu veðurham- farir á Indlandi frá því að fellibyl- ur æddi yfir Orissa i nóvember 1971 og olli dauða tfu þúsund manns. Fellibylnum i gær fylgdu miklar flóðöldur sem skoluðu burtu heilu þorpunum. Hvass- virði og stórsjór olli enn tjóni i morgun á vesturströnd Indlands en enn einn fellibylurinn steöjaði þá að frá arabiska hafinu. 400 manns voru talin af eftir veður sem gekk fyrir viku yfir. Tamil Nadu. Tjón á uppskeru, húsum og öðrum verðmætum I þessum felli- byljum hleypur á billjónum króna. 1 veðrinuhefur einnig far- ist f jöldi báta og skipa á þessum slóöum. Anwar Sadat, Egyptalandsforsetiog Menachem Begin, forsætisráðherra, umkringdir fylgdarmönnum I heimsókn Sadats í Yad Vashem-safnið, sem sett var á laggirnar til minningar um 6 milljónir gyðinga sem létu llfiö i sfðari heimstyrjöldinni. SADAT LAUK ÆTLUNARVERKI SÍNU í ÍSRAEL segir Egyptalandsstjórn og telur undirbúningi Genfarráðstefnunnar nú lokið „Egyptaland og ísrael mega aldrei heyja strið innbyrðis aftur”, sagði Anwar Sadat forseti, þegar hann kom til Kairó i gær, þar sem honum var fagnað sem þjóðhetju að lokinni skyndiheimsókn hans til ísraels. Talsmenn egypsku stjórnar- innar lýstu þvi fyrir I gær', að Sadat forseta hefði tekist ætl- unarverk sitt I Israel, sem hefði veriðað undirbúa áframhald frið- arviðræðna í Genf. Sagt var, að undirbúningi Gen- farráðstefnunnar væri nú lokið, en ósagt látið hvenær ráðstefnan hæfist að nýju. — Eins og menn muna kom ráðstefnan stuttlega saman I desember 1973 (tveim mánuðum eftir Yom Kippur- strlðið) og siðan ekki söguna meir. Hvorki tsraelsst jórn né Egyptalandsstjórn hafa látið neitt uppi efnislega um einkavið- ræður Sadats við Israelska ráða- menn. Báðir hafa lýst sig „ánægða með árangurinn”, en hafa ekkert lýst þeim „árangri” nánar I einstökum atriðum. Framhald Genfarráðstefn- unnar, sem sagt er að Sadat hafi nú tryggt með heimsókn sinni til Israels, hefur til þessa strandað á þvi, að lsrael hefur þvertekið fyrir, að þjóðfrelsishreyfing Palestinuaraba (PLO) ætti full- trúa á ráðstefnunni. tsraelsmenn hafa ávallt neitað að setjast aö samningaborði með fulltrúum PLO, sem þeir kalla skæruliða- samtök. — PLO viðurkennir raunar heldur ekki tilveru Israelsríkis. Egyptalandsstjórn hefur æ ofan I æ lýst þvi yfir, að það gæti ekki orðið nein Genfarráðstefna án fulltrúa Palestinuaraba. 1 ræðu sinni I þinglnu I Jerúsal- eifl vék Sadat forseti að vlsu aldrei einu orði að PLO, en ítrek- aði, að friður væri óhugsanlegur án lausnar á Palestínuvandamál- inu. Á fundi með blaðamönnum skömmu fyrir brottförina frá tsrael sagði Sadat: „Ég trúi þvl, að leysa megi i Genf Palestinuvandamálið, þrátt fyrir alla þessa erfiðleika”. SJORAN I DONSKU SKIPI VIÐ LAGOS Flokkur blökku- manna réðst i gær um borð i danskt skip, sem lá undan Lagos i Nigeríu. Skutu þeir skipstjórann og fleygðu honum fyrir borð, að sögn útgerðarinnar i Kaupmannahöfn. Margir af fjórtán manna áhöfn skipsins særðust I árás- inni. Þar á meðal Indónesíu- maður, sem missti bæði augun. Skemmdir voru unnar á tækja- búnaði skipsins, eins og t.d. loft- skeytastöðinni. Asger Lindinger, eigandi út- gerðarinnar, segist hafa fengið fréttir af árásinni á Lindinger Ivory (1600 smálestir) hjá öðru dönsku skipi, Atrevida, sem lá við festar skammt frá. Bæði skipin komu til Lagos fyrr I þessum mánuði og biðu eftir bryggjuplássi i Lagos-höfn. Fréttir frá Lagos fyrr á þessu ári greindu frá þvi, að flotinn héldi uppi varögæslu á skipa- læginu að næturlagi til þess að hafa hemil á ræningjum, sem oft höfðu látið greipar sópa um borð í hinum biðandi skipum. Höföu þeir oft haft á brott meö sér verðmætan varning og pen- inga. Danska utanríkisráðuneytið hefur nokkrum sinnum Itrekað viö Nígeriustjórn andmæli danskra skipaútgerða vegna skorts á öryggi þeirra skipa, sem biöa á læginu fyrir utan Lagos. Talsmenn samtaka útgerðar- félaga, sjómannasamtakanna og annarra félaga, sem taka til verslunarsiglinga, segjast ætla að beita sér fyrir þvi, aö alþjóða samtök flutninga látisniðganga La gos. Lindinger útgerðarmaður hefur þaö frá Atrevida, að um 20 blökkumenn hafiráðistum borð I Lindinger Ivory snemma I gærmorgun. Eftir að hafa skotiö Sonnich Kromann Frederiksen, skipstjóra, fleygöu blökku- mennimir honum fyrir borö. Lindinger Ivory kom til Lagos frá Hull I Engl’andi. Ekki er vit- að, hvaða varningur var um borð eða hvort ræningjarnir höfðu eitthvað af verðmætum á brott með sér. „Þetta er rétt og slétt sjórán og við erum að hugsa um að hætta allri þjónustu við Nígerlu,” sagöi Lindinger við fréttamann Reuters. — Vara- áhöfn var send með flugvél frá Kaupmannahöfn til Lagos í dag.

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.